Morgunblaðið - 14.07.2006, Page 48

Morgunblaðið - 14.07.2006, Page 48
48 FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING BÁTAHÚSIÐ, hið merka skipasafn Siglfirðinga, var ramminn um fyrri af tvennum sölsutónleikum föstudags- kvöldsins. Myndaði sú músík óneitan- lega mikla andstæðu við klassísku píanótónleika Kwetzinskys rétt á undan, enda þótt allt tónefni dagsins væri hvert með sínum hætti á þjóð- legum nótum. Fór spilamennskan sem fyrr á þeim stað fram á þilfari síldarskipsins Týs SK 33, eikarbát frá 1947, og voru „viðlegukantar“ húss- ins það þéttsetnir að ómögulegt reyndist að finna sæti nema stjórn- borðsmegin þar sem hljómsveit og hátalarar sneru baki við þessum hlustanda. Fyrir vikið heyrðust ekki orðaskil úr kynningum Bogomils, hvað þá söngtextum. Í fjarveru tón- leikaskrár var því ógerningur að henda reiður á dagskrárliðum nema að vera þaulkunnugur viðfangsefnum hljómsveitarinnar. Svo var ekki í mínu tilviki, og nægir því frá að greina að stemningin var með bezta móti eftir áköfum undirtektum að dæma. Að vísu þótti mér heldur kyndugt að halda tónleika með rakinni dans- músík þar sem enginn dansaði (fyrir utan plássleysið virtist slíkt athæfi að auki háskalegt í stöðunni þareð leggjabrjótsdjúpt sýndist niður á fast, jafnvel þótt spennt væri nælon- net milli borðstokks og bryggju). En sem fyrr segir kom það hvergi niður á viðtökum þó að hlustendur gætu í mesta lagi ruggað sér í sætum, líkt og Pólýnesíumenn dönsuðu sitjandi í langferðabátum sínum um Kyrrahaf. Músíkin virtist enda þétt og heit, að svo miklu leyti sem heyrt varð bak- sviðs þar sem samvægið hlaut að fara út og suður. Dunandi kyrrseta Sportbarinn Allinn að Túngötu myndaði umgjörð seinni sölsutón- leika kvöldsins, og var þar horfið norðvestur úr heimaeylandi reggaes- ins til Kúbu mambós og rúmbu. Enn var fullt út úr dyrum. Hljómsveitin undir forystu Tómasar R. Einars- sonar og Matthíasar Hemstock var einhver sú slagverksvæddasta sem ég hef eyrum barið, því auk hljóm- borðs, bassa, trompets og básúnu lúðu þar heilir sex manns sláttarfæri ef trommusett Matthíasar er með- talið. Hrynsveitin var því óhætt að segja fullskipuð og kitlaði enn meir danshvötina en áður heyrðist í Báta- húsinu, þó aðeins bæri eitt par slíkt við í öllum þrengslunum. Lúðrana þeyttu tvær ungar og ónefndar stúlkur af samstilltri smekkvísi eftir nótum, og hefðu að ósekju mátt vera helmingi fleiri, því þaðan barst nánast eini lagræni þátt- ur kvöldsins. Fór sú tilhögun að fyrra bragði svolítið í pirrur undirritaðs, eða þar til löngu eftir á afhjúpaðist að bandið var að mestu skipað nem- endum af slagverksnámskeiði þeirra sölsuhöfðingja. En eins í fyrra fallinu kom það ekki í veg fyrir rífandi stemmningu, jafnvel þótt allir sætu að heita má sem fastast undir blóð- heita suðræna danslagaflæðinu. Latneskir kokkteil–sósudansar TÓNLIST Bátahúsið / Allinn Jamaíka! Bogomil Font og Flís tríóið (kl. 21:30). / Kúbana: Tómas R. Einarsson bassi, Matthías Hemstock trommur ásamt félögum (kl. 23). Föstudaginn 7. júlí. Þjóðlagahátíð á Siglufirði Ríkarður Ö. Pálsson Morgunblaðið/ÞÖK Bogomil Font og tríóið Flís léku saman í Bátahúsinu á Siglufirði. Það vakti mörgum blendnarkenndir þegar óperusöng-konan Deborah Voigt var rekin frá Konunglegu óperunni í Covent Garden í London árið 2004, fyrir það að vera of feit. Það blandaðist engum hugur um að Voigt væri ein stórkostlegasta söngkona okkar tíma, afburða hæfileikarík og afar eftirsótt. En hún var of feit. Rökin sem Konunglega óperan færði fyrir uppsögninni á sínum tíma, voru þau, að Voigt myndi ekki klæða fallegur búningur – lítill svartur kvöldkjóll, sem hannaður hafði verið fyrir hlutverk Ariödnu á Naxos. Því var grennri söngkona fengin til að syngja hlutverkið þá. Það varð auðvitað allt vitlaust, og óperufólk var upp til hópa mjög ósátt við það að verri grönn söng- kona væri ráðin á kostnað þeirrar þéttholda, sem var þá, og er enn, í fremstu röð. Gat kjóldulan vegið þyngra en mögnuð rödd Deboru Voigt? Söngvarar sem eitthvað kvað að, sýndu Deboru Voigt samstöðu, og sýttu það að óperuheimurinn væri dottinn í sama pytt og skemmtana- bransinn – að staðalímyndir og út- litsdýrkun vægju þyngra en hæfi- leikar. Það þótti líka sýnt að konur fengju fyrr að finna fyrir slíkri hörku en karlar. Luciano Pavarotti, sem margir telja fremsta tenorsöngvara okkar tíma, hefur sjálfur árum saman borið ófá aukakíló með sér um óperusvið heimsins. Engu að síður var hann vafalítið eftirsóttasti söngvari okkar daga, meðan hann var upp á sitt besta, þótt vissulega hafi vöxtur hans og holdafar verið til umræðu. Þegar Deborah Voigt var rekin fyrir vaxtarlagið, sumarið 2004, brást hann illa við. „Mér hefur allt- af þótt það stórkostlegt, og jafnvel framsækið, svo tvírætt sem það kann að hljóma, að óperan skuli hafa verið eina grein menningar- miðlunar og skemmtunar, þar sem ekki hafa ríkt fordómar gagnvart útliti og vaxtarlagi fólks,“ sagði stjörnutenorinn þá, í samtali við fjölmiðla, og bætti við: „Hvers vegna í ósköpunum þarf söngkona í aðalhlutverki að vera af einni stærð en ekki annarri? Voigt syngur dásamlega og er mikill listamaður. Það vill nú þannig til, að margir framúrskarandi söngvarar eru grannir, og margir framúrskarandi söngvarar eru það ekki.“ Renee Fleming, sem einnig er í stórskotaliði óperusöngvara í dag – landa Deboruh Voigt ásakaði ráðn- ingarstjóra óperuhúsanna fyrir hræsni og sagðist aldrei myndu ráða vel vaxna söngkonu með með- alrödd, ef framúrskarandi söng- kona eins og Voigt væri tiltæk. Hún kvaðst sjálf hafa misst af hlut- verkum vegna útlits, en Fleming þykir fögur og er ósköp „normal“ í vexti. Fleming sagði að þegar söngvarar hefðu þvílíka raddfeg- urð og slíka listræna hæfileika sem Voigt, – þá skipti útlit ekki nokkru einasta máli; stjörnur af þeim burð- um væru hafnar yfir slíkt. Kolbeinn Ketilsson óperusöngv- ari sagði frá því í viðtali við Morg- unblaðið um daginn, er hann var beðinn um að leysa af í óperunni Tristan og Ísold eftir Wagner í Par- ís, með nánast engum fyrirvara. Þar var mótsöngkona hans í hlut- verki Ísoldar engin önnur en De- bora Voigt. „Ég hitti Deboru Voigt rétt fyrir tónleikana og hún kynnti sig: „Hi, I’m Debbie.“ Ég er búinn að syngja með mörgum frægum söngvurum en hún er alveg sérstök. Hún er númer eitt í þessu fagi í dag,“ sagði Kolbeinn um Deboru Voigt.    Í Hollywood hafa þyngdarlög-málin vegið þungt, – og má kannski segja að vel hafi komið á vondan þegar Bretar stóðu frammi fyrir því, að draumasöngkona þeirra og fyrrum barnastjarna, Charlotte Church, missti af hlut- verki í kvikmynd byggðri á Óperu- draugnum, þar sem hún þvertók fyrir að fara í megrun fyrir hlut- verkið. Um tíma virtust „feitar“ konur vera orðnar að þráhyggju í leik- og óperuhúsum, og jafnvel í dansveldinu mikla í Bolshoi, var prímadonnan Anastasia Voloch- kova, ein þekktasta og virtasta ball- erína Rússa rekin, en í tilkynningu leikhússins um brottreksturinn var ástæðan sögð sú, að hún væri orðin það þung að meðdansarar hennar gætu ekki lengur lyft henni.    Deborah Voigt hvarf þegjandiog hljóðalaust frá London sumarið 2004, og síðar sama ár tók hún þá ákvörðun að undirgangast skurðaðgerð. Í kjölfarið missti hún 61 kíló. Hún hætti hins vegar ekki að syngja og vera elskuð og dáð. Fáum sögum hefur hins vegar farið af sönkonunni Anne Schwane- wilms, sem varð fræg á einni nóttu fyrir að hafa verið „sú sem passaði í svarta kjólinn“. Eflaust hefur hlut- skipti hennar ekki verið öfundsvert heldur – að hafa verið ráðin út á út- litið, þegar miklu betri söngkona var tiltæk.    Fyrir brottreksturinn hafði þeg-ar verið samið um það að Deborah Voigt myndi syngja hlut- verk Ariödnu á Naxos að nýju í Konunglegu óperunni starfsárið 2007–8. Nú í vikunni var tilkynnt að Deborah Voigt hefði verið endur- ráðin að óperuhúsinu og að hún myndi syngja hlutverk Ariödnu þar, að ári. Voigt er auðmjúk, – stoltið ekkert að flækjast fyrir henni frekar en kílóin. Talsmaður söngkonunnar, Albert Imperato, sagði við það tækifæri að Voigt væri afar spennt yfir því að komast á Lundúnasviðið á nýjan leik, og að henni hefði ekki fundist hún hafa fengið sanngjarnt tækifæri í óperuborginni London til þessa. Hann sagði að söngkonunni hefði sárnað mjög atburðirnir sumarið 2004, og að fá ekki þá að syngja hlutverk Ariadne. Hún hefði ákveðið að gangast undir aðgerð – en hefði þá verið búin að ígrunda það lengi af eigin heilsufarsástæð- um – löngu fyrir daga litla svarta kjólsins. Söngkonan og svarti kjóllinn ’„Mér hefur alltaf þóttþað stórkostlegt [...] að óperan skuli hafa verið eina grein menningar- miðlunar [...] þar sem ekki hafa ríkt fordómar gagnvart útliti og vaxtar- lagi fólks.“ ‘ Deborah Voigt var rekin frá Konunglegu óperunni í Covent Garden í London. Ástæðan var sú að hún passaði ekki í kjól. begga@mbl.is AF LISTUM Bergþóra Jónsdóttir Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju 15. júlí kl. 12.00: Ji-Youn Han, orgel. 16. júlí kl. 20.00: Ji-Youn Han frá Kóreu leikur verk eftir Bach, Mozart, Duruflé og Reubke. Sixties í kvöld Stór og fjölbreyttur sérréttaseðill öll kvöld vikunnar. www.kringlukrain.is Sími 568 0878 Mr. Skallagrímsson - leiksýning í Borgarnesi MIÐAPANTANIR Í SÍMA 437 1600 Höfundur/leikari: Benedikt Erlingsson Leikstjóri: Peter Engkvist Leikhústilboð. frá kr. 4000 - 4800 Matur, leiksýning og frítt í Hvalfjarðargöngin til baka. í boði Landnámsseturs Fös. 14. júlí kl. 20 uppselt Lau. 15. júlí kl. 20 uppselt Sun. 16. júlí kl. 15 aukasýning Sun. 16. júlí kl. 20 örfá sæti Fös. 21. júlí kl. 20 örfá sæti Lau. 22. júlí kl. 20 örfá sæti Sun. 23. júlí kl. 20 örfá sæti Fös. 28. júlí kl. 20 Lau. 29. júlí kl. 20 Sun. 30. júlí kl.20                                                        !  "  #$     % & '   !()* #$             !()* #$          + ,             BRASILÍSKI söngvarinn og gítar- leikarinn Ife Tolentino heldur tón- leika í Fríkirkjunni í kvöld klukkan 21. Hann spilar hefðbundna samba- og bossanovatónlist sem er til þess fallin að koma fólki í sumarskap. Það má segja að koma Tolentinos til Íslands sé orðinn árviss viðburður því þetta er í fimmta sinn sem hann heimsækir landið, þar af fjórða sum- arið í röð. Hafa fyrri tónleikar hans fallið vel í kram mörlandans og sól- ríkir tónarnir vakið lukku. Tolentino er búsettur í London, þar sem hann hefur starfað við tón- list undanfarin ár, en á árum áður var hann bassaleikari í einni af fræg- ustu popphljómsveitum Brasilíu. Ife hefur komið víða við í sumar og spilað m.a. á Vopnafirði, Seyðis- firði og Höfn í Hornafirði. Röðin er svo komin að Reykjavík í kvöld. Í ár, eins og endranær, mun To- lentino hafa tónlistarmennina Þor- vald Þór Þorvaldsson og Ómar og Óskar Guðjónssyni sér til fulltingis. Ife Tolentino (t.v.) ásamt íslenskum meðspilurum sínum. Hann er hér staddur í fjórða sinn á Íslandi. Sumarlegt samba í Fríkirkjunni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.