Réttur - 01.05.1937, Blaðsíða 40
gera þjóðinni ljóst, hvílík ógæfa bíður hennar, ef
fasisminn verður hér landfastur, en verið reiðir og
ristið honum níð. Sýnið okkur meira af krafti þeim,
sem í samfylktum verkalýð býr, og kveðið í þjóðina
kjark. Þetta geta aðeins Rauðir pennar. Meira af
kvæðum, syngið, — og þjóðin mun taka undir.
VÍÐSJÁ.
Danmörk.
bæjarstjórnarkosningar þær, sem fram fóru um
aila Danmörku í marzmánuði síðastliðnum, enduðu
með glæsilegum sigri vinstxú flokkanna, sem allir
bættu við sig miklu af atkvæðum frá 1933, er síðustu
kosningar fóru fram. Ti) dæmis tvöfaldaði Kommún-
istaflokkui'inn atkvæðatölu sína í Kaupmannahöfn og
mai'gfaldaði hana í flestum kjördæmum öðrum, þar
sem hann bauð fram menn. Stærsti flokkur Danmerk-
ur, flokkur sósíaldemókrata, jók og stói'um atkvæða-
magn sitt, og naut hann þar stuðnings Kommúnista-
flokksins, sem bauð ekki fram í þeim kjördæmum,
þar sem framboð hans hefði getað orðið til þess að
fella frambjóðaixda sósialdemókrata — þrátt fyi'ir
flokkshroka forystumanna þeirra síðarnefndu, er
höfnuðu alli'i kosningasamvinnu við Kommúnista-
flokkinn. Þrátt fyrir þetta og þrátt fyrir það, að aft-
urhaldssöm kosningalög sviptu til dæmis 23000
verkamenn í Kaupmannahpfn kosningarétti vegna
vangoldinna skatta, tókst flokknum að fjölga tölu
kosinna fulltrúa sinna úr einum upp í sjö. — Ihalds-
menn og fasistar biðu herfilegan ósigur.
Af þessum glæsilega kosningasigri vinsti'i flokk-
anna gæti virzt, sem fasistahættan væri ekki yfirvof-
andi í Danmörku. Og það er vafalaust rétt, að þessi
hætta er ekki mjög mikil innanlands. En því meiri
120