Morgunblaðið - 14.07.2006, Side 50
50 FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Kvikmyndin Destricted,sem m.a. er framleidd affyrirtæki Sigurjóns Sig-hvatssonar Palomar Pict-
ures, verður sýnd í fimm skipti á
Tate Modern-listasafninu í London í
september. Tilkynning þess efnis
hefur vakið athygli í Bretlandi en í
myndinni eru fjölmörg hispurslaus
kynlífsatriði sem mörg hver sýna
raunveruleg mök.
Destricted samanstendur af sjö
stuttmyndum eftir jafnmarga lista-
menn sem hver og einn „kannar hin
hárfínu mörk milli kláms og listar“
með verkum sínum og „spyrja hvort
list geti dulbúist sem klám og öfugt“,
eftir því sem kemur fram á heima-
síðu Tate Modern.
Þeir listamenn sem hlut eiga að
máli eru allir vel þekktir um þessar
mundir í listaheiminum og má þar
nefna Matthew Barney, Marinu
Abramovic, Marc Bambrilla, Gaspar
Noe og Sam Taylor-Wood. Fyrr á
þessu ári var myndin sýnd á Sund-
ance- og Cannes-kvikmyndahátíð-
unum þar sem hún fékk yfirleitt já-
kvæð viðbrögð gagnrýnenda, en
blaðamaður á The Sunday Herald
segir að áhorfendur hafi margir haft
á orði að hún skildi fulllítið eftir fyrir
ímyndunaraflið.
Opinberlega flokkuð sem list
Þar sem listasöfn eru ekki bundin
sömu reglum og kvikmyndahús hef-
ur Tate Modern fengið leyfi til sýn-
inganna fimm þrátt fyrir hin op-
inskáu efnistök. Það sem er
umdeildara er að safnið getur einnig
selt myndina óklippta í almennri
sölu á DVD-mynddiskum. Þetta
helgast af því að nýverið úrskurðaði
breska kvikmyndaeftirlitið, British
Board of Film Classification
(BBFC), að þrátt fyrir að innihald
Destricted hefði undir venjulegum
kringumstæðum fallið undir flokk-
inn R18, en myndir sem fá þá ein-
kunn má aðeins selja átján ára og
eldri í viðurkenndum kynlífsbúðum,
yrði hún einungis bönnuð innan
átján, án annarra takmarkana. Rök-
stuðningur niðurstöðunnar var sá að
myndinni „væri ekki ætlað að örva“
og þar af leiðandi ekki klám.
Í Life Style Extra er haft eftir for-
seta BBFC, Sir Quentin Thomas, að
myndin sé „augljóslega alvarleg
íhugun um kynlíf og klám sem hluta
af mannlegri reynslu“. Hann bætir
því við að eftirlitið sjái því enga
ástæðu fyrir því að meina fullorðnu
fólki að taka sjálft ákvörðun um
hvort það sjái myndina eða ekki.
Í sama blaði er vitnað í John Ba-
yer, baráttumann fyrir almennu vel-
sæmi og forseta Mediawatch UK.
Hann gagnrýnir úrskurðinn harð-
lega og vænir kvikmyndaeftirlitið
um að gera klámefni sífellt aðgengi-
legra með stefnu sinni. „Þeir hafa
áður sleppt 9 songs við R18 ein-
kunn,“ segir Bayer. „Og hér höfum
við annað dæmi um hvernig eftirlitið
lætur undan þrýstingi iðnaðarins í
stað þess að standa vörð um hags-
muni almennings.“
„Athyglisvert innlegg
í umræðuna“
Tom Shields á The Sunday Herald
segir að í tilviki sumra myndanna sé
klárlega um list að ræða. Hann nefn-
ir sem dæmi mynd Marinu Abramo-
vic sem noti balkanska þjóðsagna-
fræði til að skapa fræðsluflokk sem
taki fyrir grófa, töfrandi og dul-
arfulla helgisiði tengda frjósemi og
karlmennsku. Hann fellir hins vegar
þann dóm að sama eigi ekki við í til-
felli bandaríska listamannsins Marc
Bambrilla, en hann umturnar að eig-
in sögn klámmyndum til að skapa
hnyttna myndblöndun. Mesta at-
hygli virðist svo mynd Matthews
Barney, Hoist, ætla að vekja en þar
segir frá „nánum kynnum græns
manns og smurðs drifskafts á sér-
hönnuðu ökutæki“.
Sigurjón Sighvatsson segist vera
alveg hissa á því hvað Destricted
hafi almennt verið vel tekið. „Ég hélt
að það yrði miklu neikvæðari um-
fjöllun um myndina. Þó við séum
óneitanlega að fara inn á mjög við-
kvæmt svið hefur myndin ekki skipt
gagnrýnendum í tvo hópa eins og ég
fyrirfram bjóst við. Þó menn séu
mishrifnir af hverri mynd fyrir sig
eru viðbrögðin mjög góð á heildina
litið og til að mynda hafa birst mjög
jákvæðir dómar í blöðum eins og
Financial Times, Artforum og Sight
and Sound, sem öll eru meðal virt-
ustu tímarita í þessum bransa,“ seg-
ir Sigurjón sem kveðst sjálfur vera
ánægður með útkomuna. „Það er
svo oft þannig þegar gerð er mynd
með mörgum leikstjórum að erfitt er
að samhæfa ólíka sýn hvers leik-
stjóra fyrir sig. Í þessu tilviki gefur
það hins vegar myndinni meiri dýpt
heldur en ef gerð væri heil mynd í
sama dúr.“
Að sögn Sigurjóns er ein af ástæð-
um þess að hann ákvað að taka þátt í
myndinni, þrátt fyrir að það væri
fyrirfram vitað að hún fengi ekki
inni á öllum mörkuðum, að honum
þætti hún athyglisvert innlegg í
áberandi umræðu um klám sem eigi
sér stað um þessar mundir. „Mér
finnst mikilvægt að ýta umræðunni
á annað plan. Það er heilbrigt að fá
þetta upp á borðið. Hvað er klám?
Hvað er ekki klám? Hvar má sýna
klám? Hvernig höfum við aðgang að
klámi? Og hvernig bregðumst við við
þegar við vitum í rauninni að það er
alls staðar?“
Athyglisvert verður að sjá hvað
gerist í Bretlandi í framhaldinu og
eins í Japan þar sem Sigurjón segir
svipaða baráttu eiga sér stað. „Við
höfum alla vega unnið fyrstu lot-
una.“
Kvikmyndir | Fyrirhugaðar sýningar á Destricted í Tate Modern vekja umtal
Klám eða list?
Kvikmyndaeftirlitið segir Destricted vera alvarlega íhugun um kynlíf og klám sem hluta af mannlegri reynslu.
Eftir Flóka Guðmundsson
floki@mbl.is
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
Stick It kl. 5.40, 8 og 10.20
Click kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i. 10 ára
Click LÚXUS kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i. 10 ára
The Benchwarmers kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 10 ára
RV kl. 3.50
Da Vinci Code kl. 6 og 9 B.i. 14 ára
Rauðhetta/Hoodwinked m. íslensku tali kl. 3.50
The Benchwarmers kl. 6 og 8 B.i. 10 ára
Bandidas kl. 6 og 8 B.i. 10 ára
FAST AND THE FURIOUS 3 kl. 10 B.i. 12.ára.
Click kl. 10 B.i. 10 ára
Sprenghlægileg grínmynd með Íslandsvininum Rob Schneider úr
Deuce Bigalow og John Heder úr Napoleon Dynamite!
3 fullorðnir
ættu að geta unnið
hrottana í hverfinu
...eða hvað?
Frá leikst jóra
Big Daddy og Happy Gilmore
kemur sumarsmellurinn í ár!
Adam Sandler, Kate Beckinsale og Christopher Walken í fyndnustu gamanmynd ársins!
Ef þú ættir fjarstýringu sem gæti stýrt lífi þínu?
Hvað myndir þú gera ...?
...Myndir þú breyta
heiminum með henni ...eða
gera eitthvað allt annað?
ÓVÆNTASTA, KYNÞOKKAFYLLSTA OG
SKEMMTILEGASTA GRÍNMYND ÁRSINS
FRÁ HÖFUNDI
BRING IT ON