Morgunblaðið - 26.02.2006, Síða 52
52 SUNNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐSMENN eru í
stríðsleik. Aldeilis óverðskuldað er
mér veittur sá heiður að verma
Staksteinabekk blaðsins þann 21.
febrúar, vegna greinar sem ég
skrifaði nýlega í blað-
ið. Ekki amast ég við
því, tel það koma sér
vel að fá að betr-
umbæta frussið sem
fór um „send“-
takkann á tölvunni
minn í síðustu viku.
Sýnist það líka vilji
blaðsins að þessi
tangó verði tekinn
ögn lengra. Það er
hins vegar óþarfi af
blaðinu að láta sem
það sé fórnarlamb
ómaklegra árása.
Blaðið hefur rétt á að hafa þær
skoðanir sem það kýs. En það á
líka að geta séð fyrir að þær skoð-
anir falli ekki að allra smekk. Það
sem ég gerði fyrst og fremst at-
hugasemd við í grein minni var
ógestrisnin í garð fólks sem þegið
hafði pláss á síðum blaðsins til að
tjá skoðanir sínar.
Morgunblaðið hefur fjölmargar
leiðir til að koma skoðunum sínum
á framfæri. Staksteinar, Reykja-
víkurbréf og leiðarar eru hinn op-
inberi vettvangur skoðana blaðs-
ins, en auk þess á það þess kost að
flytja fréttir (eða fela þær), taka
viðtöl og birta myndir á hverri ein-
ustu síðu til að styðja þessar skoð-
anir. Í því máli sem hér um ræðir,
þ.e. frumvarpi til laga um réttindi
samkynhneigðra, hafa komið upp
ágreiningsmál. Ágreiningsmál sem
ekki eru flokkspólitísk. Hefur um-
ræðan í þjóðfélaginu verið á ýmsan
veg, á meðan stuðningur Morg-
unblaðsins hefur verið á einn veg:
með frumvarpinu og breytingar-
tillögunni við það.
Þegar frumvarpið er skoðað
kemur í ljós að það hefur víðtæk
áhrif. Það er eitt af þessum fyr-
irbærum sem kallast bandormur.
Mikið til tittlingaskítur sem miðar
að því að má agnúa af og leiðrétta
orðalag sem eflaust hefur verið til
trafala frá því lög um staðfesta
sambúð samkynhneigðra voru sett
1996. Stórfelldustu
breytingarnar vísa inn
í barnalög, lög um
ættleiðingar og lög
um tæknifrjóvgun.
Biskup Íslands hef-
ur bent á að hugs-
anlega sé fullgeyst
farið í lagasetninguna
um ættleiðingar og
tæknifrjóvgun og ber
fyrir sig varnaðarorð
fyrrverandi umboðs-
manns barna sem hef-
ur haft umsögn um
málið. Fleiri hafa tek-
ið undir hans orð. Ritari Reykja-
víkurbréfs kýs að hæðast að and-
mælum biskups og væna hann um
að vilja hrekja lesbíur til óynd-
isúrræða, með öðrum orðum, að
biskup sé bæði skilningslaus og
fordómafullur í þeirra garð.
Hvernig getur ritari Reykjavík-
urbréfs talað um opinn „debat“
þegar hann getur sjálfur ekki rætt
þetta á kurteisislegum nótum?
Breytingar á þessum lögum hafa
í för með sér afkynjun sem þurrk-
ar út kunnugleg hugtök eins og
karl og kona og flytja inn í tungu-
málið bastarða eins og „foreldrar
hvors foreldris arfleifanda um sig“.
Til að gera svona ambögur skilj-
anlegar þarf orðabók. Fyrir þá
sem ekki gripu strax merkingu
orðanna, þá er hér átt við ömmur
og afa barna (arfleifandann sjálf-
an), þ.e. móður- og föðurforeldra.
Náttúrulegum feðrum farnast ekki
betur í frumvarpinu, enda þykir nú
sjálfsagt að sparka í þá hvenær
sem færi gefst. Frumvarpið leggur
til að í 25. gr. barnalaga verði sú
breyting gerð að: a. Í stað orðsins
„föður“ komi: foreldri. b. Í stað
orðsins „barnsföður“ komi: hitt
foreldrið og í stað orðsins „mann“
komi: foreldri. Þetta er gert til að
koma þessari og öðrum álíka kynd-
ugum setningum inn í lögin: „Kona
sem móðir lýsir yfir að sé foreldri
barns verður ekki skráð foreldri
barns nema 2. mgr. 6. gr. eigi við.“
Var virkilega ekki hægt að koma
þessu svo fyrir að allir gætu staðið
keikir?
Staksteinahöfundur segir blaðið
ekki vilja banna neinar skoðanir.
Engu að síður eru réttmætar skoð-
anir þeirra sem bent hafa t.d. á
merkingartilfærslu hugtaksins
hjónabands, gangi breytingar-
frumvarpið eftir, spottaðar á háð-
uglegan hátt. Ég vil benda þeim
sem vilja kynna sér trúarhefðina
að baki vígsluathöfn kirkjunnar, án
túlkunar Morgunblaðsins, á grein
prófessors Einars Sigurbjörns-
sonar sem birtist í blaðinu 21.
febrúar. Hana má nálgast á heima-
síðu Háskóla Íslands.
Svo virðist sem orðasambandið
„staðfest sambúð“ sé orðið eins
konar hrakyrði í umfjöllun sam-
kynhneigðra og stuðningsmanna
þeirra. Þetta form sambúðar hefur
fjöldinn allur af fólki fært sér í
nyt, enda gefur það réttarstöðu
hjóna. Þetta er það sem einu sinni
var kallað að láta pússa sig saman
hjá sýslumanni og þótti bæði hand-
hægt og gott. En rétttrúnaðurinn
lætur ekki að sér hæða. Og sam-
kynhneigðir hafa látið nota sig í
baráttu fjölmargra samtaka, söfn-
uða og „sértrúarhópa“ sem eiga
það eitt að markmiði að knésetja
kirkjuna. Ritari Reykjavíkurbréfs
tekur þátt í því þótt í niðurlagi
pistils síns lýsi hann því yfir, af
einskærri rausnarsemi, að hann
telji þjóðkirkjunni frjálst að taka
sinn tíma til að ákveða hvort hún
gefi saman samkynhneigða eða
ekki. Hann leynir þó ekki hinu að
kirkjan megi bara komast að einni
niðurstöðu. Að öðrum kosti, „ex-
odus“.
Morgunblaðið hefur boðið al-
mennum lesendum að halda uppi
umræðum um þjóðmál og aflað sér
nokkurrar sérstöðu fyrir. Þar er
blaðið í hlutverki gestgjafans.
Gestrisni þótti einu sinni höf-
uðdyggð á Íslandi. Ef marka má
móttökurnar sem andmælendur
skoðana blaðsins mættu í þessu
máli þurfum við víst ekki lengur á
dyggðum að halda.
Frummælendur, andmælend-
ur, fjandmælendur
Ragnhildur Kolka svarar
Staksteinum Morgunblaðsins ’Ef marka má móttök-urnar sem andmælendur
skoðana blaðsins mættu í
þessu máli þurfum við
víst ekki lengur á dyggð-
um að halda.‘
Ragnhildur Kolka
Höfundur er lífeindafræðingur.
Opið hús í dag frá kl. 13.00 til 15.00.
Glæsileg 3ja-4ra herbergja 95,7 fm íbúð á efstu
hæð í góðu húsi á frábærum stað við hraunjaðar-
inn í norðurbæ Hafnarfjarðar. Eignin skiptist í
forstofu, hol, eldhús, borðstofu, stofu, gang
barnaherbergi, hjóna-
herbergi, baðherbergi,
þvottahús og geymslu.
Gólfefni eru parket og
flísar. Góðar suður-
svalir. Frábært útsýni.
Verð 21,9 millj. Vigdís
býður ykkur vel-
komin.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Suðurvangur 23b Hfj - opið hús í dag
Mjög glæsileg og nánast algjörlega endurnýjuð 4ra herb. 80,4 fm íbúð á 3.
hæð í Vesturbænum. Íbúðin skiptist í tvö rúmgóð herbergi, tvær samliggj-
andi stofur með gluggum á tvo vegu, rúmgott eldhús með glæsilegri innrétt-
ingu og baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf. Sérgeymsla í risi. Öll gólf-
efni eru ný úr hvíttaðri eik og mustang steini, eldhúsinnrétting er ný, gler og
gluggar nýlegir og allar lagnir eru nýjar eða yfirfarnar. Sameign nýmáluð.
Laus strax. Verð 20,9 millj.
Íbúðin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-15
Verið velkomin
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali.
Seljavegur 33
Nýuppgerð 4ra herb. íbúð
til sýnis í dag frá kl. 14-15
Eiðismýri, Seltjarnarnesi.
3ja herb. útsýnisíbúð
Góð 92 fm útsýnisíbúð á 4. hæð í ný-
legu lyftuhúsi á Seltjarnarnesi auk 7,9
fm sérgeymslu í kjallara. Íbúðin skiptist í
rúmgóða forstofu, opið eldhús, rúm-
góðar samliggjandi stofur, eitt herbergi
með skápum og baðherbergi með
þvottaaðstöðu. Yfirbyggðar flísalagðar
suðursvalir. Parket á gólfum. Snyrtileg
sameign. Húsvörður. Hiti í stéttum.
Verð 35,0 millj.
Skúlagata - 2ja herb. útsýnisíbúð
Mjög góð 64 fm 2ja herbergja útsýnis-
íbúð á 8. hæð í góðu lyftuhúsi með yfir-
byggðum vestursvölum og sérstæði í
bílageymslu. Íbúðin skiptist í forstofu,
þvottaherbergi/geymslu, hol, eitt her-
bergi, parketlagða stofu, eldhús með
ljósri innréttingu og baðherbergi með
sturtuklefa. Íbúðin er nýmáluð. Laus við
kaupsamning. Verð 21,9 millj.
Vesturgata - 2ja herb. íbúð
Laus strax
Góð 39 fm íbúð á 3. hæð auk 7,1 fm
sérgeymslu í risi. Íbúðin skiptist í for-
stofu, gang með eldunaraðstöðu, eitt
herbergi, stofu og nýlega yfirfarið bað-
herbergi. Gott útsýni yfir höfnina og Esj-
una úr stofu. Dúkur á gólfum. Þvottaað-
staða á baðherbergi. Sameiginlegur
matsalur, setustofa, heilsugæsla o.fl.
Laus strax. Verð 15,9 millj.
Snorrabraut - 3ja herb. íbúð
ásamt bílskúr
Glæsileg 90 fm íbúð á 7. hæð í lyftuhúsi
auk 30 fm bílskúrs. Íbúðin skiptist í for-
stofu, geymslu við forstofu, hol, eldhús,
bjarta stofu með útsýni til vesturs, tvö
herbergi og baðherbergi með sturtu-
klefa. Parket á gólfum. Suðvestursvalir
út af stofu. Húsvörður. Verð 29,9 millj.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali.
Íbúðir fyrir eldri borgara
AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111