Réttur - 01.03.1941, Page 29
Bandaríkjaauövaldið er staöráöið í því aö selja hjálp
sína eins dýru veröi og auöiö er. Það ætlar sér ekki
aö gera aftur sömu skyssuna og 1 síðustu heimsstyrj-
öld, þegar Bretum var leyft aö stofna til stórskulda í
Bandaríkjunum, sem aldrei hafa verið greiddar nema
aö litlu leyti. Ekkert veröur nú látið af hendi, nema
gegn gulli eöa öörum áþreifanlegum verömætum. Er
Halifax lávaröur haföi hafnaö „friðartilboði“ því, sem
Hitler lagði fram í ræðu sinni hinn 19. júlí 1 sumar,
hófust víðtækir samningar Breta viö Bandaríkja-
stjórn, og leiddu þeir til sáttmálans, sem gerður var
hinn 2. september og jafngildir því nær hemaðar-
bandalagi. Þar er svo ákveöið, meöal annars, aö Bret-
ar skuli fá frá Bandaríkjunum 50 gamla tundurspilla,
en í staöinn leigja þeir Bandaríkjamönnum ýmsar
brezkar flotastöðvar í Vesturheimi til 99 ára. í þessu
kemur glögglega í ljós, hvaö það er, sem vakir fyrir
heimsvaldasinnum í Bandaríkjunum. Þeir ætla sér að
sölsa smám saman undir sig eins mikið af brezka
heimsveldinu og verða má, því að erfitt er aö sjá
nokkurn raunverulegan mun á því að leigja hernaðar-
stöðvar til heillar aldar og hinu, að afsala sér þeim aö
fullu og öllu.
Ef einhver skyldi efast um, aö hér væri rétt lýst til-
gangi heimsvaldasinna í Bandaríkjunum, þá má vitna
í orð þeirra sjálfra. Maður er nefndur dr. Virgil Jor-
dan, einn af helztu iðnaðarhöfðingjum Bandaríkjanna
og mikils metinn hagfræðingur burgeisastéttarinnar
þar. Hann hélt nýlega ræðu á fundi bankaauökýfinga.
Meðal annars, sem hann sagöi, var þetta:
„Á friðartímum er það viðurkennd og eölileg
venja, að nútímá ríkisstjóm leyni almenning öílum
mikilsvarðandi staðreyndum eða ljúgi til um þær,
en á stríðstímum verður þessi pólitíski löstur aö
þjóðamauðsyn...
Hvað sem um þessa styrjöld hefur mátt segja,
29