Morgunblaðið - 16.07.2006, Síða 2
2 SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
KERIN GANGSETT Á NÝ
Tvö ker í kerskála 3 í álverinu í
Straumsvík voru sett í gang í gær-
morgun og stefnt var að gangsetn-
ingu þess þriðja síðar í gær. Þá var
unnið að forhitun þriggja kera til
viðbótar. Rekstri keranna var hætt
fyrir fjórum vikum í kjölfar raf-
magnsleysis í skálanum.
Færri farþegar í Strætó
Farþegum með Strætó fækkaði á
fyrstu sex mánuðum þessa árs mið-
að við sama tíma í fyrra. Fækkunin
nemur 1,4% en fyrirtækið setti sér
það markmið í fyrra að auka veru-
lega við hlutdeild sína í ferðum á
höfuðborgarsvæðinu.
Viðskipti á Þingvöllum?
Tveir silfurpeningar sem fundust
á bökkum Öxarár á Þingvöllum
styrkja að mati myntfræðings þá
söguskoðun að viðskipti hafi verið
stunduð á Þingvöllum áður fyrr.
Peningarnir sem fundust eru norsk-
ir og frá tímabilinu 1065–1080.
Lífshætta í göngum
Þegar vörubílar keyra inn í Hval-
fjarðargöngin með of háan farm get-
ur skapast lífshætta, að sögn örygg-
isfulltrúa Spalar. Í síðustu viku
komu upp sex tilvik þar sem vörubíl-
ar með of háan farm rákust upp í
öryggisslár við gangamunnana.
Fundur G8 hefst í dag
Leiðtogar átta helstu iðnríkja
heims koma saman í St. Pétursborg í
Rússlandi í dag til fundar. Orkumál,
lýðræði og ástandið í Mið-Austur-
löndum og sérstaklega Líbanon
verða ofarlega á baugi á fundinum.
Átök héldu áfram í Líbanon í gær og
féllu líbanskar borgarar í árásum
ísraelska hersins.
Rússar enn utan WTO
Í aðdraganda fundar átta helstu
iðnríkjanna hafa George W. Bush og
Vladímír Pútín átt í viðræðum, þar
sem meðal annars hefur verið farið
yfir aðild Rússlands að Heimsvið-
skiptastofnuninni. Ekki náðist
niðurstaða í viðræðunum en Rússar
þurfa á stuðningi Bandaríkjamanna
að halda til að fá inngöngu í stofn-
unina.
Skógareldar í Kaliforníu
Yfir þrjátíu þúsund hektarar
skóglendis hafa orðið skógareldum í
Suður-Kaliforníu að bráð. Auk skóg-
lendis hefur eldurinn náð til hundr-
aða húsa á svæðinu. Þúsundir
slökkviliðsmanna vinna við að ráða
niðurlögum eldsins en aðstæður
hafa verið erfiðar að undanförnu.
Y f i r l i t
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jó-
hann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is
Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jóns-
dóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
LÍFSHÆTTA getur skapast þegar vörubílar með
of háan farm fara inn í Hvalfjarðargöngin, að sögn
Marinós Tryggvasonar öryggisfulltrúa Spalar,
rekstraraðila ganganna. Í síðustu viku hafa komið
upp sex tilvik þar sem vörubifreiðar með allt of há-
an farm hafa rekist upp í öryggisslár sem eru í
gangamunnunum.
Nú síðast á föstudaginn rakst grafa, sem var ver-
ið að flytja með vörubifreið, í öryggisslána með
þeim afleiðingum að glussi sprautaðist um göngin
og loka þurfti þeim algjörlega og síðar að hluta til á
meðan glussinn var þrifinn upp.
Marinó segir að þetta hafi verið í sjötta skiptið á
innan við viku sem þetta hafi gerst og hafi lög-
reglan mælt farminn fimm metra háan, en há-
markshæð í göngunum er 4,20 metrar skv. umferð-
arlögum. Marinó sagði að dæmum sem þessum
hefði fjölgað verulega að undanförnu: „Jú, þetta
hefur í gegnum tíðina alltaf verið til staðar en eftir
að fjölmiðlar fjölluðu um þetta fyrir 3–4 vikum, þá
minnkaði þetta. En síðan kom þessi holskefla í síð-
ustu viku.“
Spurður um skaðabótaskyldu bílstjóranna vegna
tekjutaps Spalar sagði Marinó það ekki hafa verið
kannað en beint tjón á göngunum sjálfum vegna
slíkra atvika væri bætt af tryggingafélögum öku-
tækjanna. Hinsvegar sagði Marinó sektarviðurlög
vera of lág við brotum sem þessum: „Dómsmála-
ráðuneytið ætti að hækka refsingu, það er nú til-
fellið að um leið og þetta fer að koma við skjóðuna
hjá þér og þú þarft að greiða fyrir svona, þá ferðu
að hugsa öðruvísi.“
Engar hæðarmælingar eru fyrir ökutæki áður en
þau aka af stað í gegnum göngin, en sunnanmegin
er vog fyrir vörubíla. Marinó sagði að það væri ekki
hlutverk Spalar að setja upp t.d. hæðarhlið áður en
farið væri inn í göngin, til að mæla hæð, það væri
hlutverk yfirvalda. Vildi hann brýna það fyrir
mönnum hve mikil hætta gæti skapast ef farið væri
með of háan farm í göngin: „Þetta er dauðans al-
vara ef farmur fer í slárnar. Ef farmurinn fer af eða
slárnar á götuna eða í aðra vegfarendur.“
Lífshætta skapast sé ekið
með of háan farm í göngin
Eftir Sigurð Pálma Sigurbjörnsson
siggip@mbl.is
FJALLAHLAUPARAR í Lauga-
vegarhlaupinu voru ræstir kl. 9 í
gærmorgun í Landmannalaugum og
þurfti því ekki að grípa til þess að
fresta hlaupinu vegna veðurs eins og
óttast var um tíma. Í gærmorgun
var mikil rigning, en um það leyti
sem hlaupararnir lögðu af stað stytti
upp. Kalt var í veðri þegar hlaup-
ararnir, sem voru um hundrað og
fimmtíu talsins, hlupu af stað í rign-
ingu og sunnangjólu.
Þátttakendur koma frá tólf lönd-
um, en alls eru 87 Íslendingar skráð-
ir til keppni og 63 frá öðrum löndum.
Bretar eru í miklum meirihluta er-
lendra þátttakenda eða alls 30 en
einnig eru margir Þjóðverjar skráð-
ir til keppni eða 14 talsins.
Hlaupararnir eiga að leggja að
baki Laugaveginn svonefnda, sem er
hin vinsæla gönguleið milli Land-
mannalauga og Þórsmerkur, ríflega
fimmtíu kílómetra leið.
Einn hlaupari hætti við á síðustu
stundu, tók upp tjald sitt á föstu-
dagskvöld og yfirgaf staðinn með
þeim orðum að honum litist ekkert á
veðrið, sem þá var vissulega leiðin-
legt. En daginn eftir skánaði veðrið
aðeins og tókst því að hefja hlaupið á
tilsettum tíma. Var búist við að
hlaupararnir færu að skila sér niður
í Þórsmörk fram eftir degi í gær, en
besta tíma í hlaupinu á Bandaríkja-
maðurinn Charles Hubbard sem
hljóp vegalengdina á 4 klukkustund-
um og ríflega 39 mínútum árið 2001.
Venjulegur þátttakandi má hins veg-
ar búast við því að hlaupa Laugaveg-
inn á enda á um sex tímum. Í fyrra
hlupu hundrað og þrjátíu manns í
Laugavegarhlaupinu og var það
met. Má ljóst vera að það met hefur
verið slegið í gær.
Fjallahlauparar ræstir í rigningu
og gjólu í Landmannalaugum
Ljósmynd/Aron Guðmundsson
Þeir létu veðrið ekki á sig fá þessir hraustu hlauparar sem lögðu upp í Laugavegarhlaupið kl. 9 í gærmorgun.
Hundrað og fimm-
tíu manns hlaupa
Laugaveginn
„ÆTLUNIN er að Miklatúnið gangi í
endurnýjun lífdaga og verði að þeim
stað sem fjöldi fólks hefur óskað sér í
mörg ár. Það er á besta stað í borg-
inni og er hægt að nýta miklu betur.
Túnið ætti að vera vin fyrir borgar-
búa sem þar gætu notið lífsins með
fjölskyldunni,“ segir Gísli Marteinn
Baldursson, formaður umhverfisráðs
Reykjavíkur, um tillögu um endur-
hönnun Miklatúns sem samþykkt var
á fundi umhverfisráðs.
Umhverfissviði er með tillögunni
falið að ýta úr vör vinnu við endur-
hönnun Miklatúns. Mælst er til þess
að við hönnunina verði tekið tillit til
fyrri tillagna um hönnun og útlit túns-
ins auk þess sem haft verði samráð
við hagsmunaaðila á svæðinu.
„Ekki liggur fyrir hvernig nýtingu
Miklatúns verður háttað nákvæm-
lega en við sjáum til dæmis fyrir okk-
ur að gott samstarf náist við Kjar-
valsstaði um að nýta túnið og
nágrenni safnsins
betur,“ að sögn
Gísla Marteins.
Í tillögunni er
gert ráð fyrir því
að samráð verði
haft við skipulags-
og byggingarsvið
vegna deiliskipu-
lags á svæðinu og
fyrirhugaðra
breytinga á um-
ferð um Miklubraut.
„Gagngerar breytingar verða
gerðar á svæðinu og tengjast þær
framkvæmdum við Miklubraut. Verið
er að skoða það alvarlega hvort setja
má Miklubrautina í stokk á móts við
Miklatúnið. Túnið verður enn betur í
sveit sett með bættu aðgengi, auk
þess sem umferðin um hraðbrautina
mun ekki streyma fram hjá með þeim
hávaða og ónæði sem af henni getur
hlotist,“ segir Gísli Marteinn.
Miklatún í end-
urnýjun lífdaga
Gísli Marteinn
Baldursson
Í dag
Sigmund 8 Hugvekja 36
Fréttaskýring 8 Myndasögur 42
Sjónspegill 21 Dagbók 42/45
Menning 22/23 Víkverji 42
Hugsað upphátt 23 Staður og stund 44
Forystugrein 26 Leikhús 45
Reykjavíkurbréf 26 Bíó 46/49
Umræðan 24/33 Sjónvarp 50
Bréf 33 Staksteinar 51
Minningar 36/39 Veður 51
* * *