Morgunblaðið - 17.05.2006, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 17.05.2006, Blaðsíða 11
TEKIST var á um nýja samgöngu- stefnu Reykjavíkurborgar á borgar- stjórnarfundi í gær. Samgöngustefn- an var að lokum samþykkt eftir ríflega tveggja tíma umræður með átta samhljóða atkvæðum meirihlut- ans, en borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokks sátu hjá. Árni Þór Sigurðsson, formaður Umhverfisráðs, mælti fyrir sam- göngustefnunni en fyrr um daginn hafði hann kynnt efni hennar fjöl- miðlum. Megináherslur í samgöngu- málum borgarinnar eru m.a. að draga eigi úr neikvæðum áhrifum samgangna á umhverfið. Efla beri sjálfbæra samgöngumáta og almenn- ingssamgöngur og að ferðaþarfir verði uppfylltar með tilliti til um- hverfisins. Auðvelda þurfi fólki að virkja eigin orku til að ferðast á milli staða og eru t.a.m. í því sambandi markmið næstu 20 ára að auka sam- spil samgönguhátta. Hjólreiðar á að auka úr 3% upp í 6% og notkun stræt- isvagna úr 4% upp í 8% en minnka notkun einkabíla úr 77% í 66%. Samkvæmt stefnunni er framtíð- arsýnin í samgöngumálum sú að Reykjavík verði borg sem tryggi greiðar og öruggar samgöngur fyrir alla en stuðlar jafnframt að bættu umhverfi, góðri heilsu og aðlaðandi borgarbrag. Meira tillit þarf að taka til einkabílsins Guðlaugur Þór Þórðarson, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokks, var í stýri- hópi um samgöngustefnuna. Hann sagði margt gott vera í henni og lof- aði samstarfið í hópnum en sagðist þó ekki geta samþykkt stefnuna sökum vankanta. Hann sagði niðurstöðuna valda sér miklum vonbrigðum og nefndi að taka hefði átt á fleiri mál- um, m.a. úrbótum á gatnakerfinu sem hann sagði að myndi springa fyrr en síðar, s.s. vegna 25 þúsund manna byggðar sem fyrirhuguð er við Úlfarsfell. Hann sagði jafnframt að taka þyrfti meira tillit til einkabílsins og svo virtist sem samgöngustefnan væri heilagt stríð gegn helsta ferða- máta fjölskyldunnar. Guðlaugur vís- aði einnig í framkvæmdaáætlun stefnunnar og gagnrýndi að þar væri tillaga að gjaldskyldu við framhalds- skóla og háskóla. Grá Reykjavík Guðlaugs Björk Vilhelmsdóttir, borgar- fulltrúi R-listans, gagnrýndi ræðu Guðlaugs og benti honum vingjarn- lega á að í samgöngustefnunni væri frekar verið að gera öðrum sam- gönguháttum hærra undir höfði heldur en einkabílnum væri sagt stríð á hendur. Björk ræddi jafn- framt um gildi almenningssam- gangna og að stefnt væri að því að bæta ferðavenjur borgarbúa til þess að nýta samgöngukerfið í sátt við umhverfið. Hún sagði jafnframt greinilegt á erindi Guðlaugs að hann vildi gera Reykjavík að grárri bíla- borg með fleiri akreinum og meiri áherslu á að efla einkabílinn. Síðar svaraði hún spurningu Guð- laugs játandi, um hvort hún væri hlynnt gjaldtöku á bílastæðum við framhalds- og háskóla. Gísli Marteinn Baldursson, borg- arfulltrúi Sjálfstæðisflokks, gerði byggðina við Úlfarsfell einnig að um- ræðuefni. Hann benti á að mörg göf- ug markmið væru í samgöngustefn- unni, s.s. að hvetja borgarbúa til að taka frekar strætisvagna eða hjóla til vinnu. Honum kom hins vegar spánskt fyrir sjónir hvernig fyrir- huguð byggð við Úlfarsfell sam- ræmdist markmiðum um að hjóla til vinnu og þéttingu byggðar. Gísli Marteinn varpaði jafnframt þeirri spurningu fram hvort fólk, sem byggi við Úlfarsfell, ætti að hjóla til vinnu í miðbænum – á köldum vetrardegi. Einnig benti hann á að á undanförn- um tólf árum hefði aðsókn í strætó ekki aukist og spurði hvort hægt væri að virkja fólk til þess núna ef það hefur ekki verið hægt á öllum þeim tíma. Eftir að borgarfulltrúar höfðu skipst á skoðunum var málið tekið til atkvæðagreiðslu þar sem það, eins og áður segir, var samþykkt. Ímynd endurspegli skapandi hugsun íbúanna Eftir atkvæðagreiðsluna las Guð- laugur Þór upp bókun sjálfstæðis- manna þar sem m.a. kom fram að samgöngustefna sem ekki tæki tillit til íbúa Grafarvogs og í nærliggjandi hverfum, þ.e. vegna þess að gatna- kerfið mun springa t.a.m. með nýrri íbúðabyggð við Úlfarsfell og í Norð- lingaholti, væri ekki trúverðug. Árni Þór Sigurðsson kynnti einnig nýja framkvæmdaáætlun Reykjavík- urborgar sem tekur við af Staðardag- skrá 21 og nefnist Reykjavík í mótun. Þar er framtíðarsýnin að ásýnd og ímynd Reykjavíkur endurspegli skapandi hugsun íbúa hennar þar sem mannlíf og umhverfi eru í fyr- irrúmi og gott er að búa. Meðal helstu áherslna er að samtvinna um- hverfismál við heilsu manna, að Reykvíkingar aðlagi sig betur vist- vænum samgöngumáta, að móta fjöl- breyttari útivistarsvæði, að tengja saman neyslu og úrgangsmál, draga úr loftmengun og að efla umhverf- isstjórnun. Sjálfstæðismenn sátu á nýjan leik hjá við atkvæðagreiðslu og var tillag- an samþykkt með átta samhljóða at- kvæðum. Einnig var tekin fyrir tillaga um mannréttindastefnu Reykjavíkur- borgar og var hún samþykkt með fjórtán atkvæðum. Einnig var á dagskrá borgar- stjórnar að ræða málefni Miðborgar og Breiðholtshverfis en þeim málum var frestað til næsta fundar, sem er eftir sveitarstjórnarkosningar. Ný samgöngustefna og 2. útgáfa af Staðardagskrá 21 samþykktar af meirihluta í borgarstjórn Tekist á í aðdrag- anda kosninga Morgunblaðið/ÞÖK Gísli Marteinn Baldursson, Hanna Birna Kristjánsdóttir og Björn Bjarna- son sátu hjá við atkvæðagreiðslu á samgöngustefnu Reykjavíkurborgar. Árni Þór Sigurðsson, formaður umhverfissviðs, kynnti samgöngustefnu Reykjavíkurborgar á borgarstjórnarfundi í gær. Eftir Andra Karl andri@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2006 11 FRÉTTIR MasterCard Mundu ferðaávísunina! Rimini Tryggðu þér síðustu sætin Allt að seljast upp! E N N E M M / S IA / N M 21 78 3 Króatía Costa del Sol Fuerteventura Benidorm Mallorca Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • Hafnarfjörður sími: 510 9500 Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára. Stökktu tilboð. 24. eða 31. maí í viku. 24. maí - 17 sæti 31. maí - nokkur sæti 7. júní - örfá sæti 29.995 kr. Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára. Stökktu tilboð. 31. maí í 2 vikur. 24. maí - 6 sæti 31. maí - 9 sæti 7. júní - örfá sæti 49.990 kr.– í 2 vikur Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára. Stökktu tilboð. 18. maí í viku. 18. maí - 8 sæti 25. maí - 9 sæti 1. júní - 19 sæti 39.990 kr. Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára á Barcelo Jandia Golf. 21. júní í 6 nætur. Uppselt í maí og júní Aukaflug 7. júní - 17 sæti Aukaflug 21. júní - nokkur sæti 41.195 kr. Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára. Stökktu tilboð. 18. og 25. maí í viku. 18. maí - örfá sæti 25. maí - örfá sæti 1. júní - nokkur sæti 29.990 kr. Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára. Stökktu tilboð. 25. maí í viku. 25. maí - örfá sæti 1. júní - nokkur sæti 29.990 kr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.