Réttur - 01.08.1989, Qupperneq 14
hlíð sem kostar 500 millj. og Ráðhúsið í
Tjörninni sem skv. fjárhagsáætlun kostar
1 millj. kr. á dag á þessu ári.
Skemmtanakóngi bjargað
En nú um miðjan júlí voru skyndilega
til peningar sem sagðir voru ætlaðir til fé-
lagsstarfsemi aldraðra og unglinga. Borg-
arstjóri keypti skemmtistaðinn Breiðvang
í Breiðholtsmjódd fyrir 118 millj. kr. Eftir
að borgarstjóri hafði tekið þessa ákvörð-
un lét hann afgreiða málið í borgarráði.
Ekki lágu fyrir umsagnir nefnda og ráða
sem um málefni þessara hópa fjalla í
borginni og enginn hafði lagt það mat á
þessi kaup að þau væru meðal brýnustu
verkefna í þágu þessa fólks. Enda var
ástæða kaupanna einfaldlega sú, að einn
helsti skemmtanakóngur borgarinnar
hafði færst of mikið í fang og honum þurft
að bjarga. Það var gert.
Þessi húsakaup eru hneyksli. Húsið er
sérhannað fyrir dansleiki og er á mörgum
pöllum. Pallarnir gera það að verkum að
aldrað fólk sem er hreyfihamlað að ein-
hverju leyti mun eiga mjög erfitt með að
ferðast um húsið, dagsbirta er engin, úti-
aðstaða engin og húsið er langt frá íbúð-
arhúsnæði í Breiðholti.
Við síðustu fjárhagsáætlun lögðum við
í stjórnarandstöðunni fram fjölmargar til-
lögur sem við töldum afar mikilvægar fyr-
ir börn, unglinga og aldraða í þessari
borg. Lítum aðeins á hverjar þeirra hefði
verið hægt að framkvæma fyrir andvirði
skemmtistaðarins.
1. Félagsmiðstöö fyrir æskulýðs- og
tómstundastarf unglinga í Austurbæ
þar sem engin slík aðstaða er nú. 12
millj. kr.
2. Félagsmiðstöö í Seljahverfi, sem er
barnflesta hverfi borgarinnar. Parer
nú engin aðstaða fyrir félagsstarf
barna og unglinga. 15 millj. kr.
3. Húsnæði og rekstur fyrir dag-
vist aldraðra. En reynsla af slíkri
starfsemi við Dalbrautaríbúðir aldr-
aðra er mjög góð og er einn mikil-
vægasti þátturinn í því að gera öldr-
uðum kleift að búa sem lengst á
heimilum sínum. 10 millj. kr.
4. Sambýli fyrir aldraða. Sambýli er
gott úrræði fyrir aldraða, sem nú
búa í ófullnægjandi húsnæði og vilja
búa í félagi við aðra. Góð reynsla er
af slíku sambýli í Kópavogi. 15
millj. kr.
5. Kaup á húsnæði sem breyta mætti í
leiguíbúðir. 20 millj. kr.
6. Aukið framlag til Verkamanna-
bústaða, svo tryggt væri að fullt tillit
yrði tekið til áforma stjórnar Verka-
mannabústaða um framkvæmdir og
kaup á íbúðum til endursölu á þessu
ári. 10 millj. kr.
Þá hefðu enn verið eftir 36 millj. til að
auka framlag til að hraða byggingu B-
álmu Borgarspítalans, (sem erhjúkrunar-
deild fyrir aldraða). En tillaga okkar þar
hljóðaði upp á rúmar 56 millj.
Fólk getur metið hvort þessar tillögur
okkar í stjórnarandstöðunni hefðu komið
sér betur fyrir ungt fólk og aldraða í borg-
inni en kaupin á skemmtistaðnum. En ef
okkar tillögum hefði verið hrint í
framkvæmd, þá hefði engum skemmtana-
kóngi verið bjargað, að vísu.
1000 á biðlista
Mér hefur orðiö tíðrætt um málefni
aldraöra. Enda tel ég fátt eins ömurlegt
og átakanlegt og að sveitarfélag sem á
nóga peninga leyfi sér aö láta gamalt fólk
búa við öryggisleysi og fullkomlega ófull-
I nægjandi aðstæður. Paö er siðleysi að
110
j