Réttur - 01.04.1984, Page 47
INNLEND ■
VÍÐSJÁ ■Is ■
BSRB og fjöldi verkalýðsfélaaga
býst til baráttu
23. júlí samþykkti stjórn og samninga-
nefnd BSRB einróma með 70 atkvæðum
að segja upp samningum. Krefst BSRB
30% kauphækkunar. Er mikill einhugur
í 18-19000 manna félögum BSRB að ná
aftur því, sem rænt var með kaupráns-
lögunum og gerði laun félagsmanna að
hungurlaunum.
En það ættu þær tæpar 20 þúsundir, sem
BSRB skipa, að íhuga, jafnhliða faglegu
baráttunni, að það sem þarf að gera til
þess að hindra svona kauprán framvegis,
er að fella kaupránsflokkana frá meiri-
hluta á Alþingi. Hver sá sem kýs íhald
eða Framsókn er að kjósa yfir sig kaup-
rán á ný. — Mál er að slíku Iinni og
launafólk sameinist um þá flokka, er það
getur treyst til að standa með sér.
Það þurfa 50.000 meðlimir A.S.Í. að
íhuga líka.
„Dagsbrún“ og flest stærstu félög
Verkamannasambandsins hafa þegar sagt
upp samningum og stefnir allt í alvarleg
átök, ef ríkisstjórnin heldur fast við ráns-
skap sinn. AIIs hafa 120 verkalýðsfélög
sagt upp samningum.
Stöðvast útgerðin?
Ríkisstjórnin þykist ekkert geta gert til
þess að hindra stöðvun útgerðarinnar,
nema leggja meiri skatta á almenning:
m.ö. orðum: ræna launafólkið með
þyngri sköttum, meðan braskaralýðurinn
svíkur sig undan sköttunum með aðstoð
ríkisstjórnarinnar.
Það sem þarf að gera er að létta öllu
braskarabákninu af útgerðinni, iðnaðin-
um og öðrum undirstöðuatvinnugreinum.
Olíusala og öll önnur slík útgjöld undir-
stöðuatvinnulífsins verða að gerast þjón-
ustustarf við undirstöðuatvinnuvegina, en
ekki hinn gífurlegi gróðavegur, sem nú
er. Svo ekki sé talað um að láta óþörfustu
fyrirtækin safna gróða, er nemur hundr-
uðum milljóna, meðan níðst er á almenn-
ingi og atvinnulífið hálf kyrkt. Það þarf
gerbreytingu í öllum þjóðfélagsrekstrín-
um til þess að þessi gerbreyting komist á.
Þjóðfélagið verður einfaldlega ekki
rekið, ef gróðahugsunarhátturinn er lát-
inn drottna. Hinar forríku afætur myndu
brátt drepast, ef undirstöðuatvinnuveg-
irnir eru drepnir með vitlausri pólitík. Og
það er mál að sú nauðsynlega breyting
verði: Gróða- og braskstefnan víki fyrir
þjóðarþörfinni.
111