Morgunblaðið - 16.07.2006, Side 12

Morgunblaðið - 16.07.2006, Side 12
12 SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MEÐ samningnum sem Ann Ve- neman, framkvæmdastjóri Barna- hjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNI- CEF), og Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra skrifuðu undir á föstudag er Ísland orðið eitt af 37 löndum víðsvegar um heim sem taka þátt í fjáröflun UNICEF til hjálpar börnum heims. Veneman segir í samtali við Morg- unblaðið að starfsemi UNICEF- landsnefndar Íslands hafi farið mjög vel af stað og nefnir til að mynda að framlag Íslendinga hafi sexfaldast milli áranna 2004–5 og að framlögin hafa enn aukist nú árið 2006. „Landsnefndin hér hefur náð mjög góðum árangri við kynningu UNI- CEF hérlendis á stuttum tíma. Stofnunin beinir þó auðvitað ekki kastljósinu að sjálfri sér heldur að þurfandi börnum sem ekki hafa að- gang að hreinu vatni, heilsugæslu né menntun. Íslendingar hafa sýnt á þessum skamma tíma að þeir eru viljugir til að taka virkan þátt í hjálparstarfi Barnahjálpar Samein- uðu þljóðanna.“ Aðstæður barna hafa batnað Aðspurð segir Veneman aðstæður barna í heiminum í heild vera að batna. „Sumum löndum fer þó aftur og þróunin er hvergi nægilega skil- virk. Fleiri börn ganga í skóla nú en áður en þó eru enn 115 milljónir barna sem ekki hafa aðgang að menntun. Færri börn deyja úr sjúk- dómum sem auðveldlega er hægt að koma í veg fyrir en þó eru enn 10,5 milljónir barna undir 5 ára aldri sem deyja úr sjúkdómum árlega. Alnæmi er auðvitað eitt stærsta vandamálið og í sumum löndum hamlar alnæmi framþróun þar sem foreldrar, kenn- arar og heilbrigðisstarfsmenn deyja úr sjúkdómnum. Önnur lönd, til að mynda Súdan og Kongó, hafa búið við áralangt stríðsástand og börnin í þeim löndum líða ótrúlegar hörm- ungar. Sumstaðar virðist okkur því fara aftur þótt aðstæður barna hafi batnað í heild.“ Venemann bendir á að enn sé gríðarmikið starf fyrir höndum og að mikilvægt sé að líta á hvert land fyrir sig. „Í hverju tilfelli þarf að finna hvar skórinn kreppir til að geta komið fram með raunhæfar leiðir að úrbótum. Tvö fjölmennustu ríki heims eru mjög mikilvæg í þessu sambandi, Kína og Indland. Kína er betur statt, nánast öll börn þar ganga í skóla og barnadauði hefur minnkað. Indland er verr sett, fjöl- mörg börn eru án skólagöngu, fá- tækt er gífurleg og barnadauði er með því mesta sem gerist í heim- inum þrátt fyrir að i landinu sé nú mikill hagvöxtur. Vandamálið er að það er aðeins lítill hluti Indverja sem hagnast á hagvextinum en mjög stór hluti býr enn við mikla fátækt. Sum lönd eru því á réttri braut á meðan önnur standa í stað eða jafnvel fer aftur. Því er ekki hægt að beita sömu aðferðum og lausnum í öllum löndum.“ Þurfum að halda einbeitingunni Venemann segir þúsaldarmark- mið Sameinuðu þjóðanna vera mik- ilvægt leiðarljós fyrir ríki heims. „Markmiðin, 8 talsins, snerta öll börn og ef okkur tekst að vinna að þeim munu lífsgæði barna batna verulegu. Alnæmi, malaría og aðrir sjúkdómar eru til að mynda land- lægir í mörgum löndum og fjölmörg börn deyja vegna skorts á meðferð og bóluefni. Eitt þúsaldarmarkmiða Sameinuðu þjóðanna er einmitt að berjast gegn þessum sjúkdómum og öðrum. Ein stærsta áskorun heimsins í dag að ná þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og halda ein- beitingu okkar hvað það varðar. Ef okkur tekst að vinna markvisst að þessum markmiðum mun það hafa afar mikla þýðingu bæði fyrir börn sem búa við óviðunandi aðstæður sem og fullorðna. Við megum alls ekki missa sjónar á því sem skiptir máli.“ Veneman segir að huga þurfi að heildaruppbyggingu þeirra sam- félaga sem verið sé að aðstoða. „Við verðum að tryggja að árangur sem næst með afmörkuðum verkefnum sé studdur á öðrum sviðum. Það nægir til að mynda ekki að byggja skóla ef börnin hafa ekki aðgang að vatni. Við verðum að skoða sam- félögin í heild sinni. Ekki er hægt að segja að einn málaflokkur sé mik- ilvægastur. Allir málaflokkarnir eru jafn mikilvægir og ekkert eitt verk- efni mun gera kraftaverk. Til að stuðla að bættu lífi fólks þarf að huga að öllum hliðum málsins.“ Náttúruhamfarir ógna Undanfarin ár hafa nátt- úruhamfarir komið illa niður á börn- um víðsvegar um heiminn og aðstoð við þessi börn er eitt af mikilvæg- ustu verkefnum Unicef. „Um 40– 45% af fjármagni fara í að hjálpa börnum sem hafa mátt þola nátt- úruhamfarir eða stríðsátök. Börn hafa mikla þörf fyrir aðstoð í kjölfar náttúruhamfara og það sem við leggjum áherslu á er að koma lífi þeirra sem fyrst í því sem næst samt horf. Við endurbyggjum skóla og stuðlum að því að sem flest börn séu bólusett til að sporna við útbreiðslu smitsjúkdóma. Í kjölfar nátt- úruhamfara eru börn einnig í sér- stakri hættu á að vera misnotuð á einn eða annan hátt. Þau hafa oft orðið viðskila við ættingja sína og auðvelt er að smygla þeim til og frá löndum til þrælkunar. Eitt af því sem Unicef hefur því lagt áherslu á er að hindra flæði barna frá svæðum sem hafa orðið fyrir barðinu á nátt- úruhamförum. Unicef hefur hjálpað til við að skrá börn og koma þeim í samband við ættingja sína.“ Kynlífsþrælkun ekki staðbundinn vandi Annað mikilvægt málefni hjá Uni- cef er að koma í veg fyrir kynlífs- þrælkun barna. Veneman segir einkar mikilvægt að ríkisstjórnir heims vinni saman að þeim mála- flokki. „Þetta er vandamál sem er ekki staðbundið heldur snertir fjöl- mörg ríki með beinum hætti. Það er mjög mikilvægt að koma á sam- ræmdum aðgerðum og lagasetningu. Lögin þurfa að vera skýr til að hægt sé að taka á kynlífsþrælkun barna á skilvirkan hátt og lögreglan og rík- isstjórnir þurfa að vera viljugar að framfylgja lögunum. Unicef hefur stuðlað að því að börnum sem eru fórnarlömb kynlífsþrælkunar er komið aftur til síns heima til fjöl- skyldu sinnar. Í sumum tilfellum eru það þó foreldrarnir sem hafa, vegna sárrar neyðar fjölskyldunnar, selt börnin. Þá þarf að leita annarra ráða. Við þurfum einnig að stöðva eftirspurnina eftir vændi barna því hvar sem eftirspurnin er til staðar mun framboðið einnig skapast.“ Þekktir einstaklingar hjálpa En hver er framtíð hjálparstarfs í heiminum í dag? Er ungt fólk viljugt til að leggja sitt af mörkum? „Mér sýnist ungt fólk á Vesturlöndum mjög viljugt að taka þátt í hjálp- arstarfi. Þetta hefur að mínu mati breyst á sl. 5–10 árum. Nýúskrifaðir menntaskólanemar eru tilbúnari nú en áður til að leggja starfinu lið. Fjölmiðlar hafa einnig hjálpað til með því að vekja athygli almennings á neyð fólks um allan heim. Margir hafa einnig sýnt gott for- dæmi, til að mynda Bill Gates og Bono. Þessir einstaklingar og marg- ir fleiri hafa vakið athygli á hjálp- arstarfi og vakið áhuga ungs fólks á Vesturlöndum á að láta gott af sér leiða. Það að slíkir einstaklingar taki þátt í hjálparstarfi af lífi og sál er, að ég tel, tiltölulega nýtt fyrirbæri og svo sannarlega af hinu góða. Þetta hefur vakið almenning til umhugs- unar.“ Augu fyrirtækja opnast Veneman segist einnig binda von- ir við að stærri fyrirtæki átti sig á því hversu gott það gerir heims- byggðinni að fjárfesta í þróun- arlöndum heims. Ekki aðeins í mennta- og heilbrigðiskerfum heims heldur einnig með því að skapa störf fyrir fólk og tækifæri fyrir það til að lifa góðu lífi. „Ég trúi þvi að fé- lagsleg ábyrgðartilfinning almenn- ings og fyrirtækja sé að vaxa. Í sum- um löndum er viðkvæðið það að framlag til hjálparstarfs eigi að vera á könnu ríkisstjórnarinnar, en til að mynda í Bandaríkjunum og, að því er ég tel, á Íslandi tekur almenn- ingur virkan þátt í fjáröflun til hjálp- arstarfs. Ólík menning ríkja á því mikinn þátt í því hversu viljug al- menningur og fyrirtæki eru til að taka virkan þátt í hjálparstarfi.“ Venemann ítrekar að lokum mik- ilvægi framlags Íslendinga. „Ég er mjög þakklát fyrir hlut Íslendinga í að styðja þurfandi börn um allan heim. Starfsemi UNICEF hér á Ís- landi auðveldar landsmönnum að legga sitt lóð á vogarskálarnar og af síðustu tveimur árum að dæma nýta Íslendingar þetta tækifæri vel en landið er nú með hæst framlög mið- að við höfðatölu.“ Íslendingar hjálpa börnum í neyð Ann Veneman, fram- kvæmdastjóri Barna- hjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF), er nú stödd hér á landi en á föstudag var und- irritaður samstarfs- samningur við UNI- CEF á Íslandi til frambúðar. Auður Magndís Leiknisdóttir ræddi við Veneman um verkefni UNICEF og þátt almennings í að- stoð við bágstödd börn. Morgunblaðið/Eggert „Við megum alls ekki missa sjónar á því sem skiptir máli,“ segir Ann Veneman framkvæmdastjóri UNICEF. TENGLAR .............................................. www.unicef.is www.unicef.org www.un.org/millenniumgoals/ Höfundur er sjálfstætt starfandi blaðamaður. Öll aðildarlönd Sameinuðu þjóðanna, 191 talsins, settu sér eftir farandi markmið árið 2000 og hafa heitið að ná þeim fyrir árið 2015.  Útrýma hungri og fátækt.  Tryggja aðgang allra barna að grunnmenntun.  Stuðla að jafnrétti kynjanna og styrkja frumkvæðisrétt kvenna.  Lækka dánartíðni barna undir 5 ára aldri.  Vinna að bættri heilsu mæðra.  Berjast gegn eyðni, malaríu og öðrum sjúkdómum.  Vinna að sjálfbærri þróun.  Styðja alþjóðlega samvinnu í þróunarstarfi. Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna Helgin öll á morgun

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.