Réttur - 01.04.1984, Blaðsíða 22
Brjálsemi
ofstækisins á 20. öld
Svo er sagt að Marteinn Lúther hafi eitt sinn er hann sat að skriftum í skrif-
stofu sinni allt í einu orðið þess var að í einu horni herbergisins var Kölski kom-
inn og lét þar öllum illum látum. Lúther var ekki seinn á sér, þreif blekbyttu sína
og tvíhenti henni í Kölska, er hvarf á brott með sama en blekblettur mikill varð
á gólfinu — og er þar enn, endurnýjaður ár frá ári, svo menn sjái hvernig Lúther
sigraöi Satan.
Það hefur því verið líkt á komið með þeim Lúther og Sæmundi fróða í viður-
eign þeirra við Satan sjálfan. Ánnar notaði blekbyttuna sem vopn og dugði vel,
en hinn sneri á Satan, er hann blekkti hann til að bregða sér í selslíki og synda
með sig til Islands, en keyrði svo biblíuna í haus honum, er synt var orðið til ís-
lands-stranda, og sökkti þannig Satan sjálfum í hafsins djúp.
Þeir kunnu auðsjáanlega tökin á Satan sínum fornir miðaldaklerkar, beittu
bleki og bíblíu svo dugði, — þótt valdaaðiljar beittu oft ægilegri vopnum því
miður.
En það er öllu alvarlegra með þá ver-
aldlegu þjóðardrottna 20. aldar, er sjá
Satan ljóslifandi að illu verki og hyggjast
ganga svo frá honum að hann megi sig
aldrei aftur hræra.
Tökum tvo þeirra: Komeini, trúarleið-
toga og einvaldsdrottnara í íran og Ron-
ald Reagan, forseta voldugasta herríkis
heims, búnu atómsprengjum, eiturgasi og
öðrum banvænum vopnum, nægum til að
útrýma öllu mannkyni.
Komeini sér, — að sögn fornvinar hans
Ajatollah Tehrani — Satan ljóslifandi og
drottnandi á þrem stöðum, tvo stóra og
mikla í Washington og Moskvu og einn
lítinn í París. En þar sem hann treystir sér
ekki til að leggja í þá með kórani og kan-
ónum, lætur hann sér nægja að níðast á
þeim, sem hann álítur vini einhvers
þeirra. Þannig lét hann í maí 1983 ráðast
á Kommúnistaflokk írans, Tudeh-
flokkinn, er var eitt aflið, er steypti keis-
arastjórninni, banna hann og ofsækja,
meir en þúsund flokksmenn voru fangels-
aðir, pyntaðir og þorri þeirra síðan tekinn
af lífi.
Samtímis sendir hann þúsundir drengja
og ungra pilta út á vígvöllinn gegn írak,
tryllta af trúarofsa og fyrirheitum um
Paradísarvist eftir dauðann, með lérefts-
bandi um hjálmana áletruðu orðum úr
kóraninum.
Óhugnanlegt blóði drifið trúarofstæki
á 20. öld.
86