Morgunblaðið - 14.07.2006, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 14.07.2006, Qupperneq 16
Fasteignasala Lögmanna Suðurlandi Austurvegi 3, 800 Selfoss 480 2900 - log.is Höfum fengið til sölu 18,9 ha spildu úr jörðinni Ási III, Ásahreppi. Seljandi er innflutningsaðili fyrir kanadísk einingahús og er hægt að velja um nokkr- ar gerðir húsa. Kalda- og heitavatnslagnir liggja nálægt landinu. Möguleiki á háhraðatengingu. Nánari upplýsingar á skrifstofu og einnig á www.log.is Löggiltir fasteignasalar: Ólafur Björnsson hrl. & Sigurður Sigurjónsson hrl. Ás III, Ásahreppi Grundarfjörður | Skúturnar 19 sem þátt taka í siglingakeppn- inni Skippers d’Islande voru ræstar í Grundarfjarðarhöfn kl. 17 í fyrradag. Skömmu síðar lagði skólaskip franska sjóhers- ins gólettan L’Etoile af stað í humátt á eftir keppnisskút- unum. För þeirra er nú heitið til hafnar í Paimpol á ný en þaðan lögðu þær af stað 24. júní sl. Frá Reykjavík var síðan haldið til Grundarfjarðar 8. júlí og nú er komið að heimferð á ný. Fyrir höndum er um 1300 sjómílna sigling og gert ráð fyrir að þær fyrstu verði í höfn í Paimpol 21. júlí. Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson Frönsk fley á heimleið Glæsileg góletta Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 569-1100, Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is FJÖLDI bæjarhátíða fer fram víða um land, þessa helgi eins og margar í sumar.    Ísafjörður | Útilífveran er útivistarhátíð í Ísafjarðarbæ og dagskráin er þannig úr garði gerð að allir með snefil af áhuga á úti- vist eiga að finna eitthvað við sitt hæfi. Kaj- akferðir, fjallahjólakeppni, víðavangshlaup, bátadagur fjölskyldunnar, hundaþrauta- keppni, golfmót, gönguferðir, varðeldur, háskagrillun, fjallaferðir, barnadagskrá, fallhlífastökksýning, púttmót h-eldri borg- ara og margt fleira er í boði. Hátíðin verður sett á Silfurtorgi kl. 16.30 í dag.    Þórshöfn | Kátir dagar hefjast í dag. Kassabílarall verður í skrúðgarðinum og fótbolti á vellinum. Kvöldvaka fyrir börn og unglinga en hljómsveitin Hundur í óskilum í Þórsveri skemmtir fólki frá 18 ára. Hljóm- sveitin Legó spilar á Eyrinni. Á laugardag er dorgveiðikeppni, fótboltamót, fjöl- skylduratleikur og fleira. Útimarkaður við íþróttavöllinn, hoppukastali og andlitsmáln- ing. Leiksýning fyrir börn og myndlist- arsýning í grunnskólanum en á Eyrinni verður sjávarréttahlaðborð. Brennan sí- vinsæla á laugardagskvöldið og frá mið- nætti stórdansleikur með Pöpum í Þórs- veri. Á sunnudag er aflraunakeppni karla og kvenna, Langanesvíkingurinn.    Stokkseyri | Bryggjuhátíðin Brú til brott- fluttra er fjölbreytt hátíð sem hófst með Hljómsveitatónleikum í gærkvöldi. Í kvöld verður fjölskylduhátíð á Stokkseyr- arbryggju og nýtt tónleikasvið opnað með bryggjusöng Árna Johnsen og varðeldi. Bítlavinafélag Suðurlands kemur fram, sælgæti dreift úr flugvél og listflug sýnt. Hljómsveitin Karma á Draugabarnum. Fjölmargt í boði á morgun, minigolf, vespu- leiga, börnum boðið á hestbak í Töfragarð- inum, Fjöruborðið býður humar, súpu og lambakjöt, ýmsar sýningar í gangi og sand- kastalakeppni. STOKK-ROKK tónleikar með fjölmörgum unglingahljómsveitum, trúbadorinn Ingvar og Hera um kvöldið. Áfram fjölbreytt dagskrá á sunnudag.    Blönduós | Á fjölskylduhátíðinni Húna- vöku kennir ýmissa grasa í dagskránni. Fjölskylduskemmtun, bakkasöngur, tón- leikar í Blönduóskirkju, markaðstjald, víða- vangshlaup, söngkeppni barna og unglinga, harmónikkudansleikur, sundlaugarpartý og margt fleira. Meðal þeirra sem koma fram eru Ómar Ragnarsson, Stuðmenn, Ar- dís Ólöf, Hundur í Óskilum Group, Ingó Idol og Veðurguðirnir, Ronja Ræn- ingjadóttir, Bangsímon og Jóna Fanney Svavarsdóttir. Fjöldi sýninga verður á Blöndósi yfir helgina, m.a. í Hafíssetrinu þar sem Þór Jakobsson veðurfræðingur mun verða með leiðsögu um safnið. Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Unnið er nú hörðumhöndum að um-hverfisfegrun og tiltekt, því Þórshafnarhá- tíðin Kátir dagar er um helgina. Í unglingavinn- unni er mikið að gera, krakkarnir vinna vel eins og sjá má á blöðrum og siggi á höndum þeirra að kvöldi. Húsnæði matvöruversl- unarinnar Lónsins þarfn- aðist sárlega andlitslyft- ingar svo stjórn fyrirtækisins tók sig til einn sólardag í vikunni og málaði bygginguna að ut- an. Íbúar vilja taka vel á móti gestum enda hefur verið fjölmennt á Kátum dögum síðastliðin ár og ýmislegt verður gert til skemmtunar um helgina. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Í óðaönn við undirbúninginn Rúnar Kristjánsson yrkir: Aðallinn sem áður réði olli flestum stórri neyð. Alþýðan að bleikum beði barin var um alda skeið. Að því kom að böðlabullur bundu ei lengur fjöldann þann. Mælirinn var meira en fullur, múgurinn af hatri brann. Bastillan var brotin niður, byltingin þá fór af stað. Fylgdi annar ógnarsiður, allir geta kynnt sér það. Aðallinn sem áður réði ekki fékk þá nokkur grið. Maður varð úr mörgu peði, menntir nýjar tóku við. Þjóðarréttinn þroskahlýjan þarf að verja lífs um svið. Ef menn skapa aðal nýjan aftur tekur hatrið við. Á Bastilludegi pebl@mbl.is ♦♦♦ Reykjanesbær | Ríkisstjórnin hefur lagt fram tilmæli til sveitarfélaga um aukið að- hald í framkvæmdum á næstu mánuðum til að stemma stigu við efnahagsþenslu. Reykjanesbær hefur ákveðið að bregðast við tilmælunum þótt bæjarstjórn telji síst góðar aðstæður til þess nú. Í tilkynningu frá bænum segir: „Í mars- mánuði þessa árs stóð Reykjanesbær frammi fyrir tilkynningu Bandaríkjahers um brotthvarf Varnarliðsins … Starfs- menn á varnarsvæðinu sem búsettir eru í Reykjanesbæ eru um 630 talsins. Svo skammur breytingatími kallar á víðtækar aðgerðir í sköpun vel launaðra starfa … Af þessum sökum er erfitt um vik fyrir sveitarfélagið að draga úr framkvæmdum sem eru atvinnuskapandi í bæjarfélaginu á sama tíma og fólk er að missa störf sín á varnarliðssvæðinu. Kröfur um tímabundið aðhald í framkvæmdum nú ættu því síst að eiga við í tilviki Reykjanesbæjar. Á hitt ber að líta að tímabundið átak allra um aðhald í framkvæmdum til að viðhalda sterkri stöðu efnahagslífsins er mikilvægara en erfiðar aðstæður einstakra svæða, þótt taka beri tillit til slíkra aðstæðna. Því vilja forsvarsmenn Reykjanesbæjar sýna jákvæða viðleitni …“ Þetta verður gert með því að Reykjanesbær stuðlar að frestun eftirfarandi framkvæmda: Þjóðbraut – (256 milljóna framkvæmda- kostnaði frestað næstu 8 mánuði). Bæjarskrifstofur sameinaðar – ( 220 millj. kr. frestað næstu 8 mánuði). Ráðstefnu- og tónlistarmiðstöð. (180 millj. kr. frestað næstu 8 mánuði). Bregst við tilmælum ríkisstjórnar Hellissandur | Á laugardaginn, 15. júlí nk., verður Tröð við Hellissand á Snæfellsnesi, svæði Skógræktar- og landverndarfélags- ins undir Jökli, opnað formlega undir merkjum „Opins skógar“ skógræktar- félaganna. Tröðin er gróðurvin í alfaraleið við ut- anverðan Snæfellsjökul, skammt frá Sjó- minjasafninu, íþrótta- og tjaldsvæðunum og í auðveldu göngufæri frá Hellissandi. Árið 1950 hóf Kristjón Jónsson ræktun í Tröð og þótti hann ná undraverðum ár- angri á þessum fallega stað í hrauninu. Síð- ustu mánuðina hefur verið unnið að því að gera alla aðstöðu í Tröð sem besta. Þar eru fjölmargar trjátegundir, sem hafa verið merktar, gerðir hafa verið göngustígar og sett upp borð og bekkir og grillaðstaða. Skjólgott er í Tröðinni. Hátíðin hefst í Tröð klukkan 15 með ávörpum og ljóðalestri. Einar K. Guðfinns- son sjávarútvegsráðherra opnar skóginn með táknrænum hætti. Þá verður gengið um Tröðina og aðstaðan og skógurinn skoðaður. Boðið verður upp á léttar veit- ingar í lokin. Gróðurvin opn- uð almenningi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.