Réttur - 01.05.1937, Blaðsíða 28
við stefnuskrá allra vinstriflokka. Nú hefir sú tilhög-
un verið höfð um þennan atvinnuveg lengi, að hann
hefir í raun réttri verið rekinn samkvæmt öfugri þjóð-
nýtingu, hann hefir verið rekinn með fulltingi ís-
lenzka ríkisbankans, en á nafni einstaklinga sem áttu
ekkert í honum. Hvað er nú eðlilegra en það, að
vinstriflokkur eins og Alþýðuflokkurinn komi fram
með tillögu um, að úr því endilega eigi að reka þenn-
an atvinnuveg á kostnað ríkisins, þá verði hann þó að
minnsta kosti þjóðnýttur um leið.
Eins og kunnugt er hafa foringjar hins vinstri-
flokksins í þinginu svarað kröfu þessari neitandi og
gætu legið skiljanlegar ástæður fyrir því í svipinn.
Hitt hlýtur að koma kjósendum flokksins undarlega
fyrir sjónir, að neitunin er alveg sérstaklega rökstudd
með því að þessi vinstriflokkur, þ. e. Framsóknar-
flokkurinn, telji sig í grundvallaratriðum andhverfan
þjóðnýtingu. Með öðrum orðum, sérnýting stórútgerð-
arinnar á ríkiskostnað er komin í gjaldþrot og Fram-
sóknarflokkurinn tjáir sig andhverfan samnýtin'gu
þessa atvinnuvegar. Maður hlýtur því að spyrja: Eiga
íslendingar að leggja niður aðalatvinnuveg sinn, eiga
þeir að hætta að veiða fisk á fiskimiðum sínum, sem
eru auðugustu fiskimið í heimi, úr því sérnýtingar-
stefnan er örþrota, en bannhelgi lögð við samnýtingu?
Þetta svar Framsóknarforingjanna á þingi er þeim
mun óskiljanlegra, sem þessi flokkur á einmitt allar
vinsældir sínar því að þakka, að hann hefir barizt fyr-
ir hagkvæmri þjóðnýtingarstefnu á sem flestum svið-
um innan þjóðfélagsins. Eitt fyrsta stefnumál hans, og“
það mál sem hefir aflað honum mestra verðskuldana,
er baráttan gegn sérnýtingu á vörudreifingunni, bar-
áttan fyrir þjóðnýttri verzlun, samvinnuverzlun. Aulc
þess hefir Framsóknarflokkurinn allra flokka drengi-
legast stuðlað að þjóðnýtingu á samgöngutækjum,
menntastofnunum og útvarpi, að ógleymdum ýmsum
108