Morgunblaðið - 17.05.2006, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 17.05.2006, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2006 43 RAFRÆN Reykjavik hefur verið afar dugleg í vetur við að kynna Íslendinga fyrir fyrsta flokks raftónlistar- mönnum og nú þegar sumarið er gengið í garð eru árar aldeilis ekki lagðar í bát. Ein allsherjar listahátíð mun fara fram í félagsheimilinu Árnesi í Skeiða- og Gnúp- verjahreppi helgina 9.–11. júní þar sem um fjörutíu tón- listarmenn troða upp og skemmta áðdáendum raf- tónlistar. Fjölbreyttur hópur listamanna Rafræn Reykjavík hefur sett saman fríðan hóp ís- lenskra og erlendra listamanna og má þar af nefna nýja hljómsveit skipaða þeim Jóhanni Jóhannssyni, DJ Musician og Stilluppsteypu sem kallast Evil Madness. Hyggjast þeir frumflytja glænýtt efni sem reiknað er með að komi út í haust. Þá koma einnig fram Hermi- gervill, Sometime, Reykjavik Swing Orchestra, Ruxpin, Frank Murder, Mr. Silla og margir fleiri. Erlendu lista- mennirnir sem koma fram eru ekki af verri endanum; Sebestian Tellier frá Frakklandi, Daedelus frá Banda- ríkjunum, Judith Juillerat frá Sviss, Misc og Ada frá Köln í Þýskalandi og síðast en ekki síst raftónlistaraðall- inn Ellen Allien & Apparat frá Berlín. Alls eru þetta um fjörutíu listamenn sem koma fram þessi þrjú kvöld. Skartgripir, nudd og nýlist Hátíðinni er skipt niður á þrjá daga frá kl. 18 á föstudeginum til kl. eitt aðfaranótt mánudags. Ítarleg dagskrá verður kynnt á heimasíðu hátíðarinnar, www.bright-nights.com. Haldnir verða tónleikar á litlu útisviði á daginn og þar verður tónlist sem hentar veðr- áttunni spiluð. Einnig verður markaður þar sem margir af efnilegustu hönnuðum landsins selja varning sinn, en allt frá skartgripum til nudds verður á boðstólum. Þá hyggst Nýlistasafnið standa fyrir ýmsum viðburðum s.s. vídeólistar- og ljósmyndasýningum svo eitthvað sé nefnt. Upp úr kvöldmat verður tónleikahald fært inn í félags- heimilið, þar sem haldnir verða magnaðir tónleikar langt fram á nótt. Staðsetning og miðaverð Tjaldsvæðið í Árnesi er steinsnar frá félagsheimilinu þar sem heitur pottur, grillaðstaða, sturtur og salernis- aðstaða eru fyrir hendi en einnig er mjög góð sundlaug um 50 metrum frá svæðinu. Árnes er í Þjórsárdalnum og staðurinn er rómaður fyrir náttúrufegurð. Um hálftíma akstur er til Árness frá Reykjavík. Miðaverð er 7.500 kr. og tjaldstæði er innifalið í verð- inu. Hægt er að kaupa miða á midi.is, í 12 tónum og í Smekkleysubúðinni á Laugavegi. Listamennirnir Þessir tónlistarmenn hafa staðfest komu sína en búist er við að fleiri muni bætast í hópinn: Judith Juillerat (Shitkatapult), Apparat & Ellen allien (Bpitch-control) Daedelus (Ninja Tune), Sebestian Tellier (Recordmak- er), Misc. (Sender), Gus Gus, Plat, Dr. Disco Shrimp, Reykjavik Swing Orchestra, The Fortunes, Steve Sampling, Frank Murder, Hermigervill, Ruxpin, Silla & Mongooze, Agzilla, Dj Steinar A., Disco Valante, Dj Xylic, Worm Is Green, Beatmaking Troopa, Sometime. Tónlist | Rafræn Reykjavík heldur listahátíð í Árnesi 9.–11. júní Sveitungi þeirra úr Misc., Ada, mun einnig leika há- gæðaraftónlist á hátíðinni sem fram fer í júní. Alþjóðleg raftónlistar- hátíð Morgunblaðið/Brynjar Gauti Mr. Silla verður á meðal þeirra íslensku tónlistar- manna sem fram koma á hátíðinni. Þýski rafdúettinn Misc. verður á meðal þeirra sem troða upp á tónlistarhátíðinni í Árnesi í júní. www.bright-nights.com Leikararnir Charlie Sheen ogDenise Richards segjast nú vinna að farsælli lausn í skiln- aðardeilu sinni. Richards sótti um lögskilnað við Sheen í mars í fyrra og sagði ástæðuna þá, að Sheen hefði hótað henni lífláti og ítrekað heimsótt klámsíður þar sem afar ungar stúlkur væru sýndar með ósæmilegum hætti. Sheen neitaði allri sök en dómari setti á hann nálgunarbann, að hann mætti ekki koma nær Richards en 300 fet, eða um 90 metra. Sheen og Richards hafa nú sent frá sér yfir- lýsingu þar sem segir að þau vinni að sáttum. Þriðjudaginn síðastliðinn sættust þau á að Sheen gæti heimsótt dætur sínar undir eftirliti, en þær eru tíu mánaða og tveggja ára. Fólk folk@mbl.is jass á fimmtudögum Við höldum áfram með lifandi jass alla fimmtu- daga í maí á Primavera í samstarfi við vínframleiðandann Castello Banfi. Í kvöld spilar Óskar Guðjónsson, ásamt bróður sínum Ómari og Tómasi R. Einarssyni Borðapantanir í síma 561 8555 Í næstu viku: Trio Jóels Pálssonar #3: 18. maí Matseðill Grilluð hörpuskel á teini með blómkálspurré og humargljáa Gnocchi með graslauk, ólífum og tómötum Hægeldaður svínabógur kryddaður með fennel, chili og hvítlauk Lime-og ricotta kaka með vanilluís og jarðaberjasalati kr.5200.- Mannbætandi og þrælfyndin rómantísk gamanmynd með með Uma Thurman og Meryl Streep í fantaformi! Sýnd kl. 8 og 10:20 B.i. 14 ára Sími - 551 9000 400 KR. Í BÍÓ * * Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu eeee VJV, Topp5.is „...einn útsmognasti, frumlegasti og vitrænasti spennutryllir ársins“ eeee- SV, MBL „Pottþétt skemmtun“ eeee-LIB, Topp5.is „...gleðitíðindi fyrir unnendur góðra trylla.“ - FGG, Fréttablaðið Sýnd kl. 8 og 10:20 B.i. 16 ára eeee -MMJ kvikmyndir.com „Pottþétt skemmtun“ eeee -LIB, Topp5.is eeee -MMJ kvikmyndir.com eee H.J. mblEins og þú hefur aldrei séð hana áður Sýnd kl. 6 ÍSL. TAL eee JÞP blaðið -bara lúxus Bandidas kl. 6, 8 og 10 B.i. 10 ára Cry Wolf kl. 8 og 10 B.i. 16 ára Hoodwinked/Rauðhetta m. ensku tali kl. 6, 8 og 10 Rauðhetta/Hoodwinked m. ísl. tali kl. 6 Prime kl. 5.45 og 8 The Hills Have Eyes kl. 10.10 Skrolla og Skelfir Á SALTKRÁKU 500krVERÐ Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 10 ára EFTIRSÓTTUSTU BANKARÆNINGJAR VILLTA VESTURSINS ERU MÆTTIR Salma hayek pénelope cruz S.U.S. XFM FRÁBÆR GRÍNSPENNUMYND FRÁ SNILLINGNUM LUC BESSON ÐA Í FULLUM GANGI • HEIMSFRUMSÝND 19. MAÍ • BÍÓ.IS Sýnd kl. 6 íslenskt tal BYGGT Á METSÖLUBÓK ASTRID LINDGREN Skrolla og Skelfir Á SALTKRÁKU FRÁBÆRT ÆVINTÝRI FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA 500krVERÐ ÍSLENSKT TAL ÍSLENSKT TAL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.