Réttur - 01.05.1937, Blaðsíða 3
Samfylklng
láknar signr.
Eftip Þorvaid Þórarinsson.
20. júní n.k. verður gengið til alþingiskosninga. Þá
verður kosið milli hinnar róttæku umbótastefnu, í
landsmálum annarsvegar og kyrrstöðu og braskara-
stefnu íhaldsins hinsvegar. Milli lýðræðis hins vinn-
andi fólks og fasisma auðmannaklíkunnar í Reykja-
vík.
Við skulum nú stuttlega fylgja ferli helztu flokk-
anna, og athuga horfurnar í kosningunum.
í full sex ár hefir Kommúnistaflokkurinn sleitu-
laust unnið að því, að vekja alþýðu íslands til vit-
undar um rétt hennar, og safna henni saman til bar-
áttu fyrir hagsmunum líðandi stundar og komandi
tíðar. Flokkurinn hefir talað í hana kjark, foringjar
hans og málgögn hafa léð henni lið og rök í barátt-
unni. Alþýðan og Kommúnistaflokkurinn hafa með
sameiginlegum átökum unnið margan sigur, og haldið
úr einum áfangastað til annars, stundum hægt — en
alltaf á réttri leið.
Flokkurinn hefir safnað undir merki sitt flestum
bezt menntuðu og ósérhlífnustu verklýðsforingjum Is-
lands og unnið mikið fræslustarf um sósíalisma og
verklýðsstarfsemi fyi'ir alþýðuna innan flokksins og
utan.
Undir forustu Kommúnistaflokksins sigruðu verka-
menn í Reykjavík í atvinnuleysisbaráttu sinni 7. júlí
1932. Undir forustu hans brutu þeir á bak aftur hina
alræmdu kauplækkunartilraun bæjarstjórnaríhalds-
ins 9. nóv. sama ár. Undir öruggri forustu og hand-
leiðslu flokksins unnu bifreiðarstjórarnir sinn fræga
sigur á olíuhringunum. Það var Kommúnistaflokkur-
83