Morgunblaðið - 17.03.2006, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MARS 2006 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Aðalfundur
Hampiðjunnar hf.
Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður
haldinn í fundarsal að Flatahrauni 3,
Hafnarfirði, föstudaginn 31. mars 2006
og hefst kl. 16.00.
Á dagskrá fundarins verða:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
samþykktum félagsins.
2. Tillaga um heimild félagsstjórnar til kaupa
á eigin hlutum skv. 55. gr. hlutafélagalaga.
3. Önnur mál sem löglega eru upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og
ársreikningur félagsins munu liggja frammi á
skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, viku
fyrir aðalfund.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða
afhent á fundarstað.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á
aðalfundi, skulu hafa borist í hendur stjórnar
með skriflegum hætti eigi síðar en sjö dögum
fyrir aðalfund.
Hluthafar sem ekki geta sótt fundinn, en
hyggjast gefa umboð, þurfa að gera það
skriflega.
Stjórn Hampiðjunnar hf.
AÐALFUNDUR Kaupþings banka
fer fram síðdegis í dag og af því tilefni
hefur bankinn sent tilkynningu til
Kauphallar þar sem segir m.a. að far-
ið verði yfir lausafjárstöðu bankans,
áhættu gagnvart íslensku efnahagslífi
og gjaldmiðlaáhættu í ljósi markaðs-
hreyfinga undanfarinna daga. Jónas
Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri
samskiptasviðs Kaupþings banka,
segir að ástæða þess að tilkynningin
var send Kauphöllinni sé sú að talið
hafi verið rétt að upplýsa markaðinn
nánar um stöðu bankans.
Sterk lausafjárstaða
Í tilkynningunni segir að lausafjár-
staða bankans sé sterk, veltufjármun-
ir nemi rúmlega 8,7 milljörðum evra
og auk þess eigi bankinn eignir sem
nema 1,9 milljörðum í auðseljanlegum
skráðum hlutabréfum. Þetta nægi til
að greiða allar skuldir bankans sem
séu á gjalddaga næstu 6,5 ár. Einnig
segir að af skuldum Kaupþings banka
séu 1,3 milljarðar evra á gjalddaga á
þessu ári og 2,4 milljarðar evra á
gjalddaga á árinu 2007. Það sem af er
ári hafi bankinn aflað sér lánsfjár sem
nemur 900 milljónum evra eða 69% af
endurfjármögnunarþörf ársins.
Minnt er á að fjármögnun bankans
hafi, það sem af er ári, ekki farið fram
á verri kjörum en í fyrra.
Ennfremur er bent á að áhætta
gagnvart íslensku efnahagslífi og
kerfislægri áhættu þess sé takmörk-
uð. Bankinn hafi dregið verulega úr
áhættu að því er varðar íslenskar
eignir á síðustu tveimur árum með því
að byggja upp íbúðalánasafn á Íslandi
með fyrsta veðrétti, sem nemur sam-
tals 1,3 milljörðum evra. Bankinn telji
sig því vera í góðri stöðu til að mæta
hvort heldur sem er mjúkri eða harðri
lendingu íslensks efnahagslífs.
Seldi innlend hlutabréf
Eins hafi bankinn í kjölfar óvenju
mikilla hækkana á íslenska hluta-
bréfamarkaðnum dregið úr eign sinni
í skráðum félögum á síðustu mánuð-
um, heildarstöðutaka bankans í þeim
nemi um 340 milljónum evra, auk
breytilegs skuldabréfs að upphæð 300
milljónum evra sem er verðmetið sem
hlutafé. Stærsti hluti þessarar hluta-
fjáreignar sé í félögum sem eru skráð
í Kauphöll Íslands en eru með alla
starfsemi sína erlendis og verða því
ekki fyrir áhrifum af ástandi efna-
hagsmála á Íslandi.
Að lokum er vikið að eigna-
tengslum og segir að ástæða þess að
nafn bankans eða dótturfélaga hans
birtist á öðrum hluthafalistum sé sú
að bréf séu vistuð fyrir hönd við-
skiptavina á vörslureikningum eða
sem áhættuvörn vegna skiptasamn-
inga. Hlutabréf bankans í Exista séu
færð sem fjárfestingabréf án tengsla
á milli stjórnenda fyrirtækjanna og
stjórna. Þá leggur Kaupþing banki
áherslu á að hann eigi engin hlutabréf
í öðrum íslenskum bönkum.
Tæplega 70% endurfjár-
mögnunar á árinu lokið
Morgunblaðið/Sverrir
DAGSBRÚN hefur stofnað félagið
365 Media Scandinavia A/S í Dan-
mörku. Þetta var tilkynnt til Kaup-
hallar Íslands í gær og þar segir að
þetta marki fyrstu skref félagsins í
átt að útgáfu fríblaðs í líkingu við
Fréttablaðið í Danmörku.
Félagið hafi áður lýst yfir áætl-
unum sínum um útrás á erlenda
markaði með áherslu á Norðurlönd
og Bretland.
365 Media Scandinavia A/S er
ætlað að taka yfir þá vinnu sem
lögð hefur verið í undirbúning að
stofnun nýs dagblaðs í Danmörku
innan Dagsbrúnar.
Næstu skref eru að ráða stjórn-
endur til félagsins og mun það
verða gert á næstu dögum. Auk
undirbúnings að stofnun nýs dag-
blaðs mun 365 Media Scandinavia
A/S vinna að stofnun fyrirtækis ut-
an um dreifikerfi hins nýja dag-
blaðs.
Dagsbrún stofnar fé-
lag um danskt fríblað
ÞEGAR tekið er tillit til íslenskra
fyrirtækja með starfsemi erlendis
er áhætta íslenska bankakerfisins
vegna erlendrar starfsemi að með-
altali 62-84%. Þannig nemur raun-
veruleg erlend áhætta að meðaltali
fyrir bankakerfið 73% en inn27%.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu
sem Samtök banka og verðbréfa-
fyrirtækja, SPV, hafa sent frá sér
vegna umræðu síðustu daga um
stöðu fjármálafyrirtækja. Þar segir
að að starfsemi fjármálafyrirtækja
standi traustum fótum, eiginfjár-
hlutföll þeirra hafi aldrei verið
betri, áhættudreifing góð og af-
koma af almennri starfsemi afar
traust. SBV segja að skuldastöðu
bankanna beri að meta í ljósi mik-
illar alþjóðlegrar starfsemi þeirra
sjálfra sem og stærstu viðskipta-
vina þeirra. Yfir 75% af tekjumynd-
un skráðra félaga í Kauphöllinni
séu nú í erlendri mynt.
„Ofhitnun íslenska hagkerfisins
með tilheyrandi hættu á efnahags-
legum óstöðugleika, sem m.a. var
umfjöllunarefni nýrrar skýrslu
Fitch, mun því hafa minni áhrif á
íslensku bankana en hin hefð-
bundnu útlánamódel greiningar-
aðila, byggð á þjóðhagfræðilíkönum
sem byggja á skuldsetningu í hlut-
falli af þjóðarframleiðslu, gætu gef-
ið til kynna,“ segir m.a. í yfirlýs-
ingu frá SBV.
Innlend lán 27% af útlánum
NOKKRAR breytingar voru gerðar
á samþykktum Sparisjóðs vélstjóra,
SPV, á aðalfundi sem fór fram ný-
lega. Veigamesta breytingin er sú að
nú eru ekki lengur sett takmörk á at-
kvæðavægi einstakra stofnfjáraðila.
Atkvæðisréttur byggist nú á því at-
kvæðamagni sem viðkomandi stofn-
fjáraðili á, þó aldrei meiri en 5% eins
og lög um fjármálafyrirtæki kveða á
um. Einnig var samþykkt að heimila
útgáfu stofnfjárbréfa rafrænt í verð-
bréfamiðstöð og að leyfilegt væri að
veðsetja stofnfjárbréfin að tilskildu
samþykki stjórnar.
Þá hefur stjórn SPV fengið heim-
ild til stofnfjáraukningar sem gildir í
allt að þrjú ár. Heimildin nemur allt
að 30-földun á stofnfé og skulu stofn-
fjáraðilar hafa forkaupsrétt að henni
í hlutfalli við stofnfjáreign sína.
Fram kom í ræðu Jóns Þ. Jóns-
sonar stjórnarformanns að ástæða
fyrir heimild til stofnfjáraukningar
væri að styrkja eiginfjárstöðu SPV
þegar tækifæri myndu bjóðast til efl-
ingar hans, innanlands sem utan.
Sigríður Smith, sem verið hefur í
stjórn frá árinu 1994 og stjórnarfor-
maður 2001 til 2003, hefur látið af
störfum. Ásgeir Þór Árnason lög-
maður tók hennar sæti í stjórninni.
Morgunblaðið/Jim Smart
Ekki tak-
mörk á at-
kvæðavægi
Skráning og afhending gagna
Ræ›a formanns
Hrund Rudolfsdóttir, forma›ur stjórnar SVfi
Ávarp
Valger›ur Sverrisdóttir, vi›skiptará›herra
Sk‡rsla um stö›u og horfur í fljónustugreinum
á Íslandi
Katrín Ólafsdóttir, a›júnkt Háskólanum í Reykjavík
Innovation in the service sector - characteristics
and policy consequences
Per Koch, a›sto›arframkvæmdastjóri NIFU STEP,
Rannsóknarstofnunar um n‡sköpun í Noregi
A›ger›ir til a› bæta samkeppnishæfni
fljónustufyrirtækja
Gu›mundur Arason, framkvæmdastjóri Securitas hf.
Annáll SVfi 2005
Sigur›ur Jónsson, framkvæmdastjóri SVfi
Veitingar - Afhending gagna fyrir a›alfund
Hef›bundin a›alfundarstörf
D A G S K R Á
12:45
13:00
A›alfundur
SVfi – Samtaka verslunar og fljónustu
haldinn 21. mars 2006 á Grand Hótel Reykjavík
fiema fundarins:
N‡sköpun í fljónustu
Á fundinum ver›ur kynnt vi›amikil úttekt á stö›u
og horfum í íslenskum fljónustugreinum
14:40
15:00
Fundarstjóri:
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins
Per Koch
Valger›ur Sverrisd.
Katrín Ólafsdóttir
Hrund Rudolfsdóttir
Gu›mundur Arason
Sigur›ur Jónsson
Vinsamlega tilkynni› flátttöku í síma 511 3000
e›a me› tölvupósti til svth@svth.is
E
in
n
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
3
62
.0
0
9
Vilhjálmur Egilsson
!
! " # ! #$
% &
&
!" #$%
&'
&"
%
() %" %
( "%
'%* #% + %*
,
,
& %
-./01 &21#%
3
' $()*
%
& .0 + %*
4 %*
4. 02% 5
%*
672
89& %
8.
:;"" %". 0 0 %
< %% 0 %
+
* * ,!-!
& * =;220 -1>" -0%*
, .
/*
5?=@
-A0
0 0
/
/
/
/
/
/
/
/
; %" 1
; 0 0
/ /
/ /
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
B /CD
B CD
B
CD
B CD
B CD
/
B CD
B /CD
B CD
B CD
B CD
/
B CD
/
B CD
B CD
/
/
/
/
/
B CD
/
/
/
/
B
CD
4 * 0
*" %
: #0 A *" E
( -
/
/
/
/
/
/
/
/
< 0 A )$
:4 F "% &2 *
0
/
/
/
/
/
/
/
/
6 *G
-H8 C
C
&:-=
!I
C
C
?? J,I
C
C
J,I ( %
6
C
C
5?=I !K L%
C
C