Morgunblaðið - 17.03.2006, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 17. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
HREYFANLEIKI neytenda á fjár-
málamarkaði á Norðurlöndum er
minni en á öðrum samkeppnismörk-
uðum. Um 4–5% viðskiptavina nor-
rænna banka fluttu viðskipti sín á
milli banka á árinu 2004, en það er
mjög lágt hlutfall í samanburði við
aðra markaði. Þetta gefur vísbend-
ingu um að samkeppnin á milli banka
á Norðurlöndum sé lítil.
Þetta er meðal þess sem fram kem-
ur í skýrslu sem unnin var á vegum
norrænu ráðherranefndarinnar um
hreyfanleika viðskiptavina á milli
fjármálastofnana á Norðurlöndum,
samanburð á vöxtum, þjónustugjöld-
um og ýmsum fleiri þáttum er varða
fjármálamarkaðinn. Henrik Juul,
lektor við viðskiptaskólann í Kaup-
mannahöfn hafði
umsjón með rann-
sókn sem skýrsl-
an byggist á.
Í skýrslunni
segir að vaxta-
kostnaður og
þjónustugjöld
sem viðskiptavinir
fjármálastofnana
á Norðurlöndum
greiða sé mestur á Íslandi, næst
mestur í Svíþjóð, svo í Noregi og Dan-
mörku, en hann er lægstur í Finn-
landi.
Gísli Tryggvason, talsmaður neyt-
enda, segir að skýrslan staðfesti grun
margra, og sé í samræmi við niður-
stöður í úttekt Neytendasamtakanna
frá því fyrr í vetur, um að kjör við-
skiptavina íslensku bankanna séu lak-
ari og líklega mun lakari en kjör við-
skiptavina hinna norrænu bankanna.
Það eigi ekki síst við um kjörin á
íbúðalánum, sem séu stærsti einstaki
þátturinn og mikið í umræðunni núna.
Í umræðunni að undanförnu hefur
verið rætt um þann möguleika að
gera Íbúðalánasjóð að heildsölu-
banka, eftir að Halldór Ásgrímsson
forsætisráðherra vék að því á frétta-
mannafundi síðastliðinn mánudag.
„Ég tel að það komi því aðeins til
greina að samhliða verði gerðar
breytingar sem auka neytendavernd
og samkeppni um lánakjör neytenda.
Með neytendavernd á ég við að það er
ekki í takt við aðrar neytendareglur
að áhætta af verðbólguþróun sé alfar-
ið hjá neytandanum. Ég hef ekki
komist að niðurstöðu, en ég er að
skoða hvort núverandi fyrirkomulag
á tengingu neytendalána, þar á meðal
íbúðalána, við vísitölu neysluverðs,
stangist á við réttindi og hagsmuni
neytenda. Ef ég kemst að þeirri nið-
urstöðu mun ég leggja fram tillögur í
þeim efnum. Þar kemur margt til
greina,“ segir Gísli Tryggvason.
Lítil samkeppni á fjármálamarkaði
Gísli Tryggvason
Aðeins 4–5% viðskiptavina norrænna
banka fluttu viðskipti sín í fyrra
● TILKYNNT var um flöggun inn í
Kauphöllina í gær um að hlutur
Landsbankans í Glitni hefði farið úr
4,99% í 5,004%, alls 707,3 milljónir
hluta. Af eignarhlut bankans eftir við-
skiptin eru 689 milljónir hluta vegna
framvirkra samninga, eða 4,87% af
heildarhlutafé Glitnis.
Landsbanki kominn
með yfir 5% í Glitni
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● ÚRVALSVÍSITALAN hækkaði um
0,62%, fór í 6.183 stig, og krónan
styrktist um 1% í gær. Viðskipti með
hlutabréf námu 11,4 milljörðum
króna, þar af 4,5 milljörðum með bréf
KB banka. Bréf Alfesca hækkuðu um
5,09%, bréf Marels um 3,63% og
Flögu um 3,56%. Bréf Glitnis lækkuðu
um 0,52% og Actavis um 0,5%.
Krónan styrktist um 1%
● ICELANDAIR og SAS hafa und-
irritað samkomulag um áframhald-
andi samstarf félaganna um gagn-
kvæm afsláttarkjör. „Það er okkur
mikið ánægjuefni að hafa gengið frá
þessum samningi, því með honum
tryggjum við farþegum okkar hag-
stæð fargjöld í framhaldsflugi um all-
an heim með SAS,“ er haft eftir
Gunnari Má Sigurfinnssyni, fram-
kvæmdastjóra sölu- og markaðs-
sviðs Icelandair, í fréttatilkynningu.
Icelandair flýgur tvisvar á dag til
Kaupmannahafnar og fjölgar ferðum
upp í fjórar á dag í sumar og félagið
flýgur daglega til Óslóar og Stokk-
hólms. Fjölmargir farþega félagsins
fljúga með SAS áfram bæði innan
Norðurlandanna og til fjarlægari
staða.
SAS og Icelandair
starfa áfram saman
● SPRON hefur ákveðið að markaðs-
setja e-kortið á Norðurlöndunum,
einkum Noregi, Danmörku og Finn-
landi. Á fréttavefnum Finextra segir að
útrás e-kortsins verði gegnum sam-
starfsaðila erlendis, en kortið er drifið
af XLS greiðslutækni Welcome fyr-
irtækisins. Segir í fréttinni að eftir að
e-kortinu var komið á laggirnar hér á
landi hafi markaðshlutdeild SPRON á
greiðslukortamarkaði aukist um 10%
og að vegna þess hve norrænu og ís-
lensku markaðirnir séu líkir vonist
SPRON til að geta náð góðum árangri
erlendis með e-kortinu.
E-kortið í útrás
● SKÝRR hefur lokið áreið-
anleikakönnun vegna kaupa á
58,7% eignarhlut í EJS hf. Í kjölfar-
ið hafa verið undirritaðir endanlegir
samningar um kaupin. EJS verður
dótturfélag Skýrr en velta EJS-
samstæðunnar á síðasta ári nam
um 3,6 milljörðum króna. Þar
starfa um 150 starfsmenn.
Auk móðurfélagsins teljast til
samstæðunnar dótturfyrirtækin
Eskill, iSoft, Símland ehf. og Hýs-
ing.
Aðalfundur í EJS hf. var haldinn
á fimmtudaginn 9. mars þar sem
kosin var ný stjórn fyrir félagið.
Kaup á EJS frágengin