Morgunblaðið - 14.07.2006, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
HER Ísraels herti árásir sínar á
Líbanon í gær, setti hafnbann á land-
ið og varpaði sprengjum á eina al-
þjóðaflugvöll þess. Eru þetta hörð-
ustu loftárásir Ísraela á Líbanon í 24
ár.
Tugir Líbana liggja í valnum og
báðir aðilar hafa teflt á tæpasta vað-
ið eftir að liðsmenn Hizbollah-hreyf-
ingarinnar tóku tvo ísraelska her-
menn til fanga í árás í Norður-Ísrael
í fyrradag. Ísraelar freista þess að
hrekja vopnaðar sveitir Hizbollah
frá landamærunum að Ísrael en liðs-
menn hreyfingarinnar hafa svarað
með flugskeytaárásum á Ísrael og
einsett sér að knýja Ísraela til að láta
arabíska fanga lausa.
Háttsettir embættismenn í Ísrael
sögðu í gær að markmiðið með hern-
aðinum væri ekki aðeins að hrekja
liðsmenn Hizbollah frá landamærun-
um, heldur einnig að knýja ríkis-
stjórn Líbanons til að afvopna þá
eins og kveðið er á um í ályktunum
öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.
„Stjórn Ísraels vill breyta leik-
reglunum í Líbanon og koma ríkis-
stjórn landsins í skilning um að hún
ber ábyrgð á því sem gerist í Líb-
anon,“ sagði Shalom Simchon, land-
búnaðarráðherra Ísraels.
Amir Peretz, varnarmálaráðherra
landsins, sagði að Ísraelsher ætti að
koma í veg fyrir að vopnaðir liðs-
menn Hizbollah gætu gert árásir á
Ísrael frá sunnanverðu Líbanon.
Þúsundir íbúa bæja í Norður-Ísrael
dvöldu í loftvarnabyrgjum vegna
flugskeytaárása Hizbollah. Minnst
tveir Ísraelar létu lífið og 35 særðust
í árásunum.
„Láti ríkisstjórn Líbanons hjá líða
að senda her sinn á vettvang, eins og
búist er við af fullvalda ríki, sjáum
við sjálfir til þess að skæruliðar Hiz-
bollah verði ekki lengur við landa-
mæri Ísraelsríkis.“
Stjórn Líbanons hefur ekki viljað
fjölga hermönnum sínum við landa-
mærin og sagt að það sé ekki í verka-
hring hennar að vernda Norður-Ísr-
ael.
Loftárásir Ísraela í gær og fyrra-
dag eru mesti lofthernaður þeirra
gegn Líbanon frá innrás Ísraelshers
í landið árið 1982.
Ísraelsk herskip voru við strendur
Líbanons til að loka höfnum landsins
og sprengjum var varpað á allar
þrjár flugbrautir alþjóðaflugvallar-
ins í Beirút. Ísraelsstjórn sagði að
markmiðið með hafnbanninu og
árásinni á flugvöllinn væri að koma í
veg fyrir „flutninga á vopnum og
öðrum birgðum til hryðjuverka-
hreyfingarinnar Hizbollah“.
„Enginn staður óhultur“
Ísraelsher hefur einnig gert loft-
árásir á vegi, brýr, vígi vopnaðra
liðsmanna Hizbollah og heimili leið-
toga hreyfingarinnar.
Forseti ísraelska herráðsins, Dan
Haltuz, sagði að hernaðinum yrði
haldið áfram eins lengi og þörf krefði
og gaf til kynna að ráðist yrði á fleiri
skotmörk. „Enginn staður er óhult-
ur. Svo einfalt er það.“
Hizbollah hótaði í gær árásum á
borgina Haifa og nágrenni hennar í
Norður-Ísrael ef gerðar yrðu loft-
árásir á Beirút. Fyrr um daginn lýsti
hreyfingin yfir því að hún beitti nú
langdrægari flugskeytum en áður.
Ætla að knýja Líbana
til að afvopna Hizbollah
AP
Lík borið úr húsarústum í Suður-
Líbanon eftir loftárás Ísraela í gær.
FILIPPEYSK börn leika sér í vatninu í Malabon, einu
úthverfa Manila-borgar, í gær en hitabeltisstormurinn
Bilis olli því að mikil flóð urðu í Manila. Allir skólar
voru lokaðir í borginni í gær, annan daginn í röð, en
Bilis hefur haft í för með sér gífurlegar rigningar sem
gert hafa samgöngur erfiðar og kostað tólf manns lífið.
Þá olli Bilis aurskriðum í borginni Baguio norðarlega á
Filippseyjum og fór þar fjöldi húsa og bíla undir aur.
Gert var ráð fyrir að Bilis yrði genginn yfir í dag, en
hann var á leið til Taívan.
AP
Mikil flóð í Manila
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
LJÓST er að dauði Shamíls Basajevs, leið-
toga uppreisnarmanna í Tétsníu, veikir hreyf-
ingu herskárra Tétsena. Fréttaskýrendur eru
hins vegar ekki á einu máli um áhrifin þegar
til lengri tíma er litið; sumir segja að átök
herskárra Tétsena og rússneskra hersveita
muni fjara út á meðan aðrir óttast að róttæk-
ir Tétsenar fylki sér nú á bakvið samtök ísl-
amista.
Stjórnvöld í Moskvu segja að Basajev hafi
verið felldur í aðgerðum rússneskra örygg-
issveita, en tétsenskir skæruliðar segja
dínamít í farartæki Basajevs hafa sprungið
fyrir slysni í Ingúsetíu – öðru rússnesku
sjálfsstjórnarsvæði á Norður-Kákas-
ussvæðinu – árla morguns á mánudag, með
þeim afleiðingum að hann beið bana.
Hitt skiptir meira máli að með Basajev er
fallinn vægðarlausasti foringi skæruliða í
Tétsníu; Basajev er alræmdur fyrir að hafa
skipulagt gíslatöku í leikhúsi í Moskvu 2002,
sem endaði með ósköpum, og einnig í barna-
skóla í Beslan 2004, þar sem meira en 300
manns týndu lífi, helmingurinn börn.
En Basajev var raunar löngu áður orðinn
þekktur fyrir harkalega framgöngu og virtist
una sér best í stríði. Hann var í Nagorno-
Karabakh 1992, þegar allt logaði þar í átök-
um á milli Armena og Asera, hann var einnig
í Abkhazíu 1993 þegar aðskilnaðarsinnar risu
upp gegn yfirráðum Georgíustjórnar og hann
var síðan í fararbroddi uppreisnarmanna þeg-
ar stríð braust út í Tétsníu 1994.
Samið var um frið í „fyrra stríðinu“ í Téts-
níu 1996 en upp úr sauð að nýju 1999 og var
það sú ákvörðun Basajevs að ráðast inn í Da-
gestan, annað rússneskt sjálfsstjórnarhérað,
sem hratt átökum á milli rússneska hersins
og tétsenskra uppreisnarmanna af stað á ný.
Thomas de Waal, sérfræðingur við Insti-
tute for War and Peace Reporting, segir í
grein í The Moscow Times að Basajev hafi
hatast mjög við Rússland; ástæðan var ekki
síst sú að árið 1995 dóu ellefu nánir ættingjar
hans í loftárásum Rússa í Tétsníu.
Dauði Basajevs er sigur fyrir rússnesk
stjórnvöld, ekki síst þegar haft er í huga að
þar með eru fallnir á skömmum tíma þrír
helstu leiðtogar herskárra Tétsena. Aslan
Maskhadov var drepinn í mars 2005 og arf-
taki hans sem pólitískur leiðtogi hins yf-
irlýsta sjálfstæða lýðveldis Tétsena, Abdul-
Halim Sadulajev, féll í síðasta mánuði. Segja
sumir fréttaskýrendur að dauði Basajevs
marki því tímamót. Þeirri stjórn sem nú ríkir
í Grozní, og hliðholl er Moskvu-stjórn, hafi
gengið vel að fá íbúa Tétsníu á sitt band.
Einu uppreisnaröflin, sem eftir hafi verið og
eitthvað getað látið að sér kveða, hafi verið
sveitir Basajevs.
De Waal er ekki sannfærður, segir að
dauði Basajevs komi mörgum árum of seint –
og ekki bara vegna þess að mörg hundruð
manns kynnu að vera á lífi í dag ef hann
hefði verið horfinn af sjónarsviðinu. Bendir
de Waal á að ungir menn, Tétsenar á þrí-
tugsaldri, þekki ekkert nema blóðuga baráttu
undanfarins áratugar. Slíkir menn hafi horft
á eftir ástvinum, hafi hugsanlega sjálfir sætt
pyntingum af hálfu rússneskra öryggissveita.
Þeir hafi enga menntun hlotið. Nú hafi slíkir
menn horft á eftir öllum leiðtogum sínum.
Spurningin sé sú hvað þeir geri næst. Hætta
sé á að þeir fylki sér á bakvið íslamska hópa
sem sprottið hafi upp á Norður-Kákas-
ussvæðinu undanfarin fimm ár. Það séu ekki
endilega góðar fréttir.
Með Shamíl Basajev er fallinn vægðarlausasti leiðtogi tétsenskra skæruliða
Gæti stuðlað að endalokum átaka
AP
Shamíl Basajev kippti sér lítt upp við það þó
að saklaus börn féllu í Beslan 2004.
JAPANSKIR vísindamenn
hafa smíðað búnað sem getur
framkvæmt greiningu á lykt,
varðveitt upplýsingarnar með
stafrænum hætti og framkallað
lyktina á nýjaleik með því
blanda saman 96 mismunandi
efnasamböndum. Frumgerð
búnaðarins er þó um einn rúm-
metri að stærð og því nokkuð
stór fyrir ferðatöskuna, að því
er fram kemur í frétt á vefsíðu
danska dagblaðsins Jyllands-
Posten.
Vísindamennirnir tólf sem
um ræðir starfa hjá Tokyo
Institute of Technology, en þeir
hafa unnið að verkefninu frá
árinu 1999. Frumgerðin sem
þeir hafa smíðað notar 15 mæla
til að greina lykt, en tæknina
mætti jafnvel síðar nota í far-
síma sem gætu miðlað mynd og
lykt. Vísindamennirnir eru
bjartsýnir á að smærri og
handhægari útgáfa búnaðarins
muni slá í gegn.
Varðveitir
lyktina
stafrænt
HERNAÐUR Ísraela í gær og
fyrradag minnir óþyrmilega á lang-
vinnt og blóðugt hernám Líbanons
eftir innrás Ísraelshers árið 1982.
„Stríð,“ sagði í flennifyrirsögn í
gær á forsíðu söluhæsta dagblaðs
Ísraels, Yediot Aharonot. „Stríðs-
yfirlýsing,“ sagði dagblaðið Maa-
riv.
Blöðin sögðu að árás Hizbollah í
fyrradag hefði komið Ísraelsher í
opna skjöldu og herinn var sakaður
um að hafa sofnað á verðinum. Yf-
irmenn í hernum bentu hins vegar á
forsætisráðherra og varn-
armálaráðherra landsins, sem eru
reynslulitlir í hermálum, og sögðu
þá hafa forðast harkalegar aðgerð-
ir til að tryggja öryggi landsins.
Fréttaskýrandinn Sever Plotzker
segir í grein í Yediot að Ísraelar
séu í mjög erfiðri stöðu þar sem
þeir þurfi að berjast á tvennum víg-
stöðvum – við Hizbollah í Suður-
Líbanon og Hamas á Gaza-svæðinu.
Hvorug hreyfinganna viðurkenni
tilvistarrétt Ísraelsríkis og þetta sé
því stríð sem Ísraelar verði að
vinna hvað sem það kosti. Fari Hiz-
bollah og Hamas með sigur af hólmi
sé „Ísraelsríki búið að vera“.
Aðrir vöruðu við því að stríðið
gæti breiðst út og leitt til átaka
milli Ísraela og Sýrlendinga sem
hafa stutt Hizbollah. „Ísraelar
standa frammi fyrir hættunni á því
að þriðju vígstöðvarnar myndist ef
Sýrlendingar koma Hizbollah til
hjálpar. Ísraelar standa andspænis
fjórþættum ofstopaþurs: Hamas,
Hizbollah, Sýrlandi og Íran,“ sagði
Haaretz.
„Heimsbyggðin sættir sig ekki
við harða árás á Sýrland, sem gæti
leitt til stríðs,“ sagði þó Yediot.
„Það
er stríð“
RÁÐAMENN voldugustu ríkja
heims reyndu í gær að koma í veg
fyrir að átök Ísraela og Hizbollah
leiddu til allsherjarstríðs í Mið-
Austurlöndum.
George W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, kenndi Hizbollah um
átökin og sagði að Ísraelar hefðu
rétt til að verja sig. Hizbollah væri
„hryðjuverkahreyfing“ sem vildi
„stöðva framrás friðarins“.
Stjórnvöld í Rússlandi, Frakk-
landi, Bretlandi og fleiri löndum
gagnrýndu hins vegar Ísraela fyrir
„óhóflegan“ hernað sem bitnaði á
saklausu fólki. Ráðamennirnir for-
dæmdu árás Hizbollah og hvöttu
báða aðila til að forðast aðgerðir
sem gætu leitt til enn meiri blóðs-
úthellinga og allsherjarstríðs.
Óttast alls-
herjarstríð