Réttur - 01.05.1967, Page 31
SOVÉTRÍKIN í DAG
HÉR MUNU FARA Á EFTIR NOKKR-
AR STAÐREYNDIR OG TÖLULEGAR
UPPLÝSINGAR UM ÁRANGUR SOV-
ÉTRÍKJANNA VIÐ FRAMKVÆMD
SÓSÍATJSMANS Á ÝMSUM SVIÐUM
Sovéti'íkin eru 22.4 milljónir ferkm. að
flatarmáli og ná því yfir sjötta hluta alls þurr-
lendis á jörðunni. Hinn 1. janúar 1967 taldi
landið samtals 234 milljónir íbúa. 1 hinum
15 ríkjum ríkjasambandsins húa meir en 130
þjóðir og þjóðernisminnihlutar.
Síðastliðin 50 ár hefur orðið gjörbylting á
félagslegri stöðu þjóðarinnar. bjóðfélag sós-
íalismans er samfélag starfandi manna, tveggja
meginstarfshópa, verkalýðs og samyrkju-
bænda.
Menntamenn eru mjög verulegur hluti þjóð-
arinnar. Þeir töldu nðeins 2.6 milljónir 1928,
en fjöldi þeirra 1966 nam 26 milljónum.
Rússland keisarans var að flatarmáli mesta
ríki heims og hið þriðja fjölmennasta, en at-
vinnuþróun þess var skammt á veg komin og
það rak lastina í hópi hinna þróuðu auðvalds-
ríkja. Rússland framleiddi aðeins rúmlega 4%
af iðnaðarframleiðslu heimsins Landbúnaður
var aðalatvinnuvegur þjóðarinnar. Vélakost-
ur og tæki ýmiskonar til framleiðslunnar voru
að meginhluta fengin erlendis frá.
Hinn stöðugi og öri vöxtur í sovézku at-
vinnulifi hefur gert þjóðinni kleift að skapa
nýtízkulegan iðnað og þróaðan landbúnað.
V777A Verkamenn og starfsjólk.
m Samyrlcjuhændur og samvinnuhandverksmenn.
[ | Sjálfstœðir hœndur og liandverksmenn.
U°.VJ líurj’eisar, jarðeigendur, kaupmenn, kúlalckar, (stórhœndur).
87