Réttur - 01.08.1986, Síða 41
Margrétar Thatcher, forsætisráðherra
Breta.
íbúar fátækrahverfanna, ekki síst aldr-
aðir, búa við stöðugan ótta vegna ofbeld-
isglæpa og innbrota, sem eru hlutfallslega
algengust í fátækrahverfum stórborg-
anna. Stóraukin glæpatíðni í þessum
hverfum á undanförnum árum hefur gert
það að verkum að tryggingarfélög hafa
hækkað iðgjöld svo verulega að atvinnu-
leysingar og aldraðir eiga í gífurlegum
erfiðleikum með að tryggja eigur sínar í
þessum hverfum. Glæpir hafa aukist stöð-
ugt á síðustu árum. Síðan Thatcher tók
við völdum fyrir sjö árum hefur glæpa-
tíðnin aukist um 40%, þar af hefur of-
beldisglæpum fjölgað um 20%.
Aukning ofbeldisglæpa, innbrota, eitur-
lyfjaneyslu, hjónaskilnaða, húsnæðisöng-
þveiti (yfir fjórðungur milljónar eru á
götunni), aukið atvinnuleysi, sem nú
nálgast 14%, aukin stéttaskipting, síauk-
ið bil milli atvinnulausra og þeirra sem
hafa atvinnu, aukið bil milli þeirra sem
búa á stórhöfuðborgarsvæðinu í suðri og
þeirra sem búa utan þess, aukið bil milli
kynþátta og kynjanna — allt eru þetta
hornsteinar þess ömurlega minnisvarða
sem öfgastefna nýfrjálshyggju Margrétar
Thatcher hefur reist sér á undanförnum
sjö árum. Þessi félagslegu vandamál eru
sá þáttur sem skýrast grefur undan fylgi
stjórnarinnar og mun vafalaust koma til
valda nýrri stjórn Verkamannaflokksins á
næsta ári.
Fylgi íhaldsflokksins hrynur
Samkvæmt Gallup-könnun í maí s.l.
hefur fylgi íhaldsflokksins hrunið úr 44%
1983 í 27,5% nú. Á sama tíma hefur fylgi
Verkamannaflokksins aukist úr 28% 1983
í 37% og fylgi kosningabandalags Frjáls-
hyggjuflokksins og Sósíaldemókrata-
flokksins aukist um 6,5% á þessu tímabili
og er nú 32,5%. Próun fylgis flokkanna
sést skýrt á línurítinu hér að neðan, sem
sýnir niðurstöður mánaðarlegra Gallup-
kannana.
Heimild: The Daily Telegraph 17. apríl 1986.
153