Réttur - 01.05.1937, Blaðsíða 23
Nauðiyn
vinitri bandalags.
Eftir Halldór Kiljan Laxness.
Vinstripólitík er alþýðupólitík. Vinstripólitík er
mismunandi mikið sósíalistisk, en æfinlega sú pólitík
sem styður hagsmuni almennings, og þá fyrst og
fremst hinna eignalausu, gagnvart eignastéttunum,
sérréttindastéttunum. Vinstri flokkarnir aðhyllast
misjafnlega sterkt viðnám gegn sjálfteknu valdi sér-
stéttanna; sumir vilja rétta sérstéttunum höndina í von
um samvinnu, aðrir vilja aðeins rétta þeim litla fing-
urinn í von um að hafa þá góða, aðrir vilja ekki hafa
samkomulag við þá um neitt, heldur líta á þær sem
ósættanlegan óvin almennings, erkióvin hins eigna-
lausa manns, þar sem enginn samkomulagsgrundvöll-
ur sé hugsanlegur. Sumir vilja aðeins draga úr hinu
sjálftekna valdi sérstéttanna, og gera það sem hættu-
minnst almenningi, aðrir vilja leggja allskonar hönrl-
ur, eftirlit og fjötra á vald sérstéttanna og takmarka
frelsi þeirra til athafna, enn aðrir vilja afnema sér-
stéttirnar með öllu og fjarlægja alla hagræna mögu-
leika þess, að slíkar stéttir geti skapazt. Hvað sem
vinstri flokkunum ber á milli, ber þeim þó saman í því
aðalatriði, að þeir séu verndarar hins venjulega
manns, almennings, alþýðu, hins vinnandi fólks, hinna
fátæku.
í þjóðfélag; sem hefir lögleitt almennan kosninga-
rétt byggist pólitískt vald sérstéttanna ekki sízt á því
að nógu margir menn séu til, sem trúa blint á þeirra
forsjá og vilja allt til vinna að vald þeirra og sérrétt-
indi mætti vera sem mest og haldast sem lengst. Með-
an nóg er til af fólki sem stendur á því upplýsingar-
stígi að vilja lifa og starfa og berjast í þágu hinna
ríku og kjósa þeirra málsvara og umboðsmenn til op-
103