Réttur - 01.05.1937, Blaðsíða 26
legra alþýðu en gjaldþrota íhald, ef það nær völdum.
íslenzkir vinstrikjósendur mega vita það, hvar í
flokki sem þeir annars standa, og hvort þeir kalla sig
róttæka eða hægfara, að um leið og gjaldþrotaauð-
valdið íslenzka nær tökum á íslenzka ríkisvaldinu og
íslenzka þjóðbankanum, þá stendur fasisminn fyrir
dyrum. Fyrir auðvald á því stigi eru ekki til aðrar
stjórnaraðferðir en fasismi.
Okkur vinstrikjósendum er nú skipað að ganga til
kosninga á móti gjaldþrota auðvaldi sem mun ekki
skirrast við að leggja eins mikið fé og þörf krefur í
kosningaundirbúning, áróður og mútur, því það á allt
að vinna. Um það verður kosið hvort vér eigum að af-
henda gjaldþrota auðvaldi ríkisvaldið og fjármagn
þjóðbankans, ásamt valdinu yfir opinberum stofnun-
um þjóðfélagsins, eða hvort þetta vald eigi að vera í
höndum vinstriflokkanna, umbjóðenda alþýðu. Það
er ekki aðeins barizt um eignaréttinn yfir öllu Is-
landi og auðlindum þess, heldur einnig -um menningu
íslands. Þetta eru mjög mikilsverðar kosningar, góðir
vinstrikjósendur. Gjaldþrotaauðvaldið mun ekki
fremur á íslandi en annarsstaðar þar sem líkt hefir
staðið á spyrja að vopnaviðskiptum, heldur leikslok-
um. Ekkert vopn mun það skirrast við að nota. A-
flogasveitirnar hafa þegar verið skipulagðar undir ís-
lenzka þjóðfánanum, en hann hefir afturhaldið gert
að flokksmerki sínu í baráttunni gegn almenningi í
landinu, gegn þjóðinni, gegn íslenzkri alþýðu. Víxil-
uppáskriftirnar fyrir atkvæðasnatana og áróðurs-
mennina úti í kjördæmunum eru í fullum gangi. Jú-
dasar vinstriflokkanna falbjóða sál sína á torginu og
eru orðnir einhver eftirsóttasta munaðarvara sérstétt-
anna og um leið öruggustu verðbréf þeirra.
Hvernig ætla nú vinstriflokkarnir að bregðast við í
væntanlegum kosningum í vor? Sem stendur virðist
samkomulag tveggja þeirra einna áþekkast því sam-
106