Morgunblaðið - 17.05.2006, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 17.05.2006, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2006 9 FRÉTTIR Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • sími 581 2141 Sumarpils margar gerðir EcoGreen Multi FRÁ H á g æ ð a fra m le ið sla A ll ta f ó d ýr ir GÓÐ HEILSA GULLI BETRI Vítamín, steinefniog jurtir APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR Orkubomba og hreinsun www.nowfoods.com Mjódd, sími 557 5900 JENSEN dagar í FRÖKEN JÚLÍU Spennandi tilboð í gangi Einnig úrval af fatnaði frá og Verið velkomnar Það er aldrei of seint... Vertu velkomin að kynnast nýjustu uppgötvun la prairie sem hægir á öldrunarferlinu. ANTI-AGING COMPLEX a cellular intervention cream Bjóðum 10% staðgreiðslu- afslátt og kaupauka. Á morgun fimmtudag og föstudaginn 19. maí kl. 13-17 Kringlunni • Sími 533 4533 Öllum sem heimsóttu mig á 80 ára afmæli mínu 30. apríl sl. og tóku þátt í á einn eða annan hátt að gera mér daginn ógleymanlegan með gjöfum, heillaskeytum, heillaóskum og eftir öðrum leiðum, færi ég mínar bestu þakkir. Einar Ingimundarson, Brekkubraut 13, Keflavík. SUMARLEGIR VATTJAKKAR 15% AFSLÁTTUR ÞESSA VIKU Laugavegur 63 • S: 551 4422 Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033 Ægir Breiðfjörð, löggiltur fasteignasali SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG Við leitum að 400-800 fm skrifstofuhúsnæði til kaups eða leigu fyrir fjármálafyrirtæki. Húsnæðið þarf að vera staðsett miðsvæðis og til afhendingar fljótlega. Aðeins mjög vandað húsnæði kemur til greina. SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI ÓSKAST „ÉG ER ekki sammála orðum Gylfa og tel að verðsamkeppni á mark- aðnum sé einmitt í fullum gangi enn þá,“ segir Sigurður Arnar Sigurðs- son, forstjóri Kaupáss, um ummæli Gylfa Arnbjörnssonar, fram- kvæmdastjóra Alþýðusambands Ís- lands, um hækkanir á vísitölu neysluverðs í Morgunblaðinu sl. föstudag. Þar er haft eftir Gylfa að þegar skoðaðar væru hækkanir sl. tólf mánaða kæmi í ljós að innlendu liðirnir hækkuðu mest, s.s. dagvöru- liðirnir um rúm níu prósent sem sýnir að sú mikla verðsamkeppni sem verið hefði á matvörumarkaði í maí á sl. ári væri gengin til baka. Kaupás rekur m.a. matvöruversl- anir Krónunnar og Nóatúns og seg- ir Sigurður Arnar að virk sam- keppni hafi ríkt á markaðnum undanfarna fimmtán mánuði eða frá því lýst var yfir að Krónan yrði með samkeppnishæft verðlag. „Það sem er að gerast þarna er að verð er tek- ið miðað við tímabil þar sem verð- stríðið var í algjöru hámarki, þ.e. í maí á sl. ári, og breytingar á vísi- tölu frá þeim tíma til maí í ár. Út úr því má lesa að hún hafi hækkað um níu prósent,“ segir Sigurður og bendir á að ef tekin er vísitala frá því í janúar á sl. ári, þ.e. áður en Krónan kom inn á markaðinn, þá hafi matvörur og drykkjarvörur lækkað um tæp 0,7%. Það sýnir að matvara er á lægra verði í dag en á sama tímabili hefur gengisvísitalan hækkað um 14%. „Mér finnst þetta ekki nógu ábyrgðarfullt af forsvarsmönnum ASÍ að setja þetta fram með þessum hætti,“ segir Sigurður sem tekur dæmi um verð á mjólk og ostum sem lækkað hefur um tíu prósent frá því í janúar í fyrra. „Enn þann dag í dag erum við að selja mikið af mjólk- urvörum undir kostnaðarverði vegna þess að markaðurinn og sam- keppnin við markaðsráðandi aðila ræður útsöluverðinu en tekur ekk- ert mið af kostnaðarverði vörunn- ar.“ Aðspurður hvort að hann sjái fram á að matvöruverð fari hækk- andi í kjölfar aukinnar verðbólgu og gengisbreytinga segist Sigurður Arnar vel geta trúað að svo verði. „Verðhækkanir hafa verið að demb- ast yfir okkur frá áramótum, bæði frá innlendum framleiðendum og eins í innflutningi. Þannig er ljóst að það er hækkunarþörf framundan,“ segir Sigurður sem telur sig ekki geta spáð fyrir um hversu mikil hækkunarþörfin er. Afkoman léleg í fyrra „Það er markaðurinn sem ræður töluvert miklu um það og við höfum til dæmis verið að taka á okkur mik- ið af hækkunum, m.a. vegna þess að samkeppnin á markaðnum er mjög virk. Afkoman í smásölu með mat- vöru var mjög léleg á síðasta ári og það er ekki hægt að ætlast til þess að fyrirtæki eins og okkar selji vörur langt undir kostnaðarverði og stuðli þannig að því að halda niðri verðbólgunni svo mánuðum skiptir.“ Sigurður A. Sigurðsson, forstjóri Kaupáss, vísar því alfarið á bug að samkeppni verslana á matvörumarkaði sé í rénun Ábyrgðarlaust af forsvarsmönnum ASÍ Eftir Andra Karl andri@mbl.is Sigurður Arnar Sigurðsson LANDVERND hefur lagt töluverða vinnu í verkefni um hálendisvegi. Á heimasíðu samtakanna er að finna frumdrög að skýrslu um það verkefni. Þar kemur m.a. fram að víða þurfi að lagfæra vegslóða með ofaníburði og ræsum til að koma í veg fyrir hjáleiðir og utanvegaakst- ur. Hugmyndir Bláskógabyggðar um lagfæringar Eyfirðingavegar hins forna virðast að því leyti vera í ágætu samræmi við sjónarmið Landverndar. Þetta segir Bergur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landverndar. Bergur segir þó málið ekki hafa komið inn á borð til samtakanna og samtökin því ekki haft tækifæri til þess að átta sig á því hvað fólgið sé í því. „Því er ekki hægt að taka af- stöðu til málsins að svo stöddu, en ljóst er að sjónarmið um verndun fornra reiðleiða eiga einnig fyllilega rétt á sér,“ segir Bergur. Endurbygging Eyfirðingavegar Víða þarf að laga vegaslóða á hálendi ÞÓRHALLUR Gunnarsson, rit- stjóri Kastljóss, og Jóhanna Vil- hjálmsdóttir, einn umsjónarmanna þáttarins, rituðu Jóni Ásgeir Jó- hannessyni, forstjóra Baugs Group hf., bréf 11. maí síðastliðinn, en í bréfunum var farið fram á að hann bæðist afsökunar orðum sem hann viðhafði í bréfi sem hann sendi út- varpsstjóra og dagsett var 8. maí sl. Þar sagði Jón Ásgeir meðal ann- ars að Þórhallur og Jóhanna væru í vinfengi við Jón Gerald Sullen- berger og að annað þeirra hefði ver- ið gestur hans um borð í bátnum Thee Viking. Þórhallur og Jóhanna staðfestu bæði við Morgunblaðið í gær að þau hefðu sent Jóni Ásgeiri bréf vegna málsins og farið fram á afsökunar- beiðni, en engin viðbrögð hefðu enn borist. Þórhallur kveðst enn ekki hafa tekið neina ákvörðun um að aðhafast frekar í málinu. Hann eigi ekki von á öðru en Jón Ásgeir biðjist afsökunar á ummælum sínum. Þórhallur segir að áður en bréfið til útvarpsstjóra var gert opinbert, hafi hann verið búinn að benda fjölmiðlafulltrúa Jóns Ásgeirs á að staðhæfingar, sem fram kæmu um umsjónarmenn Kastljóss í því, væru rangar. „Hann sá ekki ástæðu til þess að breyta bréfinu,“ segir Þórhallur Gunnarsson. Vilja afsökunarbeiðni frá forstjóra Baugs Engin viðbrögð fengist við bréfunum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.