Morgunblaðið - 17.05.2006, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 17.05.2006, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Jóhannes VíðirSveinsson fædd- ist á Siglufirði 16. júlí 1943. Hann varð bráðkvaddur við vinnu hinn 3. maí síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Anna Guðrún Þórhallsdóttir frá Hofsgerði í Skaga- firði, f. 25. nóvem- ber 1923, d. 22. júlí 2004, og Sveinn Jó- hannesson frá Glæsibæ í Staðar- hreppi í Skagafirði, f. 1. júlí 1916, d. 22. júní 1981. Systkini Jóhann- esar eru Þórhallur, f. 13. júní 1944, kvæntur Eygló Stefánsdótt- ur; Arnar, f. 25. júní 1948; Edda Guðbjörg, f. 14. mars 1950, gift Guðmundi Guðmundssyni. Jóhannes var í sambúð með Guðjónu Jóhannsdóttur frá Gilj- um í Lýtingsstaðahreppi í Skaga- firði. Sonur þeirra er Róbert Logi, f. 4. maí 1970. Þau slitu sam- vistir. Jóhannes kvæntist Sigrúnu Ingimars- dóttur frá Flugumýri í Skagafirði. Dóttir Jóhannesar og Sig- rúnar er Sæunn, f. 7. ágúst 1974. Áður átti Sigrún Heiðar Feyki, sonur hans er Alex- ander. Jóhannes og Sigrún skildu. Jóhannes ólst upp á Siglufirði og var þar í barna- og unglingaskóla. Eftir það fór hann til Reykjavíkur og hóf nám í húsa- smíði og lauk námi frá Iðnskól- anum í Reykjavík. Jóhannes starf- aði mestan hluta starfsævi sinnar við smíðar í Reykjavík. Útför Jóhannesar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Í dag kveðjum við hinstu kveðju bróður og mág. Jóhannes fæddist á sjúkrahúsinu á Siglufirði og var elst- ur okkar systkina, 62 ára að aldri þegar hann lést. Við systkinin ól- umst upp á Hvanneyrarbraut 28, í sama húsi og föðuramma og afi bjuggu í, þau á neðri hæðinni og for- eldrar okkar á efri hæðinni. Við nut- um Jóhannesar afa ekki lengi en ömmu Sæunni nutum við samvista við og í minningunni var amma okk- ur oft innan handar. Á búskaparárum mömmu og pabba var síldin í algleymingi og þótti mjög gott að fá húsmæður á síldarplönin ef tími gafst frá heimili og barnauppeldi. Þá var til siðs að senda börn til vinnu í sveit á sumrin. Eins var það með okkur systkinin. Við vorum send til skyldmenna. Jó- hannes var sendur nokkur sumur til skyldfólks sem bjuggu í Stóru-Gröf í Skagafirði. Þegar kom að unglings- árum okkar systkina var það eins og með aðra unglinga, að þá fórum við að taka þátt í síldarævintýrinu. Jóhannes lauk húsasmíðanámi frá Iðnskólanum í Reykjavík. Hann starfaði lengst af í Reykjavík við smíðar og síðustu árin vann hann hjá Viktori Ægissyni við tjónaviðgerðir hjá Sjóvá. Jóhannes lést við störf á miðjum vinnudegi. Jóhannes var duglegur til vinnu, stundvís og traustur. Hann hafði mikinn áhuga á útivist og veiðiskap. Aðallega var veiðistöngin honum hugleikin og átti hann margar stund- ir við Elliðavatn. Þar kynntist hann góðum mönnum sem áttu sér sama áhugamál. Ekki var óalgengt að hann væri búinn að fara upp í vatn áður en hann mætti til vinnu að morgni. Ef vel stóð á átti hann til að skreppa í hádeginu líka. Jóhannes var samkvæmur sjálfum sér og var að sjálfsögðu mættur til veiði fyrsta veiðidaginn 1. maí á þessu ári við Elliðavatn. Við minnumst góðs bróður og mágs og sendum börnum hans sam- úðarkveðjur okkar. Þórhallur og Eygló. Á vorin vaknar náttúran af dvala vetrarins og farfuglarnir flykkjast til landsins bláa. Þeir koma sér fyrir á ýmsum stöðum, þar á meðal við nátt- úruperluna Elliðavatn. Þangað sækja líka á vorin mennskir furðu- fuglar sem vita ekkert skemmtilegra en að renna fyrir fisk í vatninu, hlusta á fuglasöng og hver á annan. Jóhannes eða Jói eins og við köll- uðum hann alltaf var einn af okkur furðufuglunum við vatnið. Við erum ekki margir, en höfum sumir bundist vinaböndum sem byggjast aðeins á samveru okkar við vatnið. 1. maí er okkur hátíðisdagur því þá hefst veið- in. Þá er aðalatriðið að hitta fé- lagana, óska þeim gleðilegs sumars og spjalla um veiðina í fyrra og það sem framundan er. Óskin um gleði- legt sumar er fyrst og fremst ósk um margar unaðsstundir við vatnið. Jói var mættur 1. maí síðastliðinn eins og alltaf. Hann var glaður og hress og við stóðum lengi hlið við hlið, köstuðum flugum okkar og spjölluðum mikið því að lítil var veið- in. Við rifjuðum upp gleðistundir lið- ins sumars og Jói sagði mér frá einni af veiðiferðum sínum í Þingvalla- vatn. Nóttina fyrir ferðina dreymdi hann föður sinn sem sagði honum að í dag myndi hann veiða 16 fallegar bleikjur. Jói rambaði á veiðistað sem hann þekkti ekki og þar dró hann hverja stórbleikjuna eftir aðra þang- að til þær voru orðnar 16. Þá fannst honum nóg komið. Laugardaginn 6. maí undruðumst við það margir að Jói kom ekki til veiða í Elliðavatni. Þeir voru ekki margir laugar- og sunnudagarnir í maí sem hann lét ekki sjá sig við vatnið. Við héldum að hann væri að vinna eða kannski veikur. Okkur var því mjög brugðið þegar við fréttum að Jói hefði orðið bráðkvaddur að- eins tveim dögum eftir að við hitt- umst glaðir og kátir við upphaf veiði- tímans. Okkur Elliðavatnskörlunum var hlýtt til Jóa. Hann var hreinskiptinn og einlægur, vildi fá að vita hvaða flugu fiskurinn tæki hjá næsta veiði- manni og svaraði sjálfur slíkum spurningum greiðlega. Hann gerði dálítið af því að hnýta eigin flugur en veiddi líka oft á flugur sem við hinir gaukuðum að honum. Reyndist fluga vel fékk hún virðingarheitið padda hjá Jóa. Hann var einstaklega ötull og þolinmóður veiðimaður sem gladdist yfir góðum feng, hvort sem það var einn vænn fiskur eða margir smærri. Hann virti náttúruna og gjafir hennar. Vorkuldar öftruðu honum ekki frá því að reyna að veiða. Einu sinni var hann orðinn svo lopp- inn á fingrunum að hann kom upp á bílastæði til mín og bað mig um að hnýta flugu á tauminn fyrir sig. Jói var búinn að veiða lengi í Elliðavatni og þekkti það eins og lófann á sér. Einn uppáhaldsstað átti hann en það er steinn langt úti í vatni út af nesi einu skammt frá Elliðavatnsbænum. Það fór líka svo að nesið fékk nafnið Jóhannes. Í vetur smíðaði Einar veiðivörður bekk, skar út í hann urriða og stafina Jóhannes. Og þarna var bekkurinn þegar við kom- um til veiða í vor. Við Elliðavatnskarlar höfum misst góðan félaga. Við söknum hans sárt en hann lifir í minningum okkar og bekkurinn góði er nú þegar orðinn minnisvarði um góðan dreng. Aðstandendum votta ég samúð mína. Björn Guðmundsson. JÓHANNES VÍÐIR SVEINSSONOkkar elskulega HELGA INGVARSDÓTTIR, Eiðismýri 30, andaðist föstudaginn 5. maí. Jarðsett verður frá Dómkirkjunni föstudaginn 19. maí kl. 13.00. Baldur Böðvarsson, Ingvar Jónadab Karlsson, Margrét Stefánsdóttir, Guðrún Soffía Karlsdóttir, Jón Bjarnarson, Hildur Halldóra Karlsdóttir, Gunnar Hrafn Birgisson og fjölskyldur. Elsku bróðir okkar, mágur og frændi, JÓN HERMANN PÁLSSON frá Hjallanesi, Landsveit, andaðist á hjúkrunarheimilinu Lundi á Hellu laug- ardaginn 13. maí sl. Útför hans verður gerð frá Skarðskirkju á Landi laugardaginn 20. maí kl. 11.00. Elsa Dóróthea Pálsdóttir, Magnús Kjartansson, Auðbjörg Fjóla Pálsdóttir, Oddur Ármann Pálsson, Gógó Engilberts og fjölskyldur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLÍNA SIGRÍÐUR JÚLÍUSDÓTTIR, Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði, lést mánudaginn 15. maí. Sigríður Karlsdóttir, Jóhann Ólafur Ársælsson, Þorvarður Karlsson, Rakel Ingvarsdóttir, Karitas Rósa Karlsdóttir, Júlíus Karlsson, Þóra Vilbergsdóttir, Guðmundur Karlsson, Björg Gilsdóttir. Ástkær systir, mágkona og frænka, JÓHANNA KRISTJÁNSDÓTTIR, áður Stigahlíð 32, Reykjavík, andaðist á líknardeild Landakotsspítala mánu- daginn 15. maí. Valgerður Þ. Kristjánsdóttir, Gunnar J. Kristjánsson, Erla Kristjánsdóttir, Sigrún Kristjánsdóttir og fjölskyldur. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BJÖRNFRÍÐUR ÓLAFÍA MAGNÚSDÓTTIR fyrrum bóndi og húsfreyja, Ketilseyri, Dýrafirði, lést fimmtudaginn 11. maí. Jarðarförin fer fram frá Þingeyrakirkju laugardaginn 20. maí kl. 14.00 Þórður Jakob Sigurðarsson, Líni Hannes Sigurðsson, Gunnhildur Björk Elíasdóttir, Guðfinna Sigríður Sigurðardóttir, Samúel Jón Guðmundsson, Gunnar Gísli Sigurðsson, Friðfinnur Sigurður Sigurðsson, Sigríður Helgadóttir, Sigurbjörn Ingi Sigurðsson, Marta Bjarnadóttir, Magnús Sigurðsson, Sigríður Þórdís Ástvaldsdóttir, Rafn Sigurðson, Guðný Erla Sigurðardóttir, Jón Steinar Guðmundsson, Jón Reynir Sigurðsson, Ingibjörg Ósk Vignisdóttir, Helga Björk Sigurðardóttir, Þórir Jens Ástvaldsson, Sunna Mjöll Sigurðardóttir, Óskar Jóhann Sigurðsson, Guðbjörg Leifsdóttir, Ómar Dýri Sigurðsson, Guðrún Íris Hreinsdóttir, Smári Sigurðsson, Alda Ólfjörð Jónsdóttir, Þrúður Sjöfn Sigurðardóttir, José Luis Garcia, Sigurborg Guðrún Sigurðardóttir, Axel Jespersen, ömmu- og langömmubörn. Ástkær móðir okkar, dóttir og systir, HREFNA MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR, Sléttahrauni 28, Hafnarfirði, lést sunnudaginn 14. maí. Útförin verður auglýst síðar. Hrefna Freyja Friðgeirsdóttir, Ásthildur Friðgeirsdóttir, Oddrún Lára Friðgeirsdóttir, Hrefna Árnadóttir, Ásdís Elín Guðmundsdóttir, Claus H. Magnússson, Anna Guðmundsdóttir, Árni S. Unnsteinsson, aðrir aðstandendur og vinir. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir og afi, VIGFÚS GUÐBRANDSSON, Dimmuhvarfi 7, Kópavogi, lést á Landspítala Háskólasjúkrahúsinu í Foss- vogi þriðjudaginn 16. maí. Jarðarförin auglýst síðar. Jóhanna Eydís Vigfúsdóttir, Þorbjörn Bjartmar Björnsson, Ásgerður Fríða Vigfúsdóttir, Fjölnir Ernis Sigvaldason, Aðalbjörg Sigurrós Vigfúsdóttir, Guðmundur Magnús Elíasson, Jófríður Guðbrandsdóttir, Andri Már Halldórsson, Hulda María Þorbjörnsdóttir, Róbert Högni Þorbjörnsson, Úlfur Benedikt Fjölnisson, Anton Vigfús Guðmundsson, Ísól Hanna Guðmundsdóttir, Jónatan Magnús Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.