Réttur - 01.08.1987, Qupperneq 54
Þegar stela átti
stóreignum
þjóðarinnar forðum
Nú er í undirbúningi og að nokkru framkvæmt af vissum voldugum aðilum að
stela ríkustu sameignum þjóðarinnar — eða bæjarfélaga og ná undir „hlutafé-
lög“.
Það er gott þegar slík glæpaverk, innbrot stórþjófa í þjóðarbúið, til að stela
milljarða verðmætum úr sameign þjóðarinnar, að hafa í huga hvernig slíkt rán
var reynt forðum og hvernig fór.
Marshallfé og „einkaframtak“
Þegar Bandaríkin gáfu hingað Mars-
hallfé fyrir 40 árum og létu stofna hér
„Framkvæmdabankann“ og setja þar
bankastjóra, er þau höfðu velþóknun á,
þá ætluðust þau til að hér yrði komið upp
miklum „einkafyrirtækjum“ í eigu
manna, sem reynast myndu tryggir þjón-
ar amerískra hagsmuna og bandarískrar
yfirdrottnunar á íslandi.
En bandarískum drottnurum varð ekki
kápan úr því klæðinu. Menn eins og Ólaf-
ur Thors stóðu á móti. Þegar frumvörpin
um Sementsverksmiðju og Áburðarverk-
smiöju voru lögð fyrir Alþingi var í þeim
ákveðiö að fyrirtæki þessi skyldu vera
ríkiseign eða sjálfseignarstofnun eins og
það heitir á lagamáli. Og þannig voru lög-
in um Sementsverksmiöju samþykkt, svo
og lögin um Áburðarverksmiðju í neðri
deild. En er það frumvarp kom til efri
deildar, tókst einum erindreka amerískra
hagsmuna, „Coca-cola“ manni, að fá bætt
nýrri grein, 13. grein, aftan viö frumvarp-
ið, þar sem ákveðið var að verksmiðjan
skyldi „rekin“ af hlutafélagi, er hafa
skyldi 10 — tíu milljón króna hlutafé.
Átti ríkið að eiga 6 milljónir króna í
hlutafé, en einstaklingum boðið aö kaupa
hlutafé fyrir 4 milljónir.
Sósíalistar andmæltu þessari lagagrein
strax, en hún var samt samþykkt í báðum
deildum.
Klaufaskapur ræningjanna
Þeir, sem breytingartillöguna fluttu og
samþykktu héldu að þeir væru að gera
Áburðarverksmiðjuna sjálfa að hlutafé-
lagi og ná henni þannig úr sameign þjóð-
arinnar í hendur einstakra braskara —
a.m.k. með tímanum.
Ég benti hinsvegar á það í umræðunum
um málið að samkvæmt 3. gr. laganna
væri Áburðarverksmiðjan sjálfseignar-
stofnun en 13. gr. þýddi aðeins að hún
skyldi rekin sem hlutafélag, svo sem tíðk-
ast með ýmsar stórar eignir, svo sem t.d.
Völund. Forsvarsmenn breytingartillög-
unnar reyndu að bera á móti og álitu að
eignabreyting hefði orðið á verksmiðj-
unni. En það þýddi ekkcrt fyrir þá, þeim
höfðu orðiö á mistök við að reyna að stela
þessari ríkiseign.
166