Réttur - 01.04.1984, Side 23
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti þjá-
>st ekki af neinum trúarefasemdum líkt
°g Komeini, hvor Sataninn sé verstur.
Hann hefur hina einu sönnu Hitlers-trú
auðvaldsins: kommúnismanum skuli
utrýmt, en höfundur hans Satan hafi mið-
stöð í Moskvu. Reagan undirbýr því
heimsstríð í þessu skyni, svo sem hann
Sagði frá í fyrra, en gætir þess vel að tala
um frið í ár, því hann þarf að ná kosn-
lngu, til að framkvæma áform sín, — og
•nargir íbúar Bandaríkjanna eru orðnir
smeykir við heimsstríð.
En ef Reagan nær kjöri, — sem víg-
búnaðarvaldið ameríska ætlar sér að
tryggja, — þá hefur þegar heyrst á einum
erindreka hans, að eftir kosningar skuli
hyrjað með að þurrka út Nicaragua.
Randaríska risanum stafi hætta af þeim
htla dverg: Kommúnisminn geti útbreiðst
1 Ameríku, ef þetta smáríki fái að vera í
friði.
Það eru 30 ár síðan auðvald Bandaríkj-
anna lét leigumorðingjaher þurrka út lýð-
ræðið i Guatemala, af því lýðræðisstjórn-
,n þar hóf aðgerðir til að bæta kjör bænda
°g alþýðu almennt, en dró úr ofurvaldi
bandaríska ávaxtahringsins United
Eruit’,
Jakobína Sigurðardóttir skáldkonan
mikla í Garði orti þá hið eldheita kvæði
S|tt: „Brást þér værð?“ kvæði svo þrungið
f°rdæmingu á níðingsverkinu, að við
fengum leyfi til að birta það á ný, ef verða
mætti að það gæti eggjað menn til að
standa á verði gegn nýjum níðingsverkum
Bandaríkjaauðvaldsins.
Frá Reagan og hyski hans, „hernaðar-
°g stóriðjusamsteypunni“ bandarísku
stafar nú hættan á öllu hugsanlegu allt
trá: múgmorðum víða í Ameríku til að
brjóta á bak aftur viðleitni hungraðs fólks
Ásmundur Sveinsson: Sæmundur á selnum
(yt !
til að bæta kjör sín — og til atómstríðs, er
þurrkað gæti út heimsbyggðina.
íslendingar! Land vort er í æ ríkara
mæli gert að víghreiðri þessa hálfbrjálaða
árásarvalds.
Er ekki mál að linni?
SKÝRING:
1 Sjá grein Ásgríms Albertssonar í Rétti 1954:
„Guatemala og ísland", bls. 3-11, — og hina
stórmerku bók eftir Juan José Arévalo, forseta
í Guatcmala, „Hákarlinn og sardínurnar". er
Mál og menning gaf út í fslenskri þýðingu Hann-
esar Sigfússonar 1962.
87