Réttur - 01.05.1937, Síða 45
verkfalli, en brezka lögreglan var látin framkvæma
handtökur forystumanna þessarar hreyfingar og aðr-
ar kúgunarráðstafanir. Þá hafa og borizt fregnir um
mjög alvarlega uppreisnarhreyfingu gegn yfirráðum
Breta í héruðunum á norðvesturlandmærum Indlands,
en Bretar senda þangað herlið og sprengjuflugvélar,
eftir fyrirmynd MacDonalds. Þar að auki beita þeir
hinni gömlu aðferð, sem vel hefir gefizt löngum, að
æsa hina ýmsu þjóðflokka hvern gegn öðrum.
Umskipti á Spáni. Lundúnaráðstefna sósíal-
demókrata.
í styrjöldinni á Spáni eru nú orðin endanleg um-
skipti. Orusturnar við Guadalajara og Brihuega,
hrakfarir ítalska ríkishersins, sem flýði undan á-
hlaupi lýðveldishersins í fullkominni upplausn, skilj-
andi eftir verðmætar birgðir hergagna, eldsneytis og
matvæla, auk þýðingarmikilla leyniskjala ítalska her-
foringjaráðsins — þessar orustur eru tákn þess, að sig-
urför fasistasveitanna er nú lokið. En þær eru jafn-
framt tákn um annað og meira, um það, hvers sam-
fylking fólksins er megnug. Þessi samfylking hefir
leyst af hendi það hlutverk að skapa á fáum mán-
uðum úr óæfðum verkamönnum og bændum her, sem
hrakið hefir á flótta nýtízku stórveldisher með 14 ára
þjálfun að baki sér, búinn fullkomnustu hernaðar-
tækjum. Hún hefir sýnt, að samfylkt alþýða lítt þró-
aðs lands, eins og Spánar, megnar að ráða niðurlögum
innlendra landráðasveita, sem hafa að bandamönnum
að minnsta kosti tvö erlend stórveldi, og það við erf-
iðustu skilyrði, hafnbann og viðskiptabann af hálfu
annarra lýðræðisríkja. Meðal Evrópuríkjanna hefir
spánska þjóðin átt einn raunverulegan vin: Sovétrík-
in. Hin hafa ýmist brugðizt viljandi eða látið kúgast
til þess.
Að auðvaldsríki, jafnvel þau, sem kalla sig lýðræð-
isríki, bregðist lýðræðisstjórn, sem á í slíkri baráttu,
125