Morgunblaðið - 17.05.2006, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 17.05.2006, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2006 13 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI                !  "# #                                   !" #$%  &'   &"    %  #%  () %" %  ( "%   '%* #% + %*  ,  ,  &  %  -./01 &21#%  3       %   & .0 + %*   4 %*  4. 02%   5 %*   672  89& % 8. :;"" %". 0  0 %  < %%   0 %     ! & * =;220   -1>" -0%*  "#  $%  5?=@ -A0   0 0       /   /         / / / / / / / / / / ; %" 1 ;  0 0   / / / / / /  / / / / / /  / / / / / B  CD B / CD / B CD B CD B  CD / B  CD B  CD / B  CD B /CD / B  CD B CD B / CD / / / / / B CD / / / / / 4 * 0   *" % : #0 A  *" E ( -               /        / / /  /  / / / / /                                                      < 0   A )$   :4 F "%  &2 *  0      /  / / /  /  / / / / / ● HEILDARVIÐSKIPTI í Kauphöll Ís- lands í gær námu um 13,6 millj- örðum króna. Þar af voru viðskipti með hlutabréf fyrir 5,6 milljarða. Úrvalsvísitala aðallista Kauphall- arinnar hækkaði um 1,9% í gær og er lokagildi hennar 5.746 stig. Hlutabréf flestra félaga sem viðskipti var með hækkuðu í gær. Mest hækkun varð á bréfum Landsbankans, eða 3,2%, og Kaupþings banka, 2,6%. Mest lækk- un varð hins vegar á bréfum Alfeska og Avion Group, eða 0,8%. Krónan styrktist um 1,5% í gær. Gengisvísitalan var 126,65 stig í upp- hafi dags en 124,70 stig í lokin. Velta á millibankamarkaði nam 15,5 millj- örðum króna. Gengi dollars er nú 70,42 krónur og evru 90,30 krónur. Hlutabréf hækka og krónan styrkist ● ACTAVIS Group hefur aukið hlut sinn í sér sjálfu, samkvæmt tilkynn- ingu til Kauphallar Íslands. Keypt voru hlutabréf að nafnvirði 26,5 milljónir króna á genginu 65,3, sem gerir kaup upp á 1.730 milljónir króna. Eftir viðskiptin á Actavis 38,5 milljónir hluta í eigin félagi eða um 1,1% af heildarhlutafé. Actavis kaupir í Actavis ● VEGNA fregna í breskum miðlum um ágreining um bókhaldslega með- ferð á samningi milli Excel Airways og Alpha Airports Group hefur stjórn Avion Group, móðurfélags Excel, ákveðið að fela KPMG Endurskoðun að rannsaka málið af hálfu Avion. Í yfirlýsingu Avion til Kauphallar Ís- lands segist félagið ekki vita til þess að neitt óeðlilegt hafi átt sér stað við bókhaldslega meðferð viðskipta milli umræddra félaga í Bretlandi, sem fram fóru í október á síðasta ári. Í kjölfar tilkynningar frá Alpha Air- ports til kauphallarinnar í London þann 10. maí sl. fóru breskir fjöl- miðlar að nefna Excel Airways á nafn í sínum fréttum. Yfirlýsing frá Avion ● EIMSKIP hefur gengið frá kaupum á 55% hlut í breska fyrirtækinu Inn- ovate Ltd, en fyrirtækið sérhæfir sig í geymslu og dreifingu á kældum og frystum afurðum. Upphaflega var stefnt að kaupum á 50% hlutafjár í Innovate, líkt og greint var frá í lok mars sl. Með kaupum á 55% hluta- fjár er Innovate tekið inn í efnahag og rekstur Eimskips og þar með móð- urfélagsins Avion Group. Að ósk selj- anda er kaupverðið trúnaðarmál. Kaupin eru fjármögnuð með blöndu af eigin fé og lánsfé. Velta Innovate á þessu ári er áætluð um 15 milljarðar króna. Eimskip með 55% í Innovate EFNAHAGSHORFUR á Íslandi eru áfram öfundsverðar, en vaxandi ójafnvægi í hagkerfinu er þó áhyggjuefni um þessar mundir. Styrkja þarf enn frekar umgjörð ríkisfjármála, þörf er á meiri hækk- un stýrivaxta og Seðlabankinn ætti að beita ströngu peningalegu að- haldi. Þá er nauðsynlegt að breyta Íbúðalánasjóði hið fyrsta. Þetta er meðal niðurstaðna sendinefndar Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins við lok reglulegra við- ræðna hennar við fulltrúa íslenskra stjórnvalda og atvinnulífs. Nefndin hitti meðal annars fulltrúa Seðla- banka Íslands, fjármálastofnana, Fjármálaeftirlitsins, ráðuneyta og verkalýðssamtaka og safnaði að auki ýmsum tölulegum upplýsing- um um íslenskt efnahagslíf. Að þessu sinni var sérstök áhersla lögð á að kanna stöðu bankanna, að sögn forsvarsmanns sendinefndar- innar, Benjamin Hunt. Hann sagði jafnframt að hann væri bjartsýnn á að íslensk stjórnvöld tækju ábend- ingar nefndarinnar alvarlega, enda væri það allra hagur. Þá sýndi reynslan að íslensk stjórnvöld brygðust rétt við í efnahagsmálum. Í skýrslu sendinefndarinnar seg- ir að umframeftirspurn, mikil og vaxandi verðbólga, mikill viðskipta- halli og mjög skuldsett heimili og fyrirtæki – einkum bankar – valdi ókyrrð á fjármálamörkuðum sem ógni stöðugleika til skamms tíma. „Ef litið er um öxl hefði mátt bregðast við þessum kringumstæð- um með betur samhæfðum aðgerð- um, með aðhaldssamari ríkisfjár- málum og umbreytingu á Íbúða- lánasjóði.“ Sendinefndin gerir ráð fyrir að hagvöxtur verði um 4% í ár en nær 1% á næsta ári. Búist er við að við- skiptahallinn dragist aðeins lítils háttar saman í ár, en mikil aukning útflutnings umfram innflutning og verulega minni eftirspurn innan- lands muni minnka viðskiptahall- ann um u.þ.þ. helming árið 2007. Nefndin segir að væntanlega verði verðbólguþrýstingur talsverð- ur út árið vegna áhrifa ört hækk- andi launa, mikilla umsvifa á hús- næðismarkaði og lækkunar á gengi krónunnar. Að því gefnu að kjara- samningar breytist ekki umtalsvert í nóvember á þessu ári megi gera ráð fyrir að verðbólga fari lækk- andi út árið 2007 og nálgist verð- bólgumarkmið Seðlabankans á ný. Aðhald í fjármálum Í skýrslunni er tekið fram að þörf sé á viðeigandi aðgerðum til að tryggja aðhald í fjármálum ríkis og sveitarfélaga. Mögulegar aðhalds- aðgerðir gætu tekið til fyrirhug- aðra skattalækkana, fjárfestinga hins opinbera og samneyslu. Bæta þurfi og treysta fjárlagagerð og eftirfylgni útgjaldaáætlana. Slík umgjörð ríkisfjármála yki áhrifa- mátt peningastefnunnar og drægi þannig úr sveiflum. Nefndin segir að fjármálakerfið virðist traust en vinna þurfi áfram að því að draga úr veikleikum þess. Álagspróf Seðlabanka og Fjármála- eftirlitsins gefi til kynna að eig- infjárstaða bankanna geti staðist mikil áföll og þeir hafi tekið mik- ilvæg skref til að mæta fjármögn- unarþörf til skemmri tíma jafnvel þótt skilyrði á alþjóðamörkuðum versnuðu verulega. Vaxandi skiln- ingur bankanna á þörf fyrir vand- aða lausafjárstýringu ætti að draga úr hættunni á að svipaðir veikleikar komi fram í framtíðinni. Að auki hafa bankarnir byrjað að draga úr krosseign á hlutabréfum og þannig gert eignarhald gagnsærra en áð- ur. Loks segir sendinefnd Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins nauðsynlegt að umbreyta Íbúðalánasjóði hið fyrsta. Óheilbrigð samkeppni á milli bank- anna og hins ríkisstyrkta Íbúða- lánasjóðs hafi grafið undan áhrifa- mætti peningastefunnar, aukið ójafnvægið í hagkerfinu að nauð- synjalausu og ógnað fjármálastöð- ugleika. „Í nútíma iðnvæddu hag- kerfi eins og á Íslandi þar sem eru samkeppnisfær einkarekin fjár- málafyrirtæki á heimsvísu er engin þörf fyrir viðamikla þátttöku hins opinbera á húsnæðislánamarkaði. Breyting Íbúðalánasjóðs í einka- rekna heildsölufjármálastofnun myndi varðveita mikilvæga stærð- arhagkvæmni í fjármögnun á hús- næðislánum.“ Efnahagshorfur á Íslandi áfram öfundsverðar Morgunblaðið/Kristinn Kynning Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins gerði grein fyrir niðurstöðum sínum á fréttamannafundi í gær. Eftir Ragnhildi Sverrisdóttur rsv@mbl.is JÁKVÆTT er hvernig íslensku bankarnir brugðust við vegna við- varana í sambandi við erlenda skuldastöðu þeirra, að sögn Paul Rawkins, eins af yfirstjórnendum hjá alþjóðlega matsfyrirtækinu Fitch Ratings. Þá segir hann að það hafi verið rétt hjá bönkunum að greina frá áætlunum sínum um endurfjármögnun þeirra og að hjálpa til við að endurnýja traust á íslenskt efnahagslíf. Þetta kemur fram í viðtali við Rawkins á frétta- vef Bloomberg-fréttastofunnar. Rawkins er höfundur skýrslu sem Fitch Ratings sendi frá sér þann 21. febrúar síðastliðinn, en hún varð upphafið á því að gengi krónunnar tók að lækka auk þess sem mikil umræða um íslenskt efnahagslíf hófst í kjölfarið í útlönd- um. Hann segir í samtalinu við Bloomberg að gegnsæi hafi aukist hjá íslensku bönkunum og að þeir vilji veita eins miklar upplýsingar um starfsemi sína og þeir mögulega geti. Ísland sé ekki nýmarkaðsland heldur sé hagkerfið háþróað og bankarnir einnig. Vita meira núna Fram kemur í fréttinni á Bloom- berg að krónan hafi fallið um 31% gagnvart evru í kjölfar þess að Fitch breytti horfum á lánshæfis- mati ríkissjóðs vegna skuldbindinga í innlendri og erlendri mynt úr stöðugum í neikvæðar. Lánshæfis- einkunn ríkissjóðs var þó ekki breytt. Í tilkynningu frá Fitch Ratings í febrúarmánuði síðastliðnum, þegar fyrirtækið breytti horfum á láns- hæfismati ríkissjóðs var haft eftir Rawkins, að ástæða breytingarinn- ar hafi verið „vísbendingar um tals- vert aukna áhættu í þjóðarbúskapn- um vegna ósjálfbærs viðskiptahalla og hratt vaxandi hreinna erlendra skulda.“ Þá sagði í tilkynningunni í febrúar að ýmsar raddir hefðu ver- ið uppi um að þensla í íslenska hag- kerfinu sé mikil, svo jaðri við of- hitnun. Meðal þeirra einkenna sem megi nefna séu vaxandi verðbólga, hröð útlánaaukning, hækkandi eignaverð, verulegur viðskiptahalli og stigvaxandi erlend skuldasöfnun. Í viðtali Rawkins við Bloomberg- fréttastofuna í gær segir hann að þegar skýrsla fyrirtækisins hafi verið skrifuð í febrúar, hafi ekki legið fyrir upplýsingar um hvernig íslensku bankarnir ætluðu að takast á við erlendar skuldir sínar. „Við vitum svolítið meira núna og aukið gegnsæi myndi koma Íslandi á sama stað og lönd eins og Ástralía og Nýja-Sjáland. Bankarnir hafa augljóslega verið að auka upplýs- ingagjöf sína,“ segir Rawkins. Höfundur skýrslu Fitch jákvæður í garð bankanna AIR Atlanta Icelandic hefur gengið frá samningi um leigu fraktflug- vélar til Yangtze River Express í Kína til 12 mánaða. Er þetta í fyrsta skipti sem Air Atlanta Icelandic leigir flugvél til meginlands Kína. Í tilkynningu segir að Yangtze River Express sé eitt af þremur fraktflug- félögum í Kína, staðsett í Sjanghæ. Flugfélagið sinnir einnig hraðflutn- ingum fyrir UPS. Samið hefur verið um leigu á einni Boeing 747- 200SF, sem verður afhent Yangtze River Express þann 24. júní nk. Fé- lagið er að hluta í eigu China Air- lines, sem er eitt stærsta fragtflug- félag í heimi. Atlanta leigir vél til Kína VERÐ á áli á heimsmarkaði fór yfir 3.000 dollara á tonnið í síðustu viku en lækkaði lítillega í þessari viku og var um 2.940 dollarar í gær. Verðið hefur ekki verið hærra í 18 ár. Í árs- byrjun kostaði tonnið tæplega 2.300 dollara. Ragnar Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri fjármála- og stjórn- unarsviðs Norðuráls, var spurður um þróun á álverði og sagði hann að meðalverðið í apríl hefði verið lið- lega 2.600 dollarar fyrir tonnið. Nú sé verðið í kringum 3.000 dollara. „Verðið nú er því í sögulegu sam- hengi mjög hátt,“ sagði Ragnar. Álverð hátt í sögulegu samhengi ● FL Group keypti í gær 80 milljón hluti á nafnverði í Glitni á genginu 17,1 króna á hlut. Kaupverðið var því um 1.368 milljónir króna. Eftir kaupin eiga FL Group og fjárhagslega tengdir aðilar um 2.844 milljónir hluta í Glitni að nafnverði, eða rúmlega 20% af heildarútistandandi hlutafé í Glitni. Í byrjun þessa mánaðar jók FL Group hlut sinn í Glitni um 2,7% þegar félagið keypti 380 milljón hluti á geng- inu 16,7 krónur á hlut eða fyrir sam- tals liðlega sex milljarða króna. FL Group eykur hlut sinn í Glitni 6 *G -H8    C C &:-= ! I    C C ? ? J,I      C C J,I ( % 6      C C 5?=I !K L%  C C

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.