Réttur - 01.08.1989, Blaðsíða 31
áöan sýnir að Fidel Castro getur ekki einu
sinni komið á framfæri leiðréttingu á
lygasögum þótt hann fái sjónvarpsstjörnu
af Kennedy-slektinu til að taka við sig
viðtal sem sjónvarpað er í Bandaríkjun-
um — það dugir ekki til. Gaman væri ef
einhver tæki sig til og rannsakaði hinar
raunverulegu ástæður fyrir þessu hatri
vestrænna fjölmiðla á Kúbu. Það sem
ekki er hægt að rangtúlka og afbaka er
þagað í hel.
Það sem gerðist á Kúbu í sumar átti sér
nokkurn aðdraganda. Fyrir þremur árum
var tekin þar upp stefna sem nefnd hefur
verið „Leiðréttingaherferð“. Aðaltil-
gangur hennar er að uppræta spillingu og
endurvekja þann dugnað og byltingarhug
sem einkenndi kúbanskt samfélag en var
tekinn að dofna árið 1986. Fessarar her-
ferðar sér víða stað og yrði ol' langt mál
að telja hér upp allt það sem gert hefur
verið í hennar nafni á þessum þremur
árum. Nægir að nefna að margir óhæfir
skriffinnar hafa þurft að yfirgefa mjúka
stóla og mörg hús hafa verið reist í sjálf-
boðavinnu.
Það var einmitt þessari Ieiðréttingaher-
ferð að þakka að farið var að rannsaka
mál Arnaldo Ochoa hershöfðingja ann-
arsvegar og nokkurra yfirmanna Innan-
ríkisráðuneytisins hinsvegar. í byrjun
datt engum í hug að þessi mál tengdust
innbyrðis eða væru beinlínis glæpsamleg.
Annað kom þó á daginn. í Innanríkis-
ráðuneytinu reyndist vera starfrækt eins-
konar Mafía undir yfirstjórn Tony de la
Guardia og þjóðhetjan Arnaldo Ochoa,
yfirmaður kúbanska heraflans í Angólu,
tengdist þessari Mafíu á hinn glæpsamleg-
asta hátt. Ochoa hafði m.a. sent aöstoð-
armann sinn, Jorge Martinez, til Kólum-
bíu á fund hins alræmda kókaínbaróns
Escobar til aö bjóða honum aðstoð við að
Arnaldo Ochou fyrir rétti.
koina kókaíni frá Kólumbíu til Banda-
ríkjanna. Áður höfðu la Guardia og hans
menn stundað slík „viðskipti" frá árinu
1987. Flogið var með eitrið til Kúbu í litl-
um flugvélum sem lentu á flugvellinum í
Varadero, frægasta baðstrandarbæ lands-
ins. Þar var eitrinu komið fyrir í bátum
sem sigldu með það til Florída. Mafían í
Innanríkisráðuneytinu sá til þess að eng-
inn spyrði óþægilegra spurninga um varn-
inginn.
Sakborningarnir fjórtán voru leiddir
fyrir herdómstól og var réttarhöldunum
sjónvarpað. í fjóra daga fylgdist kúbansk-
ur almenningur agndofa af undrun með
127