Réttur


Réttur - 01.03.1941, Page 31

Réttur - 01.03.1941, Page 31
skilningi og pólitískan myndugleik eru Bandaríkin aö taka veldissprotann í sínar hendur... Vér getum, satt að segja, ekki annaö en haldið' á- fram þá braut, sem vér höfum gengið undanfarinn aldarfjóröung, haldiö þá stefnu, sem vér tókum meö því að leggja1 undir oss Kúbu og Filippseyjar og með þátttöku vorri í heimsstyrjöldinni... Þetta er það, sem falið er bak við glamuryröið um „vöm þjóðarinnar“ — sumt vandlega huliö, en ann- að nær yfirborðinu, um það bil að koma í ljós í ögrandi nekt“.' Þetta eru þá þær saurugu staöreyndir, sem felast bak viö yfirdrepsskap burgeisanna, þegar þeir eru að hjala um „verndun lýðræðisins”, „rétt smáþjóð- anna o. s. frv. En slik glamuryrði eru aöeins handa lýðnum, honum til blekkingar. Þegar þeir ræða mál- in í sínum hópi, þarf ekki á neinu slíku yfirvarpi að halda, og þá kemur hinn raunverulegi tilgangur fram í kaldrifjaðri nekt. í þessari styrjöld er ekki barizt fyrir lýðræði, jafn- rétti eða öðrum hugsjónum, fremur en í siðustu heimsstyrjöld. Hún er háð, af beggja hálfu, fyrir lítil- mótlegum yfirstéttarhagsmunum. Hér að framan hafa verið tilfærð orð eins af höfuðprestum auðvalds- ins, þar sem þetta er viðurkennt með blygðunarlausri bersögli, og hver mundi þurfa framar vitna við? 31

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.