Réttur - 01.05.1937, Blaðsíða 13
bergjunum þekkja víst af eigin raun okrið á gasi,
rafmagni og kolum. Atvinnubótaverkamenn vita víst
bezt um innheimtu útsvaranna og sjúkratryggingar-
gjaldanna. Hinir stéttvísari verkamenn muna víst eftir
fangelsisdómunum, sem þeir sjálfir og félagar þeirra
fengu fyrir atvinnuleysisbaráttuna. — I stuttu máli:
Ef íhaldið kemst til valda, táknar það réttarskerðing-
ar, atvinnuleysi, lækkað kaup, hækkað vöruverð,
minna fyrir framleiðslu smá-bændanna, þ. e. a. s. bág-
indi meðal almennings til sjávar og sveita og glund-
roða á öllum sviðum. Samtök verkamanna og bænda
verða gerð áhrifalaus eða með öllu þurrkuð út.
Þegar afkoma og velferð þjóðarinnar, allt frelsi og
lýðræði í atvinnu- og menningarmálum er í slíkri yfir-
vofandi hættu, býður Kommúnistaflokkur íslands Al-
þýðuflokknum samvinnu í þessum kosningum, til þess
að unnt sé að varðveita hér á landi lýðræðisskipulag,
og á grundvelli þess hrinda í framkvæmd brýnustu
hagsmunamálum þjóðarinnar og ganga milli bols og
höfuðs á íhaldinu.
Eins og lýst hefir verið hér að framan hefir ágrein-
ingsmálum verklýðsflokkanna stórum fækkað og eru
þeir nú sammála um lausn flestra þeirra mála, sem
barizt er um í kosningunum, svo sem Kveldúlfsmálið,
Landsbankalögin, viðreisn sjávarútvegsins og fleiri
stórmál. Alþýða beggja verklýðsflokkanna og allir
róttækari fylgismenn Framsóknarflokksins óska þess
af heilum hug að forgöngumönnum Alþýðu- og Kom-
múnistaflokksins takist að koma á hinni nánustu sam-
vinnu milli flokka sinna í þessum kosningum. Slík
samvinna og sigur vegna hennar myndi betur en allt
annað tryggja fylgi Framsóknarflokksins við þau mál,
er ágreiningi ollu á síðasta þingi.
Sigur samfylkingar vei'klýðsflokkanna er sigur
vinstri afla Framsóknarflokksins og ósigur talsmaiina
Kveldúlfs.
Alþýðuflokkurinn er þess ekki megnugur að
93