Réttur - 01.08.1986, Blaðsíða 6
eystra væri fallinn. En þá eins og alltaf
fyrr og síðar ákváðu Norðfirðingar að
leiðrétta fréttaskeytin og sigur vannst á
einu atkvæði. Núna var munurinn ekki
svo lítill; síðasti maður inn í bæjarstjórn
var Framsóknarmaður að mig minnir, en
5ti maður Alþýðubandalagsins var 6ti
maður í bæjarstjórn.
Félagar. Til hamingju með stórkostleg-
an kosningasigur — þó litlu munaði. En
það var aðvörun handa okkur öllum sem
birtist á skjánum um nóttina.
Anægjuleg tíðindi
Neskaupstaður í höfn, en fleiri ánægju-
leg tíðindi kosninganæturinnar ætla ég að
nefna hér í þessari samantekt: Á 11 stöð-
um bætti Alþýðubandalagið við sig meira
en 4%-stigum atkvæða, eða sem hér
segir:
Bolungarvík 18,1% aukning, Seltjarn-
arnes 8,4% aukning, Dalvík 7,5% aukn-
ing, Vopnafjörður 6,7% aukning, Akur-
eyri 6,7% aukning, Vestmannaeyjar
6,5% aukning, Stokkseyri 5,3% aukning,
Grindavík 4,7% aukning, Kópavogur
4,6% aukning, Hellisandur 4,3% aukning
og Selfoss 4,0% aukning.
Fjöldi nýrra bæjarfulltrúa
Á fjölda staða bætti Alþýðubandalagið
við sig bæjarfulltrúum af G-listum eða
listum með beinni aðild Alþýðubanda-
lagsins:
Reykjaneskjördæmi
í Kópavogi bættist við nýr bæjarfull-
trúi, sá þriðji og Kristján Sveinbjörnsson,
4. maður G-listans í Kópavogi, var næsti
maður inn í bæjarstjórnina. Bæjarfull-
trúar Alþýðubandalagsins í Kópavogi eru
Heimir Pálsson, Heiðrún Sverrisdóttir og
Valþór Hlöðversson, þeir Heimir og Val-
þór nýir í bæjarstjórn Kópavogs, en
Heiðrún hefur setið þar eitt kjörtímabil
áður.
Á Seltjarnarnesi bætti Alþýðubanda-
lagið verulega við sig eða 8,4%-stigum,
það var nærri helmingshækkun á hlutfalli
frá síðustu kosningum og einum bæjar-
fulltrúa. Þar sitja nú í bæjarstjórn fyrir
Alþýðubandalagið Guðrún Porbergsdótt-
ir og Svava Stefánsdóttir.
í Garðabæ bætti G-listinn við sig 2%-
stigum og heldur sínum manni örugglega.
Það er Hilmar Ingólfsson sem lengi hefur
staðið í stríðinu við íhaldið í Garðabæ.
Listinn þar fékk nú yfir 17% atkvæða.
Frátt fyrir mikinn fjölda framboðslista,
kvennalista og krataflóð hélt Alþýðu-
bandalagið sínum hlut í Hafnarfirði.
Bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins þar er
Magnús Jón Árnason, en hann hefur ekki
verið inni í bæjarstjórn áður sem aðal-
maður.
í Grindavík bætti Alþýðubandalagið
við sig 4,7% atkvæða og tryggði örugg-
lega bæjarfulltrúa, Kjartan Kristófersson,
en Alþýðubandalagið átti engan mann í
bæjarstjórn Grindavíkur á síðasta kjör-
tímabili.
Ekki vantaði Sólveigu Þórðardóttur og
Alþýðubandalagið í Njarðvíkum nema 10
atkvæði til þess að ná manni í bæjar-
stjórnina en G-listinn átti ekki mann í
bæjarstjórninni á síðasta kjörtímabili.
Seinni maður Framsóknar í Keflavík
skreið inn á 338 atkvæðum, en G-listinn í
Keflavík hafði hins vegar 309 atkvæði.
Mismunurinn er aðeins 29 atkvæði og það
var sárt að sjá á eftir okkar manni út af
skermi sjónvarpsins um nóttina eftir
kosningarnar. En félagarnir syðra eru
þegar farnir að undirbúa næstu lotu og
margur Keflvíkingurinn hefur — eftir
118