Morgunblaðið - 17.05.2006, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 17.05.2006, Blaðsíða 36
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn HÉR ER NÝJASTA SKOÐUNAR- KÖNNUNIN ÞÍN JÁ, ER ÞAÐ ÞÚ ERT ORÐINN VINSÆLLI! HEILUM 30 STIGUM VINSÆLLI ER ÞAÐ! ÞAÐ HLAUT AÐ VERA, ÉG SNÉRI BLAÐIN ÖFUGT ERTU TILBÚINN AÐ VÍKJA? ÞARFTU EKKI AÐ LÆRA HEIMA ÉG STRENGI ÞESS HEIT AÐ HÆTTA AÐ DREKKA, SPILA FJÁRHÆTTU SPIL OG BORÐA ÓHOLLAN MAT. ÉG ÆTLA LÍKA AÐ KOMA MEÐ KONUNNI MINNI Í GARÐVEISLUR! HANN STENDUR ALDREI VIÐ ÁRAMÓTAHEITIN SÍN SAMT HEFUR HANN FYRIR ÞVÍ AÐ STRENGJA ÞAU Á HVERJU ÁRI SVONA NÚ ÓGEÐIÐ ÞITT...KOMDU HINGAÐ OG NÁÐU Í HNETUNA! HVERNIG GENGUR AÐ NÁ ÍKORNANUM! HÆTTU- ÁSTAND RÍKIR YFIR. ÍKORNINN LEIKUR ENN LAUSUM HALA! GAMLÁRSKVÖLD VAR MUN SKEMMTILEGRA ÁÐUR EN ALLIR FENGU SÉR BARNFÓSTRU GLEÐILEGT NÝTT ÁR! HVAÐ ÆTLAÐIR ÞÚ AÐ SÝNA MÉR? ÞETTA ÞARNA! VÁ! GEYMDU TEPPIÐ FYRIR MIG OG EKKI LÁTA MIG FÁ ÞAÐ AFTUR HVAÐ SEM BJÁTAR Á! ÉG HEF SKIPT UM SKOÐUN! HÉRNA NEI, NEI, NEI, NEI AND- VARP! ÉG VERÐ AÐ HÆTTA ÞESSU, KALLI KETTIR ERU MJÖG SÉRSTAKAR SKEPNUR... ...ÞEIR ERU EIN- STAKLEGA FORVITNIR HVER ER ÁSTÆÐAN FYRIR ÞVÍ, GRETTIR? ÉG VEIT ÞAÐ EKKI OG MÉR ER ALVEG SAMA! Dagbók Í dag er miðvikudagur 17. maí, 137. dagur ársins 2006 Nú grænkar óðumog nýja brumið á trjánum lofar góðu fyrir sumarið. Fátt gleður augu Víkverja meira þessa dagana en fylgjast með gróðr- inum taka við sér eftir veturinn. Pasturslitlar plöntur sem settar voru niður í garði Vík- verja síðastliðið sumar sýna af sér hörku eftir umhleypingasaman vetur og laufblöðin gægjast fram hvert af öðru, græn og safarík. Víkverji leikur við hvern sinn fingur og gengur hvern dag meðfram tilvonandi hekki og dá- ist að nýgræðingnum, glaður í hjarta og vongóður um bjarta og sólríka sumardaga. x x x Talandi um sólríka sumardaga varekki leiðinlegt að fá hitabylgjuna um daginn. Fylgifiskur hennar var þó heldur leiðinlegri og skyggði tals- vert á. Ja, reyndar í orðsins fyllstu merkingu því að mistrið sem okkur barst frá Evrópu með hitabylgjunni skyggði á sólina. Þannig var, þrátt fyrir hitann, ekkert endilega hægt að sitja úti og njóta sólarinnar og góða veðursins því hver vill sitja úti umluktur svif- ryki sem sagt er hættulegra en það sem við þyrlum upp á hverjum vetri með nagladekkjunum? x x x Og talandi um nagla-dekkin. Nú eru vonandi allir bíleig- endur búnir að um- felga og komnir á sum- ardekkin. Kannski væri nú ráð að skipta út nagladekkjunum þegar næst verður um- felgað og fá sér frekar dekk sem ekki spæna upp malbikið. Víkverji ætlar ekkert að þykjast hafa vit á því hvaða dekk eru best en hefur þó grun um að harðkornadekkin séu verulega um- hverfisvænni en nagladekk og fari talsvert betur í malbikið. Allt tal um vetrardekk er þó fullkomlega úr takti við árstíðina og miklu skemmtilegra að spá í hvort sumardekkin halda það út að keyra hringveginn í ár. Að vera á góðum dekkjum er stórt atriði þeg- ar ekið er af stað í ferðalagið og ekki síst öryggisins vegna, að ekki sé talað um ef ekki á að aka hefðbundnar leið- ir heldur grýttari slóðir þar sem færri aka um. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is      Tónlist | Jazzklúbburinn Múlinn heldur tónleika í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld undir yfirskriftinni „Þú verður að borga bandinu“ („You gotta pay the band“). Tónleikarnir eru þeir síðustu á efnisskrá Múlans í vetur en Kristjana Stefánsdóttir fer fyrir hljómsveitinni og flytur lög og texta eftir Abbey Lincoln auk standarda sem Abbey gerði að sínum. Hljómsveit Kristjönu skipa Agnar Már Magnússon á píanó, Ólafur Stolzen- wald á kontrabassa, Scott McLemore á trommum, Sigurður Flosason á saxó- fón og slagverk og Árni Scheving á víbrafón. Tónleikarnir hefjast kl. 21. Þú verður að borga bandinu MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: Hafið gát á sjálfum yður, ef bróðir þinn syndgar, þá ávíta hann, og ef hann iðrast, þá fyrirgef honum. (Lúkas. 17, 3.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.