Morgunblaðið - 16.07.2006, Síða 1
Í framlínu
tækninnar
Örn Jóhannsson skrifstofustjóri kveður
Morgunblaðið eftir um 50 ára starf | 16
Tímarit og Atvinna í dag
Tímarit | Hann vildi bara teikna Gengið á lifandi vatni
Egg, blöðrur og Balenciaga Atvinna | Erfiðir yfirmenn
Réttar og rangar aðferðir við lygar
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350
STOFNAÐ 1913 191. TBL. 94. ÁRG. SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
„HUGMYNDIN kom upp þegar við vorum
að spjalla saman. Kannski út af þessari of-
gnótt sem maður hefur hérna, maður á allt
og er orðinn þátttakandi í lífsgæðakapp-
hlaupinu hér á Íslandi. Við vorum sammála
um að við hefðum löngun til að gefa með
okkur,“ segir Margrét Þóra Einarsdóttir
um söfnun sem hún vinnur að að koma á
laggirnar ásamt Guðrúnu
Blöndal, frænku sinni.
Afrakstur söfnunar-
innar verður notaður til
að byggja upp og reka
heimili fyrir heimilislaus
börn, fatlaða og lang-
veika sem presturinn fað-
ir Andre rekur í Mapútó,
höfuðborg Mósambík í
suðurhluta Afríku.
Landið hefur átt sér-
stakan sess í huga Mar-
grétar síðan hún bjó þar í eitt ár og starfaði
við þróunaraðstoð. Marta Einarsdóttir,
systir hennar, vinnur nú í Mapútó hjá Þró-
unarsamvinnustofnun Íslands.
„Það er sérstaklega gaman að styrkja
verkefni sem maður hefur kost á að fylgjast
með. Sú tilfinning að maður skipti máli og
breyti einhverju er sterkari þegar þetta er
svona áþreifanlegt,“ segir Margrét Þóra.
„Viljann til að hjálpa virðist ekki skorta hjá
fólki hér á landi, heldur vantar einstaklings-
framtakið. Það þarf ekki formleg samtök til
að safna fé og það eiga ekki allir kost á því
að fara til Afríku að hjálpa. Það þarf ein-
faldlega að taka af skarið og láta ekki við
það sitja að tala um að hjálpa.“
Fjáröflun fyrir söfnunina verður með
ýmsum hætti. Í lok ágúst verður haldinn
flóamarkaður í tengslum við Akureyr-
arvöku á Akureyri. Skátafélagið Klakkur
aðstoðar við að safna munum sem fólk vill
gefa til málefnisins og leggur til aðstöðu
fyrir flóamarkaðinn. Áhugasömum um
söfnunina er bent á heimasíðuna
www.123.is/gott. | 10–11
Veita aðstoð
í Mósambík
ENDURGANGSETNING fyrstu tveggja ker-
anna af þeim 160 sem tekin voru úr notkun í
kerskála 3 í álveri Alcan í Straumsvík fyrir tæp-
um fjórum vikum fór fram í gærmorgun. Stefnt
var að því að gangsetja þriðja kerið síðdegis.
Rekstri keranna var hætt í kjölfar straum-
leysis í skálanum. „Þetta var mikið tjón og það
hefur verið mikil vinna að koma þessu í lag aft-
ur,“ segir Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Ís-
aðist upp í það að sprenging varð vegna yf-
irspennu á mælaspennunum.
„Þessu má líkja við það þegar vindur nær
sömu tíðni og brú, en þannig hafa margar
brýrnar eyðilagst gegnum tíðina. Við erum
ánægð með þessa niðurstöðu, hún er mjög
fræðileg og rökstyður það að við tókum réttar
ákvarðanir þessa nótt er rekstri keranna var
hætt,“ segir Rannveig.
landi. Varð straumleysið í kjölfar rafmagnsbil-
unar í aðveitustöð kerskálans. Eftir bilunina var
skipaður sérstakur hópur sérfræðinga í há-
spennuverkfræði til að rannsaka orsakir henn-
ar. Hópurinn hefur skilað niðurstöðu og að sögn
Rannveigar er orsök bilunarinnar fyrirbæri í
rafmagnsverkfræði sem svipar til eigin tíðni í
eðlisfræði. Eigin tíðni myndaðist í spennunum
sjálfum og straumrásunum á bak við og magn-
Morgunblaðið/Kristinn
Þrjú ker í kerskála 3 gangsett á ný
ÞÚSUNDIR slökkviliðsmanna berj-
ast nú við skógarelda í Suður-Kali-
forníu í Bandaríkjunum þar sem
tveir eldar runnu í gær saman í eitt
rosabál. Yfir þrjátíu þúsund hektar-
ar skóglendis hafa orðið eldinum að
bráð auk hundraða húsa og hafa níu
slökkviliðsmenn og tveir borgarar
slasast. Á myndinni sést flugvél á
vegum slökkviliðsins varpa eldvarn-
arefni á jörðina til að koma böndum á
eldana. Aðstæður hafa verið með
verra móti undanfarna daga, þurr-
og hvassviðri hefur gert slökkviliðs-
mönnum erfiðara fyrir og lýsti Arn-
old Schwarzenegger, ríkisstjóri, yfir
neyðarástandi í suðurhluta ríkisins á
fimmtudag.
AP
Barist við skógar-
elda í Kaliforníu
FUNDUR átta helstu iðnríkja heims
hófst í Pétursborg í Rússlandi í dag
og verða orkumál, lýðræði og
ástandið í Mið-Austurlöndum ofar-
lega á baugi á fundinum. Búist er við
sameiginlegri yfirlýsingu frá leiðtog-
um ríkjanna um átökin milli Ísraela
og Hizbollah-samtakanna sem héldu
áfram í gær.
George W. Bush og Vladímír Pút-
ín áttu fund í gærmorgun þar sem
meðal annars var farið yfir inngöngu
Rússlands í Heimsviðskiptastofn-
unina (WTO) og átökin milli Ísraela
og Hizbollah. Leiðtogarnir lýstu yfir
áhyggjum sínum af átökunum og
sögðu mikilvægt að þeim lyki en
áherslur þeirra voru þó ólíkar. Bush
sagði að Hizbollah-samtökin hefðu
átt upptökin að átökunum en Pútín
var gagnrýnni á viðbrögð Ísr-
aelsmanna og sagði mikilvægt að
gæta hófs í valdbeitingu.
Ekki náðist niðurstaða í viðræðum
þjóðanna um inngöngu Rússa í
Heimsviðskiptastofnunina en Rúss-
ar hafa lengi þrýst á um inngöngu og
þurfa til þess stuðning Bandaríkja-
manna. Ekki var gefið upp hvað bæri
í milli en tekið fram að vel hefði mið-
að í viðræðunum. Þá lýstu leiðtog-
arnir því yfir að þeir myndu vinna
saman í baráttunni gegn því að
kjarnorkuvopn kæmust í hendur
hryðjuverkamanna en fram kom að
þeir teldu að mesta ógn sem steðjaði
að heimsbyggðinni í dag væri árás
með kjarnorku-, efna- eða sýkla-
vopnum. Bush og Pútín ræddu einn-
ig stöðu lýðræðis í Rússlandi og
sagði Bush mikilvægt að huga að
málum eins og hlutverki sjálfstæðra
fjölmiðla í Rússlandi og að horfa
mætti til Íraks sem fyrirmyndar í
þeim efnum. Pútín greip þetta á lofti
og sagði Rússa ekki hafa áhuga á að
fá samskonar lýðræði og Írakar
hafa. „Þetta segi ég ykkur í fullri ein-
lægni,“ sagði Pútín og uppskar hlát-
ur viðstaddra á fréttamannafundi.
Átökin milli Ísraela og Hizbollah-
samtakanna héldu áfram í gær. Ísr-
aelskar herþotur skutu á brýr og ol-
íutanka og að minnsta kosti tólf líb-
anskir borgarar féllu í loftárásum á
bílalest sem var á flótta frá þorpinu
Marwaheen nærri landamærum Ísr-
aels og Líbanons. Þá greindi sjón-
varpsstöð Hizbollah, Al Manar, frá
því að þrír hefðu látist í Beeka-daln-
um í Líbanon eftir árásir Ísraela.
Einn Ísraeli er látinn og þriggja er
saknað eftir árás Hizbollah á ísr-
aelskt herskip á föstudaginn.
Lýsa yfir áhyggjum af
átökunum í Líbanon
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
Vladímír Pútín og George W. Bush
ræddu m.a. aðild Rússa að WTO.