Réttur - 01.08.1989, Blaðsíða 37
I rií mótinæluin 1. maí 1988.
viö Hið almenna umbótafélag svertingja
(Universal Negro Improvement Associa-
tion), hreyfingu undir forystu Marcus
Garvey. Síðar meir, á fimmta áratugnum,
tóku þeir þátt í Umbótafélagi Afríkubúa
(African Improvement Society), einnig
undir forystu Garvey.
Árið 1957 stofnaði verkafólk og náms-
menn undir forystu Andimba Toivo ja To-
ivo, Alþýðuráð Ovambolands (Ovambo-
land People’s Congress), er síðar var
breytt í Alþýðusamtók Ovambolands
(Ovamboland People’s Organization,
OPO). Par fór einkum farandverkafólk
Irá Ovambo-heimalandinu í noröri.
Sam Nujoma stofnaði deild samtak-
anna í höfuðborginni, Windhoek og var
eitt fyrsta verkefnið að mótmæla þeim
áætlunum ríkisstjórnarinnar að flytja
svarta íbúa borgarinnar í nýtt og aðskilið
hverfi, er nefnist Katutura. Hinn 10. des-
ember 1959 hóf lögreglan skotárás á and-
stæðinga apartheid og myrti 13 Namibíu-
menn.
Eftir blóðbaðið í Windhoek jókst kúg-
unin og mikill hluti forystunnar hraktist í
útlegð eða starfaði neðanjarðar. Árið
1960 var OPO endurskipulagt og nal'ninu
breytt í Alþýðusamtök Suðvestur-Afríku
(South West Africa People’s Organiza-
133