Réttur


Réttur - 01.05.1937, Blaðsíða 33

Réttur - 01.05.1937, Blaðsíða 33
mörgum prófessorum og þeir hafa skilgreint hana sem óskýranlegan sjúkdóm. Gerið svo vel að víkja lítilli gjöf að atvinnulausum fjölskylduföður. Við litum í kring um okkur á aðra áhorfendur. Þeim virtist vera svona hér um bil sama. Hvorki undrun né hluttekning var sýnileg á þeim. Þeir virt- ust ekki vera snortnir af þessari sýningu. Aðeins fá- ir létu að óskum listamannsins um litla gjöf. Við köst- uðum smápeningi í skálina sem stóð við stallann, hristum höfuðið og fórum. Sem sagt, hugsuðum við, þarna stendur hann með alvæpni, hinn óupprætanlegi hermaður margra árþúsunda, maðurinn sem hafður var að verkfæri til að skapa veraldarsöguna, hann sem gerði mögu- legar allar hinar frægu dáðir Alexanders, Cesars og Napóleons, sem vér lásum um í skólunum. Þarna er hann. Hann deplar ekki einu sinni augunum. Þetta er bogmaður Kýrusar, sigðvagnsekill Kambysesar sem sandur eyðimerkurinnar gat ekki grafið tii fulls, legí- ónari Cesars, lönsuriddari Chingis Chan, svissari Loðvíks XIV. og grenadír Napóleons fyrsta. Hann er gæddur þeim hæfileika, sem er að vísu ekki alltof sjaldgæfur, að láta í engu sjást á sér þótt öll hugs- anleg verkfæri tortímingarinnar séu prófuð á hon- um. Tilfinningarlaus, eins og steinn, segist hann geta þraukað eins lengi og vera skal, þótt hann sé send- ur út í dauðann. Gagnstunginn lönsum ólíkustu tíma- bila, ýmist úr steini, bronsi eða járni, knosaður undir stríðsvögnum, stundum Artaxerxes, stundum Lud- endorfs, troðinn undir fílum Hannibals og riddara- hersveitum Attila, um aldaraðir sundurtættur af fljúgandi málmstykkjum æ fullkomnari skotvopna, að ógleymdri skothríð katapúltanna, sundurrifinn af byssukúlum sem eru á stærð við dúfuegg, stundum við býflugur, stendur hann ótortímanlegur alltaf á nýjan leik, hlýðir skipun á fjölda tungumála, en 113

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.