Réttur - 01.08.1989, Síða 40
Við strendur Namibíu eru einhver
gjöfulustu fiskimiö í heimi. Þar hafa
Suður-Afríka, Sovétríkin og ýmis
Evrópuríki stundað rányrkju af miklu
kappi. Þannig veiddust 1.500.000 tonn
árið 1968, en 1978 aðeins 150.000 tonn.
Fiskiðnaður er næst mikilvægasti iðnað-
urinn í Namibíu. Hann er allur í eigu
suður-afrískra fyrirtækja.
stöðugleika á svæðinu. Baráttusinnar í
Namibíu fengu ný tækifæri.
Uppgangstímar í Suður-Afríku
Mikilvægustu áhrifin urðu þó vegna
uppgangstímanna síðastliðin 13 ár í bar-
áttunni gegn apartheid innan Suður-Afr-
íku undir forystu ANC.
Með uppreisninni í Soweto árið 1976
kom á vettvang ný kynslóð ungs fólks,
hvött til dáða af nýlegum sigrum í syðri-
hluta álfunnar. Fjöldi ungs fólks gekk til
liðs við ANC. Baráttusinnar um víða ver-
öld studdu aðgerðirnar gegn apartheid
með mótmælum og samstöðustarfi.
Þá kom til hin víðfeðma uppreisn gegn
apartheid á árunum 1984-1985. Alþjóð-
legt samstöðustarf komst á nýtt stig er
tókst að fá lýðræðissinnað fólk um allan
heim til fylgis við baráttuna gegn apart-
heid. Aðfarir ríkisstjórnar hvíta minni-
hlutans í gervöllum syðrihluta Afríku
urðu smám saman hverjum manni ljósar,
þar með talið ólöglegt hernám Namibíu
og stríðið í syörihluta Angólu.
Stærsta breytingin á kraftahlutföllum
varð í mars 1988 þegar hersveitir Suður-
Afríku biðu lægri hlut við smábæinn Cu-
ito Cuanavale í syðrihluta Angólu.
Ósigurinn leiddi til brottkvaðningar Suð-
ur-Afríku frá Namibíu. Hann setti einnig
ríkisstjórnina í erfiða aðstöðu heima fyrir
þar sem margir hvítir Suður-Afríkubúar
kröfðust skýringa á dauða sona sinna. En
það var afleiðing fyrsta hernaðarósigurs
Suður-Afríkuhers.
Jafnt samtök gegn apartheid sem
verkalýðsfélög í Suður-Afríku, hvoru-
tveggja bönnuð, hafa staðið fyrir fjölda
aðgerða er sýna, að mikið vantar á að
horfið hafi verið aftur til tímans fyrir
sigurinn við Cuito Cuanavale. Yfirstand-
andi uppreisn á sér enga hliðstæðu í sögu
frelsisbaráttunnar í Suður-Afríku og er
henni hvergi nærri lokið. Minnihluta-
stjórnin hefur leyft sífellt fleiri mótmæli
og kröfugöngur. Með því hefur hreyfing-
in gegn apartheid öðlast mikilvægt pólit-
ískt olnbogarými.
Hinn 11. október síðastliðinn unnu
andstæðingar apartheid enn einn sigurinn
er Suður-Afríkustjórn neyddist til þess
að láta lausa, án skilyrða, átta pólitíska
fanga. Sjö þeirra eru félagar í ANC og
voru fimm handteknir 1963 ásamt ein-
hverjum frægasta pólitíska fanga verald-
ar, Nelson Mandela. Meðal þeirra sem nú
voru látnir lausir er Walter Sisulu, einn
helsti leiðtogi ANC gegnum tíðina.
Skömmu eftir að áttmenningarnir voru
látnir lausir fengu andstæðingar apartheid
tækifæri til þess að fagna þeim á troðfull-
um íþróttaleikvangi utan við Soweto. Þar
mættu 80.000 manns og var þetta fyrsti
fjöldafundurinn með leiðtogum ANC í 30
ár. Cyril Ramaphosa, forseti námaverka-
manna hóf fundinn með þessum orðum:
Aileiðingar nýlendustefnunnar og
apartheid-kerfisins í Namibíu eru lágur
meðalaldur blökkumanna og hár ung-
barnadauði auk þess sem sjúkdómar og
fátækt eru útbreidd.
136