Réttur


Réttur - 01.03.1941, Síða 4

Réttur - 01.03.1941, Síða 4
hafa átt við okkur síðan í fyrra, vonandi sér til álíka mikillar skapraunar og okkur. Þaö eru ekki nema nokkrir dagar síöan blað eitt hér í bænum, sem hefur a. m. k. ekki veriö sakaö um ótil- látssemi við forstjórn innrásarhersins, þóttist tilknúið að benda á hinn einkennlega mun á framkomu al- mennra hermanna hér og foringjanna í hemum: hinir almennu hermenn eru kurteisin sjálf, eins og títt er um enskan almenning, en foringjarnir brjóta einföldustu reglur í mannasiöum. Blaðiö nefnir sem dæmi reykingar brezku foringjanna í strætisvögnum okkar, og segir frá því, að nýlega hafi strætisvagn veriö fullur af konum og börnum, auk nokkurra for- ingja, sem reyktu og púuöu allt hvaö aftók. Ein kona tók kjark í sig og vakti athygli foringjanna á því, að reykingar væru bannaöar í strætisvögnum okkar, og mælti við þá á ensku, en þeir svöruðu henni með því einu aö glotta fyrirlitlega og kveikja í meiri sígarett- um. Slíka fyrirlitningu getá yfirstéttarmenn óáfaliö sýnt enskum lýö í sínu eigin heimalandi, en hér á landi hefur almenningur aðrar hugmyndir um þessa hluti en enskur lýöur. Fyrst eftir hertökuna, þegar brezkir foringjar óku meö íslenzkum bílstjórum, heimtuöu þeir oft áð ís- lenzku bílstjórarnir stigju út úr bílunum, þegar þeir námu staðar, opnuðu huröina fyrir þá og hneigöu sig og tækju ofan fyrir þeim um leiö og þeir stigu út eöa inn, en íslenzku bílstjóramir héldu að mennirnir væm vitlausir og hlógu aö þeim. Engum íslenzkum bílstjóra dettur í hug aö fara út úr bílnum og hneigja sig eöa taka ofan fyrir farþegunum, þegar þeir stíga út eða inn. Þegar svo bar við á veitingastööum utanbæjar, aö fjórir Bretar komu, þrír fyrirliðar og hinn fjórði óbreyttur, og fyrirliöamir báðu um aö veitingarnar fyrir hinn óbreytta væru ekki aðeins bornar á annaö borð en þeirra veitingar, heldur væri hann einnig lát- 4

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.