Réttur - 01.03.1941, Page 19
svo fyrir að hver sem gerir sig sekan um móöganir,
líkamsmeiðingar eöa skammaryrði gegn erlendu ríki
eöa starfsmönnum þess hér á landi, skuli sæta refs-
ingu og liggur við allt að 6 ára fangelsisvist. Víst er
um það, að héöan í frá getur það varöað allt aö 6
ára fangelsi aö sparka í óæöri endann á brezkum liös-
foringja og hugtakiö „móðgun” er hægt að teygja
eins og dómaranum þóknast og „ástandið krefur“. Ef
íslenzk stúlka t. d. neitar liösforingja um blíöu sína,
þá telur hann það venjulega hina verstu móögun. Svo
kvenfólkiö veröur aö gæta sín, ef það vill ekki eiga
6 ára fangelsisvist yfir höfði sér. Myndu nú nýjar
hegðunarforskriftir frá Jónasi Jónssyni koma í góö-
ar þarfir fyrir kvenþjóðina!
Bráðabirgöalög þessi viröast vera viöurkenning
þess, aö þurft hafi aö breyta íslenzkum lögum til þess
aö verða við öllum kröfum Breta um refsingu gegn ís-
lenzkum mönnum. Þau eru gefin út rétt áöur en þing
kemur saman, og er slíkt tiltæki þvert ofan í fyrir-
mæli stjómarskrárinnar, um aö ekki megi gefa út
bráðabyrgðalög nema brýna nauösyn beri til. Er þetta
ótvíræöur vottur þess, aö ekki er lengur um sjálfstætt
löggjafarvald aö ræöa á íslandi.
Nú er aö segja frá verkfallinu, þar sem fyrr var frá
horfið. Bretar geröu allmargar tilraunir til aö fá ís-
lendinga til að vinna sem verkfallsbrjóta midir vemd
vopna sinna. En þaö bar engan árangur. Spömðu þeir
þó ekki aö sýna klærnar og otuöu byssustingjunum
aö fulltrúum Dagsbrúnar, er þeir vom aö tilkynna
félagsmönnum aö þeim bæri að leggja niöur vinnu,
lögum samkvæmt. Samtökin biluðu hvergi. — En
eftir aö verkfalliö hafði staðið í 5 daga skarst sátta-
semjari í leikinn og krafðist þess aö Dagsbrúnarstjóm-
in léti nú fara fram allsherjaratkvæðagreiðslu um til-
boð atvinnurekenda, sem fjölmennur fundur hafði
kolfellt á nýjársdag. í bréfi sínu endurtók sáttasemj-
19