Morgunblaðið - 17.05.2006, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
KJÖR ALDRAÐRA
Alls skrifuðu 12.806 öryrkjar og
eldri borgarar undir áskorun til heil-
brigðis- og tryggingaráðherra um að
bæta kjör þessara hópa og afnema
tekjutengingu við maka, en áskor-
unin var afhent ráðherra á fjölmenn-
um fundi í Háskólabíói í gær. Kveður
Stefán Ólafsson prófessor hagsmuni
hópanna hafa verið fyrir borð borna í
góðærinu sem ríkt hefur frá 1995.
Samgöngur bitbein
Ný samgöngustefna Reykjavík-
urborgar var samþykkt eftir ríflega
tveggja tíma umræður á fundi borg-
arstjórnar í gær. Sögðu sjálfstæð-
ismenn þurfa að taka meira tillit til
einkabílsins, en í samgöngustefn-
unni er gert ráð fyrir meiri hlut hjól-
reiða, almenningssamgangna og
gangandi vegfarenda.
Ásakanir um mismunun
Nefnd á vegum Evrópuráðsins í
Strassborg sakar Dani um að mis-
muna minnihlutahópum og þá eink-
um múslímum. Eru stjórnvöld m.a.
sögð torvelda innflytjendum að ger-
ast ríkisborgarar og ákveðnir fjöl-
miðlar eru sagðir sýna minni-
hlutahópa í slæmu ljósi.
Vilja hærri byrjunarlaun
LSH mun taka afstöðu til launa-
ályktunar hjúkrunarfræðinema á
lokaári við HÍ síðar í vikunni. Í út-
skriftarhópnum eru um 75 nemar,
sem segjast ekki munu ráða sig til
starfa á LSH á lægri launum en sem
nemur launaflokki 02 í stofn-
anasamningi.
Þrýst á de Villepin
Þrýstingur eykst enn á Dom-
inique de Villepin, forsætisráðherra
Frakklands, sem sakaður er um að
hafa reynt að sverta pólitískan
keppinaut með óheiðarlegum aðferð-
um. Þingið felldi þó vantrauststil-
lögu á de Villepin í gær.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 26/29
Fréttaskýring 8 Forystugrein 26
Viðskipti 13 Minningar 30/31
Erlent 14/15 Dagbók 36/39
Minn staður 16 Víkverji 36
Höfuðborgin 18 Velvakandi 37
Akureyri 18 Staður&stund 38/39
Suðurnes 19 Af listum 23
Landið 19 Ljósvakamiðlar 50
Daglegt líf 20 Veður 51
Menning22/23, 40/45 Staksteinar 51
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson,
fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is
Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H.
Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
FRAMKVÆMDIR hófust í gær-
morgun við gerð reiðbrúar undir
brúnni á Vesturlandsvegi yfir Leir-
vogsá. Reiðvegur hefur þegar verið
lagður við ána, ofan brúar. Var tek-
ið að færa til jarðveg fast við brúna
og eitthvað þrengt að ánni. Seinni-
partinn í gær voru framkvæmdir
stöðvaðar, að sögn Guðmundar
Magnússonar, formanns Veiðifélags
Leirvogsár, og í dag á að skoða
hvort tilskilin leyfi séu til staðar
fyrir framkvæmdinni.
Í bréfi sem Árni Ísaksson, fag-
sviðsstjóri veiðimálastjórnar hjá
Landbúnaðarstofnun, sendi Mos-
fellsbæ í gær kemur fram að fram-
kvæmdir sem þessar, við og í veiði-
ám, séu háðar leyfi frá embætti
veiðimálastjóra. Slík umfjöllun hafi
hins vegar ekki átt sér stað. Fer
Árni fram á að framkvæmdin verði
stöðvuð, þar sem hún hafi hvorki
fengið faglega né lögformlega um-
fjöllun.
Leirvogsá er ein besta laxveiðiá
landsins og Brúarhylur, neðan brú-
arinnar á Vesturlandsvegi, gefur
hátt í helming aflans. Stangaveiði-
félag Reykjavíkur, sem leigir veiði-
réttinn í ánni en ekkert samráð var
haft við vegna reiðvegarins, sendi í
gær frá sér yfirlýsingu þar sem
skorað er á Mosfellsbæ og aðra eig-
endur árinnar að hlutast til um að
horfið verði frá þeim áformum að
leggja reiðveginn undir brúna og
vegurinn liggi hvergi annars staðar
svo nærri ánni að umferð hesta-
manna geti truflað veiðimenn. Í
áskoruninni er minnt á að göng séu
undir brúna á þjóðveginum við
Köldukvísl, aðeins nokkur hundruð
metra frá Leirvogsá, beint ofan við
hesthúsabyggðina. „Ættu þau að
duga hestamönnum til að komast
undir Vesturlandsveginn,“ segir í
áskoruninni.
Lausn sem við getum
sætt okkur við
Halldór H. Halldórsson er for-
maður Reiðveganefndar í Kjalar-
nesþingi hinu forna, sem er sam-
starfshópur sjö hestamannafélaga.
Nefndin beitti sér fyrir gerð reið-
vegarins. Halldór segir tillöguna
um reiðveginn hafa farið gegnum
lögformlegt ferli hjá Mosfellsbæ og
málið hafi verið rætt við stjórn
Veiðifélagsins.
Hann telur nauðsynlegt að geta
farið undir veginn við Leirvogsá,
ekki dugi til reiðvegurinn undir
Köldukvísl sem er innan við kíló-
metra vestar. „Það þarf þarna teng-
ingu við Kjalarnesið. Leirvogstung-
an er öll að fara í byggingu. Við
teljum þetta lausn sem við getum
sætt okkur við, fyrst Vegagerðin
vill ekki ráðast í gerð undirganga
að svo stöddu.
Ég tel ekki að þarna verði
óheppilegur árekstur. Þegar veiði-
tímabilið byrjar eru hestamenn
flestir farnir með hrossin í sum-
arhaga og þegar þeir koma aftur
með hrossin inn, þegar komið er
fram í desember, þá er veiðitíma-
bilinu lokið.
Við Úlfarsá er reiðvegur með-
fram ánni og gert er ráð fyrir okk-
ur við brúarstöpulinn við nýju
brúna sem verið er að gera úr
Staðahverfinu. Og við Breiðholts-
brautina er riðið yfir Elliðaárnar
við brúarstöpulinn. Ég veit ekki til
þess að þar hafi orðið neinir
árekstrar við veiðimenn,“ segir
Halldór.
Morgunblaðið/Júlíus
Starfsmenn verktaka mæla fyrir reiðveginum undir brúnni yfir Leirvogsá síðdegis í gær, en ákvörðun verður tek-
in um framhaldið í dag. Hestamönnum og veiðimönnum sýnist sitt hvorum um framkvæmdirnar.
Framkvæmdir við
reiðveg stöðvaðar
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
LÆKKUN jarðaverðs er ekki fyr-
irsjáanleg að mati Magnúsar Leo-
poldssonar hjá Fasteignamiðstöð-
inni, sem nú hefur til sölu jörðina
Björk I í Grímsnesi fyrir 235 millj-
ónir króna. Um er að ræða 700 hekt-
ara jörð með 190 fm íbúðarhúsi.
Magnús segir mjög fátítt að jarðir
í Grímsnesi komi í sölu, svæðið sé
eftirsótt og verðið, 235 milljónir,
endurspegli gangverð fyrir þetta til-
tekna svæði.
„Oft eru einhver frávik frá ásettu
verði þegar fjárhæðirnar eru orðnar
svona miklar,“ bendir Magnús á.
„En þetta er landmikil jörð, „hrein
og tær“ þ.e. ekki hefur verið skipu-
lagt neitt á henni, sumarhúsasvæði
eða slíkt. Menn sjá ákveðna mögu-
leika ef þeir vilja svo við hafa og það
eru nýtingarmöguleikarnir sem ráða
verðmynduninni.“ Magnús segir að
jarðaverð hafi hækkað um 100% síð-
astliðin fimm ár eða svo, þó það sé
breytilegt milli svæða og jafnvel inn-
an svæða líka.
„Það hefur orðið meiri leiðrétting
á jarðamarkaðnum heldur en íbúða-
markaðnum og það má benda á að
þegar fasteignaverð hækkaði síðast,
þá hafði jarðaverðið staðið lengi í
stað. En jarðaverðið hefur hækkað
meira en íbúðaverðið. Ég spái því að
jarðaverð eigi alls ekki eftir að lækka
á næstunni. Framboðið er heldur
minna en eftirspurnin og viðskiptin
eru í tiltölulega góðu jafnvægi, þrátt
fyrir svolítið pipraða umræðu um að
allt sé að verða vitlaust á þessum
markaði. Svo er hins vegar ekki,
heldur er eftirspurnin aðeins meiri
en framboðið.“
Jörð boðin til sölu á 235 milljónir króna
Lækkun jarðaverðs
ekki fyrirsjáanleg
LEIT að Pétri Þorvarðarsyni, 17
ára pilti frá Egilsstöðum, var
minnkuð verulega í gær og verður
hlé gert á stórleit fram að helgi.
Björgunarsveitir í héraði munu þó
brúa bilið og leita á helstu leit-
arsvæðum fram til laugardags þeg-
ar stórlið björgunarsveitarmanna
hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg
verður kallað saman á ný.
Leitin að Pétri hefur verið gíf-
urlega umfangsmikil en allt að 400
manns hafa leitað frá því á sunnu-
dag. Leitað hefur verið í 30 km rad-
íus frá Grímstungu en síðast sást til
Péturs klukkan fjögur aðfaranótt
sunnudags þegar hann var staddur
í gleðskap í Grímstungu, skammt
frá Grímsstöðum á Fjöllum. Svo
virðist sem hann hafi ákveðið að
ganga til síns heima á Egilsstöðum
sem er í 120 km fjarlægð. Hélt
hann af stað nokkuð léttklæddur.
Engar vísbendingar hafa borist um
ferðir hans.
Hlé á stór-
leit fram
að helgi
MAÐURINN
sem varð bráð-
kvaddur á Fjarð-
arheiði á sunnu-
dagskvöld hét
Sigurður Þor-
geirsson, til heim-
ilis að Múlavegi 59
á Seyðisfirði.
Hann var fæddur
20. desember árið 1944 og lætur eftir
sig eiginkonu og þrjú uppkomin börn.
Sigurður gegndi ýmsum trúnaðar-
störfum, m.a. sat hann í sveitarstjórn
Búðahrepps fyrir Sjálfstæðisfélag
Fáskrúðsfjarðar og í hafnarnefnd.
Hann var virkur í Lions-hreyfingunni
og var síðustu árin svæðisstjóri
Lions-hreyfingarinnar á Austfjörð-
um.
Lést á
Fjarðarheiði
OLÍUFÉLÖGIN lækkuðu í gær
verðið á bensíni, dísil- og gasolíu um
eina krónu á lítra. Skýring lækkunar-
innar er lækkandi heimsmarkaðsverð
auk styrkari stöðu krónunnar gagn-
vart Bandaríkjadal. Algengasta verð
á bensíni er nú um 124,40 krónur, en
tæpar 123 krónur í sjálfsafgreiðslu.
Bensínlítrinn
lækkar um krónu
♦♦♦
♦♦♦