Réttur


Réttur - 01.04.1984, Side 6

Réttur - 01.04.1984, Side 6
svo kosti almennings sem vildu þeir koma kjörum hans niður á það stig, er þau voru fyrir hálfri öld,2 lita á sjálfa sig sem bandamenn þess innrásarhers sem herset- ið hefur landið í 43 ár, og sem skósveina þeirra erlendu auðhringa, sem hyggja nú gott til glóðarinnar að klófesta dýrmæt- ustu auðlindir landsins, fossana, svo sem þeir hafa þegar byrjað á illu heilli. En Ijóð skáldanna, fyrst og fremst Huldu og Jóhannesar úr Kötlum, endur- sþegluðu þá tilfinningu, er gagntók þjóð- ina 1944, — og þær vonir, er hún gerði sér um að fá að vera frjáls héðan af eftir sex alda áþján. „Svo aldrei framar íslands byggð sé öðrum þjóðum háð,“ — var sterka, hástemmda viðkvæðið, sem ýmsir síðan hafa helst viljað sleþþa. Vér íslendingar höfðum tekið konungs- valdið inn í landið, tæþum 700 árum eftir að Noregskongur lét myrða Snorra Sturluson, til þess að ryðja erlendu kon- ungdæmi yfir ísland braut. Kristján X. hefði vafalítið fengið að sleþþa úr þýskri fangavist til að vera frjáls konungur yfir íslandi, ef hann hefði viljað það, — en eðlilega kaus hann að standa sem hetja með sinni þjóð í þrengingum hennar — og verða þarmeð ófær til að gegna kon- ungsstarfi á íslandi. — Vér íslendingar höfðum því konungsvaldið í okkar hönd- um og beittum því. Örlög þjóða á úrslitastundum verða ráðin af framsýni og fyrirhyggju, ekki af óraunsæi og óskhyggju, — ef vel á að fara. Og sú hrifning er gagntók þjóð vora 1944 sýndi að rétt var ráðið og hjálpaði oss einnig til þess í krafti ástar á sjálfstæði að hafna drottnunarkröfu bandarísks auðdrottnavalds ári síðar, er Ólafur Thors lýsti með þessum orðum 20 sept. 1946: „Hinsvegar töldu íslendingar að réttur til herstöðva á íslandi erlendu ríki til handa væri ekki samrýmanlegur sjálfstæði íslands og fullveldi... í fyrra báðu Bandaríkin okkur um Hvalfjörð, Skerjafjörð og Keflavík. Þau fóru fram á langan leigumála, kannski 100 ár, vegna þess að þau ætl- uðu að leggja í mikinn kostnað. Þarna áttu að vera voldugar herstöðvar. Við áttum þarna engu að ráða. Við áttum ekki svo mikið sem að fá vitneskju um hvað þar gerðist. Þannig báðu Banda- ríkin þá um land af okkar landi til þess að gera það að landi af sínu landi. Og margir óttuðust að síðan ætti að stjórna okkar gamla landi frá þeirra nýja landi. Gegn þessu reis íslenska þjóðin.“ Þjóðfrelsisaldan reis nógu hátt 1944 og 1945 til þess að hægt var að skapa sjálf- stætt lýðveldi á íslandi og hindra afsal ís- lands í hendur voldugasta og valdagráð- ugasta herríkis heims sem herstöð til 99 ára. Síðan hefur nýja þjóðfrelsisbaráttan staðið í 40 ár. Voldugir og ríkir höfðingj- ar í landi voru vilja sem forðum fela úr- hraki annara þjóða: herdrottnum og auð- kýfingum tökin á þjóð vorri, valdið yfir landi voru, gróðann af auðlindum íslands. Þeir vinna jafnvel markvisst að því að gera íslendinga að skuldaþrælum erlendra auðdrottna. Það liggur meira við nú en nokkru sinni fyrr í sjálfstæðisbaráttu vorri að einmitt alþýðan standi á verði, því það er ekki aðeins um frelsið og lífskjörin að berjast, heldur um líf þjóðarinnar sjálft. í augum hina erlendu valdhafa er þjóð vor aðeins fórnarlamb, sem leiða skal til slátrunar í þeim hildarleik, sem þeir búa sig til að 70

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.