Réttur - 01.03.1941, Blaðsíða 32
Krisfín ðeítrsdóffir:
Frú Málfríður
Höfundur þessarar
sögu er kunnur leaend-
um „Réttar". Eftir Krist-
ínu Geirsdóttur hiefur áð-
ur birzt siagan „Sveita-
fsælia“ í 20. árgangi „Rétt-
ar“. Einnig hefur komið
út smásaga eftir hana i
„Rauðum pennum“ 1936.
Kristín er fædd 19.
ág. 1908 á Hringveri á
Tjörnesi. Sjö ára gömul
missti hún föður sinn.
Eins árs alpýðuskóianánv
auk barnafræðslunnar er
öll menntunin, sem þjóð-
félagið hefur veitt þiess-
ani ungu og efniliegu 'skáldkonu. — „Réttur“ vomast til
þess að geta síðar birt lesendum sínum fleiri sögur
Kristínar.
Hún stóö fyrir framan spegilinn, iagaöi á sér hárið
og strauk ofurlitlu dufti yfir andlit sér, og þrátt fyrir
áhyggjusvipinn vottaði fyrir glampa í augum henn-
ar, er hún athugaði útlit sitt. — Hún leit unglega út,
þó hún hefði sex um þrítugt, það var jafnvel eitt-
hvaö barnslegt í fari hennar, eitthvað óþroskað og
viðkvæmt, sem helzt leit út fyrir að aldrei myndi við
hana skilja, en því auðsærri var þreytan og kvíðinn,
sem skein úr dökkum augum hennar, og grúfði yfir
hverjum andlitsdrætti.
Hún rétti úr sér, tók snöggvast báöum höndum
32