Morgunblaðið - 17.05.2006, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 17.05.2006, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR – allt til framkvæmda – allt til bygginga Þegar fjárfesta á í tækjum er ómetanlegt að sérfróðir fagaðilar séu með í ráðum. Við hjá MEST fylgjum viðskiptavinum okkar alla leið og veitum þeim alhliða fagþjónustu. MEST býður upp á Metabo rafmagnsverkfæri fyrir fagaðila og framkvæmdafólk. Hafðu samband við söluráðgjafa okkar fáðu nánari upplýsingar í síma 4 400 400. Kraftur, gæði og öryggi Láttu nú bévaða júðana hafa það óþvegið, Óli minn. Söngvakeppni evr-ópskra sjónvarps-stöðva verður hald- in í vikunni, og er þetta í 51. skiptið sem keppnin er haldin. Undankeppnin fer fram annað kvöld og 10 efstu þjóðirnar þar komast í aðalkeppnina sem fram fer á laugardagskvöld. Keppnin fór fyrst fram árið 1956 í borginni Lug- ano í Sviss en þá tóku sjö þjóðir þátt í henni, Hol- lendingar, Belgar, Þjóð- verjar, Frakkar, Lúxem- borgarar ásamt gestgjafaþjóðinni, sem bar sigur úr býtum með lagið Refrain sem sungið var af Lys Assia. Í upphafi var keppnin að- allega útvarpskeppni en hún var einnig send út í sjónvarpi fyrir þá sem áttu sjónvarp. Keppnin sjálf er hugarfóstur Marcel Baison, starfsmanns Sambands evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU, og er hún að einhverju leyti byggð á San Remo tónlistarhátíðinni. Keppnin þótti kjörin til að prufukeyra möguleika beinnar útsendingar, en sjónvarpstæknin var þá enn að slíta barnsskónum. Mikill kostnaður við þátttöku Talsverður hópur fylgir Silvíu Nótt til keppninnar í Aþenu og eru meðal annars „kærasti“ hennar, Romario, og Pepe vinur hans, tveir lífverðir og höfundar lagsins ásamt danshöfundum með í för. Leiða má líkur að því að ærinn kostnaður fylgi því að senda út hóp til keppninnar en Bjarni Guð- mundsson, framkvæmdastjóri RÚV-sjónvarps, gat ekki gefið upp kostnað vegna þátttöku ís- lenska hópsins en gat þó upplýst að kostnaðurinn rynni úr sjóðum RÚV, en á annan tug manns er í hópnum. Bjarni sagði hins vegar að gestgjafaþjóðin nyti aðstoðar frá öðrum keppnisþjóðum í gegn- um EBU vegna kostnaðar við keppnishald en að öðru leyti þyrfti ríkissjónvarpsstöð að standa undir kostnaði. Þó hefðu menn nýtt sér ýmis tækifæri sem hefðu myndast við keppnishaldið og minntist Bjarni sérstaklega á keppni Dana árið 2001 sem haldin var í Parken íþróttaleikvanginum í Kaup- mannahöfn. Bjarni sagði að auk þess sem þeir hefðu selt inn á að- alkeppnina hefðu þeir einnig selt inn á æfingar fyrir keppni. Einnig hefðu þeir selt sýningarréttinn á Netinu og nýtt sér landkynn- inguna sem fylgir í kjölfarið. Úkraínumenn nutu einnig góðs af keppninni í fyrra, meðal annars kynntu þeir landið rækilega auk þess sem þeir breyttu reglugerð- um um vegabréfsáritanir inn í landið í leiðinni. Bjarni taldi erfitt að sýna hagnað af slíkri keppni, mögulegt væri að koma út á núll- inu en hann taldi að þjóðarbúið myndi njóta góðs af slíkri keppni. Íslandi spáð sigri í upphafi Ísland tók fyrst þátt í Evró- visjón í Bergen í Noregi árið 1986. Eins og frægt er orðið þá var það ICY-flokkurinn sem reið á vaðið fyrir Íslands hönd með lagið Gleði- bankinn. Mikil eftirvænting ríkti hér á landi fyrir keppnina og stóð meðal annars í Morgunblaðinu á keppnisdag, hinn 3. maí, að ís- lenski flokkurinn hefði fengið ým- iss konar tilboð og að margir hefðu spáð þeim sigri. Þrátt fyrir gríð- arlegar væntingar náði íslenski flokkurinn ekki tilskildum árangri og lenti í 16. sæti, sem hefur verið nokkurs konar einkennissæti okk- ar því að næstu tvö ár á eftir lentu íslensku framlögin í 16 sæti auk þess sem Selma Björnsdóttir lenti í 16. sæti í undankeppninni í fyrra. 2. sætið besti árangur okkar Eins og áður hefur komið fram lentu Íslendingar í 16. sæti fyrstu þrjú árin og árið 1989 vermdu Ís- lendingar botninn með laginu Það sem enginn sér í flutningi Daníels Ágústs Haraldssonar. Árið 1990 fengu Íslendingar uppreisn æru og lentu í fjórða sæti með lagið Eitt lag enn í flutningi Grétars Örvarssonar, Sigríðar Bein- teinsdóttur og hljómsveitarinnar Stjórnarinnar. Mikill fögnuður braust út á Íslandi í kjölfarið enda glæsilegur árangur. Miklar vænt- ingar voru því bundnar til fram- lags næsta árs, Nínu í flutningi Eyjólfs Kristjánssonar og Stefáns Hilmarssonar, en það lag hreppti 15. sætið og voru vonbrigði þjóð- arinnar nokkur. Var því brugðið á það ráð að senda Sigríði og Grétar út á ný, og nú með aðstoð Sigrúnar Evu Ármannsdóttur, og þótti þessi hópur gríðarlega sigur- stranglegur. Hópurinn náði þó þokkalegum árangri, 7. sætinu, en árin eftir það reyndust mögur, og datt Ísland út úr keppninni árið 1997 í eitt ár eftir flutning Páls Óskars á laginu Minn hinsti dans. Má segja að brottfall Íslands í eitt ár hafi gefið þjóðinni vítamín- sprautu því árið 1999 náði Selma Björnsdóttir 2. sæti með lagið All out of luck. Er það besti árangur sem Ísland hefur náð og mátti litlu muna á tímabili þegar Íslands vermdi efsta sætið um stund. Síð- an hefur Ísland misst út eitt ár, ár- ið 2002, þegar lagið Angel í flutn- ingi Two Tricky varð neðst. Nú þarf að keppa í undankeppni til að komast í aðalkeppnina, sökum aukins fjölda keppnisþjóða. Fréttaskýring | Undankeppni Evróvisjón fer fram í Aþenu á morgun Ögurstund hjá Silvíu Nótt Á annan tug manna fylgir Silvíu til Grikk- lands og er henni til halds og trausts Silvía Nótt mætir til veislu í Aþenu. Sigur hefur fært mörgum frægð og frama  Fjölmargir tónlistarmenn hafa hafið feril sinn í söngvakeppni sjónvarpsstöðvanna. Meðal ann- ars sló ABBA-hópurinn í gegn með lagið Waterloo árið 1974, Olivia Newton-John tók þátt sama ár, Julio Iglesias tók þátt árið 1970, Cliff Richards árið 1968, The Shadows tóku þátt 1975 og stórstjarnan Celine Dion sigraði í keppninni árið 1988. Einnig má nefna að lagið Volare var gert frægt í keppninni árið 1958. Eftir Sigurð Pálma Sigurbjörnsson siggip@mbl.is Innihaldið skiptir máli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.