Morgunblaðið - 17.05.2006, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 17.05.2006, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR VINSÆLASTI HÖFUNDUR Í HEIMI DAN BROWN NÝ BÓK Í ÍSLENSKRI ÞÝÐINGU EFTIR MEISTARA SPENNUSÖGUNNAR F í t o n / S Í A F I 0 1 7 1 5 7 - The Washington Post SVONA Á AÐ SKRIFA SPENNUSÖGUR. ÞESSA BÓK LEGGURÐU EKKI FRÁ ÞÉR FYRR EN AÐ LESTRI LOKNUM“ „ NÚ Í KI LJU SAMTÖK atvinnulífsins sendu í gær bréf til bankastjórnar Seðla- bankans þar sem áhyggjum er lýst vegna hugsanlegrar hækkunar bankans á stýrivöxtum, en vaxta- ákvörðunardagur er á morgun, fimmtudag. Lýst er verulegum efa- semdum um að vaxtahækkun nú muni skila tilætluðum árangri. Hafa greiningardeildir bankanna spáð allt að 75 punkta hækkun, að stýri- vextir fari í 12,25%. „Sú lækkun sem nú hefur orðið á íslensku krónunni frá marsbyrjun varð vegna breytinga á væntingum og trú erlendra aðila á gjaldmiðl- inum og stöðu íslensks fjármála- kerfis og efnahagslífs. Vaxtahækk- un við þessi skilyrði mun tæplega skapa á ný það ástand að gengi krónunnar verði á svipuðu stigi og það var fyrir lækkun og vaxta- hækkun er því ólíkleg til þess að hamla gegn verðbólgu svo nokkru nemi. Allt eins má reikna með því að vaxtahækkun þyki ótrúverðug vegna þess hve vextir eru háir fyrir og vegna þess að gengið lækkaði þrátt fyrir þessa háu vexti,“ segir í bréfi SA. Hækkun yrði vafasöm Samtök atvinnulífsins benda enn- fremur á að á næsta ári sé miðað við að það hægi verulega á í efna- hagslífinu, meðal annars þar sem framkvæmdum við stóriðju og virkjanir ljúki í bili. Samtökin benda á hættu á að hraðar og meira dragi úr umsvifum í efnahagslífinu á næsta ári en al- mennt sé miðað við. Vaxtahækkun nú sé því vafasöm. Því hvetja SA Seðlabankann til þess að halda að sér höndum með vaxtahækkun nú og endurmeta stöðuna þegar betur verður séð hvernig gengi krón- unnar og fasteignamarkaðurinn þróast. SA lýsa áhyggjum vegna vaxtahækkana Seðlabanka Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is STÓRA upplestrarkeppnin, frum- kvöðlastarf þeirra Baldurs Sigurðs- sonar, dósents við KHÍ, og Ingi- bjargar Einarsdóttur, skrifstofu- stjóra Skólaskrifstofu Hafnar- fjarðar, hlaut í gær Foreldra- verðlaun Heimilis og skóla en Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra afhenti verð- launin við athöfn í Þjóðmenningar- húsinu í gær. Alls voru nítján verkefni tilnefnd að þessu sinni en þetta var í ellefta skipti sem verðlaunin eru afhent. Í greinargerð með tilnefningu Stóru upplestrarkeppninnar kom fram að keppnin hefði verið haldin árlega frá 1996 og stækkað og eflst mjög á þeim tíma. Nú tækju um 150 skólar um allt land þátt í keppninni og á fimmta þúsund nemendur, eða nánast allir nemendur í 7. bekk á landinu. Aðkoma foreldra að þessu verkefni væri mikil, fulltrúar for- eldra sætu gjarnan í dómnefnd auk þess að taka virkan þátt í undirbún- ingi barnanna fyrir keppnir með því að velja ljóð og hlusta á börnin æfa sig. Kallaðir vorboðarnir Ingibjörg Einarsdóttir tók við verðlaununum og sagðist vera afar þakklát. Vel hefði gengið að boða þetta fagnaðarerindi undanfarin ár og víða væru þau Baldur kölluð vorboðarnir en þau sækja margar af lokahátíðunum sjálf. Tvö verkefni hlutu Hvatningar- verðlaun Heimilis og skóla, annars vegar verkefnið „Allir í sama liði“ í Vesturbæjarskóla og hins vegar hlaut Foreldrafélag Laugagerðis- skóla á Snæfellsnesi verðlaun fyrir markvisst og öflugt foreldrastarf og samstarf heimilis og skóla. Heba Sigurðardóttir og Bryndís Gunn- arsdóttir tóku við verðlaunum fyrir hönd Vesturbæjarskóla en verk- efnið gengur út á að veita for- eldrum aðgang að verkefnum sem eru til þess fallin að auka líkurnar á virku samstarfi kennara, foreldra og nemenda. Loks hlaut Össur Geirsson, stjórnandi Skólahljómsveitar Kópa- vogs, Dugnaðarforksverðlaun Heimilis og skóla. Í greinargerð með tilnefningu hans kom fram að alls starfi um 150 börn í sveitinni á hverjum tíma og að sveitin gegni mikilvægu hlutverki í samfélaginu í Kópavogi. Hitann og þungann af þessu starfi beri Össur og með ótrú- legum skipulags-, stjórnunar- og leiðtogahæfileikum hafi hann skip- að starfinu þann sess að það sé í al- gjörum forgangi hjá þeim fjöl- skyldum sem tengist hljómsveit- inni. Stóra upplestrarkeppnin hlaut Foreldraverðlaun Heimilis og skóla Morgunblaðið/Brynjar Gauti Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir veitir þeim Ingibjörgu Einarsdóttur, skrifstofustjóra Skólaskrifstofu Hafnar- fjarðar, og Baldri Sigurðssyni, dósent við Kennaraháskóla Íslands, Foreldraverðlaun Heimilis og skóla. Eftir Árna Helgason arnihelga@mbl.is BREYTINGAR urðu á verðskrá Póstsins um síðustu mánaðamót og hækkaði póstburðargjald almenns bréfapósts til dæmis um sjö til tíu prósent, að sögn Önnu Katrínar Halldórsdóttur, framkvæmdastjóra markaðs- og sölusviðs Póstsins. Hún segir að flestir verðflokkarnir hafi hækkað um 5%. Sumir hafi þó hækk- að meira, aðrir minna. Þá hafi ein- stakir verðflokkar lækkað, segir hún. Anna Katrín segir hækkanirnar tilkomnar vegna launahækkana hjá fyrirtækinu og mikilla hækkana á flutningskostnaði. Hún segir að mánaðarlaun bréfbera hafi til að mynda hækkað að meðaltali um 19% frá febrúar 2005 til febrúar 2006. Þá hafi eldsneytisverð hækkað og þungaskattur verið lagður niður og tekið upp olíugjald. Síðast voru gerðar breytingar á verðskrá Póstsins hinn 1. október sl. en þá hækkaði póstburðargjald á bögglapósti um 6%. Þar áður, eða hinn 1. maí á síðasta ári, hækkaði póstburðargjald á almennum bréfa- pósti um u.þ.b. 7%. Anna segir að þær hækkanir hafi einnig verið vegna launahækkana og hækkana á flutningskostnaði. „Við erum í raun að mæta þessum hækkunum,“ segir hún. „Við þurfum að standa undir kostnaði.“ Anna tekur þó fram að þrátt fyrir þessar hækkanir séu póstburðargjöldin hér á landi al- mennt aðeins lægri en í nágranna- löndunum. Póstburðargjald almenns bréfapósts hækkar um 7 til 10% SEX hundruð miðar seldust á fyrstu tveimur tímum miðasölu á fyrir- lestur Mikhails Gorbatsjovs, fyrrver- andi aðalritara sovéska Komm- únistaflokksins og leiðtoga Sovétríkjanna. Gorbatsjov kem- ur hingað til lands í október í minningu þess að 20 ár eru síðan leiðtogafundur hans og Ronalds heitins Reagans Bandaríkjaforseta var haldinn í Höfða. Mun Gorbatsjov flytja hátíðarfyrirlestur í Há- skólabíói fimmtudaginn 12. október nk. Það er Einar Bárðarson tónleika- haldari sem stendur fyrir komu Gorbatsjovs, sem hlaut friðar- verðlaun Nóbels og var útnefndur maður 9. áratugarins af tímaritinu Time. Gorbatsjov er jafnan er talinn hafa átt hvað stærstan þátt í falli járntjaldsins, hnignun kommúnism- ans og að kalda stríðið leið undir lok, með Glasnost-stefnu sinni. Fyrirlestur Gorbatsjovs verður sá fyrsti í röð fyrirlestra sem Concert stendur fyrir undir merkjunum Stefnumót við leiðtoga. Í fyrirlestr- inum, sem verður opinn öllum, mun Gorbatsjov ræða um stjórnun á 21. öldinni, frið, sögulega þýðingu og minningar sínar frá leiðtogafund- inum í Höfða. Miðasala á fyrirlestur Gorbatsjovs fer vel af stað Mikhail Gorbatsjov ÍSLAND er í fjórða sæti hvað varð- ar kostnað við að greiða atkvæði í söngvakeppni evrópskra sjónvarps- stöðva. Neytendasamtökin og Evr- ópska neytendaaðstoðin (ENA) á Ís- landi könnuðu verð á sms-skeytum og símaatkvæðum fyrir söngva- keppni evrópskra sjónvarpsstöðva sem fram fer 18. og 20. maí. Í frétt frá Neytendasamtökunum kemur fram að aðeins Grikkir, Rúmenar og Spánverjar greiða hærra verð en Íslendingar. At- kvæði, hvort sem er með smáskila- boðum (sms) eða símtali, kostar 100 krónur á Íslandi. Samanburður við Norðurlöndin sýnir að atkvæðið er næstdýrast í Noregi þar sem það kostar tæpar 60 krónur. Svíar greiða 56 krónur, Finnar 45 krónur en Danir sleppa best og greiða sem svarar þremur íslenskum krónum fyrir hvert símtal. Í Danmörku er símaatkvæðið á sama verði og venjulegt símtal. Ef sent er sms- skeyti bætast við tíu krónur þannig að sms-skeytið kostar um 13 krónur í Danmörku. Kostar 100 krónur að greiða atkvæði í Evróvisjón ÖKUMAÐUR mótókrosshjóls á Ak- ureyri slasaðist er hann féll af hjól- inu í gær. Að sögn lögreglu ók mað- urinn eftir stíg og þaðan á malarbing eftir að sólin hafði blind- að hann með fyrrgreindum afleið- ingum. Vegfarendur sáu til mannsins og kölluðu eftir aðstoð og var hann fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar en hann kenndi eymsla í baki og á annarri hendi. Féll af bifhjóli sínu GÁMAFLUTNINGASKIPIÐ Kárs- nesið tók niðri í innsiglingunni í Kópavogshöfn um hádegið í gær. Kallaður var til dráttarbátur en skipið losnaði af sjálfsdáðum síð- degis og var komið að bryggju und- ir kvöldið. Ekki var þó ljóst með skemmdir á skipinu að sögn lög- reglunnar í Kópavogi. Tók niðri í Kópavogshöfn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.