Morgunblaðið - 17.03.2006, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 17.03.2006, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 17. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Er Moggakallinn ekki læs? Það er ekki stafur um það í Biblíunni né Rómarsáttmálanum að ekki megi taka upp evruna, og ekki heldur ekki svo mikið sem ýjað að því í „Litlu gulu hæn- unni“. Tekjuskattur er lagð-ur á alla styrki semsjúklingar fá úr sjúkra- og styrktarsjóðum stéttarfélaganna. Hins vegar hefur það ekki alltaf verið svo. Eftir því sem blaðamaður kemst næst var endurgreiðsla á sjúkra- og endurhæfingar- kostnaði almennt álitin skattfrjáls allt fram til árs- ins 2002, en þá varð ákveð- in stefnubreyting hjá skattayfirvöldum og fóru einstaka starfsmenn hjá Skattstofunni að leggja á styrkina skatt. Samkvæmt upplýs- ingum blaðamanns voru mörg þessara mála kærð og felld niður vegna formgalla. Árið 2004 gaf ríkisskattstjóri hins vegar út ákvarðandi bréf um að fyrrgreind- ir styrkir skyldu vera stað- greiðsluskattskyldir og á síðasta ári kom úrskurður frá yfirskatta- nefnd sem staðfesti þá túlkun rík- isskattstjóra á skattalögum. Þess ber að geta að ekki voru gerðar neinar breytingar á skattalögum því samfara, hér var aðeins um að ræða nýja og þrengri túlkun á skattalögum. Aðspurður segir Indriði H. Þor- láksson ríkisskattstjóri að reglan sé sú að allar tekjur sem menn fái myndi skattstofn og ekki sé gerð- ur greinarmunur á hvaðan pening- arnir komi eða í hvað þeir séu not- aðir. Hins vegar sé heimild í skattalögunum til að lækka tekju- skattstofninn. Samkvæmt heimildum blaða- manns hefur þessari nýju túlkun verið mótmælt af ýmsum stéttar- félögum, auk þess sem málið hefur verið til skoðunar hjá BRSB og ASÍ. Samkvæmt upplýsingum frá Gunnari Páli Pálssyni, formanni VR, hefur félagið mótmælt þessari nýju túlkun skattayfirvalda á skattalögunum bæði við forsætis- ráðherra og fjármálaráðherra, en án árangurs. Að mati Magnúsar Norðdahl, lögfræðings ASÍ, er fráleitt að skattleggja sjúkra- styrki sem og líkamsræktarstyrki. „Við erum að veita fjármuni sem spara samfélaginu gífurlegan kostnað, bæði í forvarnarstyrkjun- um og eins þegar við endurgreið- um kostnað,“ segir Magnús og bendir á að sá kostnaður sé ekki endurgreiddur að ástæðulausu. Aðspurður segir Gunnar Páll á bilinu 9–10 þúsund félagsmenn VR hafa fengið greidda sjúkra- og fræðslustyrki á síðasta ári gegn framvísun reiknings fyrir útlögð- um kostnaði. Alls greiddi félagið rúmlega 100 milljónir króna í slíka styrki, sem jafngildir því að hver og einn félagsmaður hafi fengið um 10 þúsund króna styrk. Að- spurður um hvað falli undir sjúkrastyrki nefnir Gunnar Páll hluti eins og gleraugnakaup, sjúkraþjálfun, sálfræðikostnað, tannlæknakostnað, hjálpartækja- kaup, líkamsrækt og krabba- meinsskoðun, svo fátt eitt er nefnt. Eins og fyrr er getið segir rík- isskattstjóri að hægt sé að sækja um undanþágu frá skattgreiðslum af sjúkrastyrkjum. Þess ber þó að geta að ekki er um að ræða nið- urfellingu á skatti af tilteknum styrkjum, þ.e. að ákveðnar tekjur séu undanskildar skattstofni, heldur er um að ræða ívilnun vegna mikils útlagðs kostnaðar, t.d. vegna veikinda. Eftir því sem blaðamaður kemst næst er for- senda slíkrar ívilnunar að viðkom- andi sýni fram á að hann hafi orðið fyrir verulegri tekjuskerðingu vegna veikinda sinna og geti því ekki séð fyrir sér. Að mati Gunnars Páls væri eðli- legt að bæði sjúkra- og fræðslu- styrkir væru undanþegnir skatti enda um að ræða forvarnar- og endurhæfingarstyrki sem komi samfélaginu til góða. Hins vegar leggur hann áherslu á að setja þurfi skýran ramma utan um styrkina til að koma í veg fyrir misnotkun á þeim. Sjúkrasjóðir eru nokkurs konar viðlagasjóðir Að sögn Ögmundar Jónassonar, alþingismanns og formanns BSRB, hafa sjúkrastyrkir og skattlagning á þeim verið rædd í stjórnum sjúkrasjóða sem heyra undir regnhlíf BSRB sem og í rétt- indanefnd bandalagsins þar sem menn vildu að málið yrði tekið upp og að leitað yrði leiða til þess að tryggja að greiðsla sjúkrastyrkja yrði skattfrjáls. Ögmundur fundaði nýverið með ríkisskatt- stjóra um málið. „Eftir þann fund hef ég sannfærst um að það verði að breyta lögum og kveða skýrt og afdráttarlaust á um skattfrelsi sjúkrastyrkja þar,“ segir Ög- mundur og tekur fram að næst á dagskrá sé að ganga á fund fjár- málaráðherra og óska eftir því að hann beiti sér fyrir slíkri laga- breytingu. Bendir Ögmundur á að sjúkrasjóðir séu í raun sameigin- legur sparnaður sem fólk hafi komið sér upp. „Þetta er eins kon- ar viðlagasjóður. Bæði er fráleitt að skattleggja þessa peninga með hliðsjón af því hvaðan þeir eru komnir sem og í hvaða augnamiði. Síðan er einnig á hitt að líta að það er eins ranglátt og hugsast getur að skattleggja fólk sem er að fá greiðslur upp í kostnað vegna sjúkdóma,“ segir Ögmundur. Fréttaskýring | Skattlagning sjúkra- og fræðslustyrkja Kalla eftir lagabreytingu Að sögn ríkisskattstjóra mynda allar tekjur sem menn fá skattstofn Sjúkrastyrkir bera 36% tekjuskatt. Fram til ársins 2002 voru sjúkrastyrkir skattfrjálsir  Í Kastljósi Sjónvarpsins sl. þriðjudagskvöld var rætt við Árna Heimi Jónsson, kennara við Menntaskólann í Reykjavík, en hann greindist með krabbamein fyrir rúmu ári. Fram kom að í fyrra greiddi hann að jafnaði 10 þúsund krónur í komu- og rann- sóknargjöld á mánuði. Hann sótti um styrk til sjúkrasjóðs Kenn- arasambandsins og fékk 53 þús- und krónur í styrk, en bar að greiða 36% tekjuskatt af upp- hæðinni í staðgreiðsluskatt. Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is smáauglýsingar mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.