Réttur - 01.03.1941, Blaðsíða 17
um. íslenzkir verkamenn reyna aö koma í veg fyrir
þessi afskipti með því að benda hermönnunum á
hversu ósæmileg þau séu og skýra fyrir þeim málstað
verkalýðssamtakanna. Stjórn Dagsbrúnar gefur hin-
um erlenda her upplýsingar, sem leiða til handtöku
þessara íslenzku verkamanna. Þetta er njósnarstarf-
semi í þágu erlends ríkis, sem einnig liggur viö þung
refsing aö íslenzkum lögum.
En ríkisstjórn íslands hefur bókstaflega endaskipti
á hlutunum. í staö þess að láta fara fram sakamála-
rannsókn gegn þeim mönnum, sem leita fulltingis er-
lendra hernaöaryfirvalda gegn löndum sínum, höfö-
ar hún sakamál gegn þeim, sem reyndu að afstýra
því að þessi landráðastarfsemi bæri árangur.
Þingmenn Sósíalistaflokksins hafa krafizt þess að
sakamálarannsókn veröi hafin gegn framkvæmda-
stjóra og stjórn Vinnuveitendafélagsins. Einnig hefur
veriö borin fram krafa urn sákamálarannsókn gegn
þeim mönnum, sem fóru meö stjórn í Dagsbrún meö-
an verkfalliö stóö yfir. Verður fróðlegt að fylgjast meö
hvernig ríkisstjórnin bregzt viö þeirri málaleitun. Nú
er langt um liöiö síöan kæran á hendur stjórn Vinnu-
veitendafélagsins var send, en dómsmálaráöherra hef-
ur ekkert látiö til sín heyra.
Dómur í dreifibréfsmálinu féll í undirrétti 15. febr.
sama dag og Alþingi kom saman. Hann var á þá leiö,
aö þeir Hallgrímur Hallgrímsson og Eggert Þorbjarn-
arson voru dæmdir í 18 mánaöa fangelsi hvor. Eggert
bar fyrir réttinum að hann heföi samið miöann, en
Hallgrímur þýddi hann á ensku. EÖvarÖ Sigurösson
og Ásgeir Pétursson voru dæmdir 1 4 mánaöa fang-
elsi hvor. Ekki voru þeir þó riðnir viö þetta mál aö
öðru en því, aö annar haföi dreift nokkrum miöum,
en hinn starfað eitthvaö að því aö brjóta þá saman.
Allir voru þessir menn sviptir borgaralegum réttind-
um. Ritstjórar Þjóöviljans, þeir Einar Olgeirsson og
17