Morgunblaðið - 16.07.2006, Qupperneq 28
28 SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Bókhlöðustígur - Stykkishólmi
Skemmtilegt og fallegt einbýlishús á góðum útsýnisstað í Stykkishólmi, ásamt 26 fm bílskúr. Húsið skiptist í
hæð og ris ásamt bílskúr. Aðalhæðin er björt og opin og skiptist í forstofu, hol, eldhús, snyrtingu, 2 stofur og
sólstofu. Rishæðin skiptist í 3 svefnherbergi, baðherbergi og sjónvarpspall með útgangi á svalir. Á jarðhæð
er gott þvottahús og geymsla. Bílskúr hússins er rúmgóður. Hér er um að ræða vel viðhaldið hús sem getur
nýst hvort sem íbúðar- eða frístundahús. V. 23,0 m. 5975
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Bræðraborgarstígur 30
www.valholl.is
www.nybyggingar.is
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.00.
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.
Stórglæsileg 123,3 fm þakíbúð á 4. hæð með glæsilegu útsýni. Tvennar
mjög stórar svalir. Íbúðin er sérlega glæsileg og býður upp á mikla mögu-
leika eins og staðan er í dag. Íbúðin er á efstu hæð í nýju, glæsilegu fjölbýl-
ishúsi á einstökum stað í Vesturbænum. Stæði í lokuðu bílskýli fylgir. Um
er að ræða aðeins 7 íbúða hús. Göngufæri í miðbæinn. Húsið er nánast frá-
gengið að utan, útveggir ýmist múraðir og málaðir með ljósum lit eða
klæddir með báraðri, liggjandi álklæðningu. Íbúðinni verður skilað frágeng-
inni með öllum innréttingum en án gólfefna. EN MÖGULEIKI ER AÐ FÁ
ÍBÚÐINA Í DAG TILBÚNA TIL INNRÉTTINGA. Baðherbergið verður flísalagt.
Hús og sameign skilast frágengin.
Sími 588 4477
Jörðin Yztafell 1 í Kinn er til sölu
Til sölu er jörðin Yztafell 1 í Suður-Þingeyjarsýslu, vel staðsett og
landstór jörð. Á jörðinni er stórt íbúðarhús á tveimur hæðum,
ásamt útihúsum og ræktuðum túnum. Veiðihlunnindi í Skjálfanda-
fljóti og Rangá. Eigin raforka frá vatnsaflsvirkjun með góðum
stækkunarmöguleikum. Mikil skógræktarjörð en jörðinni tilheyrir
m.a. fallegur stórvaxinn skógur á mörgum hekturum, Fellsskógur
við Skjálfandafljót, auk yngri skógræktar. Hér er um að ræða afar
áhugaverða jörð, sjá nánar á www.holl.is. bújarðir. Verð 100 millj-
ónir. Einkasala.
Sími 595 9000
Höfum til sölu landspildur og sumarbústaðalóðir í
Árnes- og Rangárvallasýslum. Upplýsingar hjá sölu-
manni bújarða.
Óskum eftir greiðslumarki í mjólk og sauðfé fyrir
ákveðna kaupendur, einnig bújörðum í fullum rekstri,
svo og hlunnindajörðum hvers konar. Hafið samband
við sölumann bújarða.
Jón bóndi í Ölfusi veit hvað hann syngur
þegar kemur að sölu bújarða.
Ef þú ert að leita að bújörð þá ertu í
traustum höndum með Jón þér við hlið.
Til þjónustu reiðubúinn í síma
896 4761.
Jón tekur á móti viðskiptavinum Hóls
samkvæmt samkomulagi á Skúlagötu 17.
Franz Jezorski, hdl. og lögg. fasteignasali
Hóll er landsþekkt fyrir fagleg vinnubrögð og úrvals-
þjónustu í á annan áratug.
Taktu enga áhættu með þína fasteign.
Skiptu við heiðarlega og ábyrga fasteignasölu
sem hefur hagsmuni þína að leiðarljósi.
Einna fremstir í bújörðum
Fasteignasalan Hóll - bújarðir / Jón Hólm Stefánsson
sími 896 4761.
„FYRIRTÆKI og neytendur
njóta enn ekki hagræðis af full-
komlega samkeppnishæfum innri
markaði með greiðslukort,“ sagði
framkvæmdastjórn ESB í apríl sl.
Samtök í verslun og
þjónustu samsinna
þessu. „Samkeppn-
ishæfir og skilvirkir
fjármálaþjón-
ustumarkaðir eru mjög
nauðsynlegir fyrir hag-
kerfi Evrópusam-
bandslanda til að þjóna
fyrirtækjum og neyt-
endum vel og stuðla að
sterkum hagvexti og
viðhaldi hás atvinnu-
stigs.“ Orðin koma úr
skýrslu framkvæmda-
stjórnar ESB, en gætu
sem best hafa komið
frá samtökum verslunar og þjón-
ustufyrirtækja sem í meira en ára-
tug hafa bent á ógegnsæi hins lok-
aða og markaðsráðandi
greiðslukortamarkaðar.
Evrópusamtök verslunarinnar,
EuroCommerce, hafa ítrekað bent á
að sk. „interchange fee“, þ.e.a.s.
millibankagjald sem bankar krefjast
vegna greiðslukortafærslna sé beinn
skattur á fyrirtæki og þar með á
neytendur þar sem hinir síðasttöldu
greiða kostnaðinn í gegn um smá-
söluverð, – hvort sem þeir greiða
með kortum eða ódýrari greiðslu-
máta. Skýrsla ESB segir að þetta sé
greiðsluskattur (e. point-of-sale tax)
sem kosti fyrirtækin meira en 25
milljarða á árinu 2005, að því er
virðist ekki af neinni sérstakri
ástæðu. Mismunur á þóknunum sem
söluaðilar eru krafðir um og birtar
eru í skýrslu framkvæmdastjórnar
ESB styrkja það sem lengi hefur
verið haldið fram, að bankar og
kortafyrirtæki þeirra séu að mis-
nota aðstöðu sína á seljendamark-
aði.
Ef framkvæmdastjórnin heldur
sig við þá stefnu sem hún hefur
markað með skýrslunni, má gera
ráð fyrir að Evrópa sé að færast
ákveðið til kerfis sem samþættir
samkeppni, gegnsæi og „notandi
greiðir grunnregluna“, sem versl-
unin hefur lengi barist fyrir. Enn-
fremur er það von
verslunarinnar á ESB-
svæðinu, að sú þekking
á því hvernig greiðslu-
kortakerfi virka sem
framkvæmdastjórnin
hefur aflað við gerð
skýrslunnar muni
sannfæra hana um rök
verslunarinnar, að
vanda þurfi vel til und-
irbúnings á útgáfu
raunverulega sam-
hæfðs debetkorts
fremur en að byggja
samninga um það á nú-
verandi kerfi. Slíkt
gæti aðeins þjónað hagsmunum
bankanna og verið á kostnað fyr-
irtækja og neytenda.
Þessi skýrsla er auðvitað aðeins
eitt atriði í jöfnunni. Í fyrsta lagi er
hún hluti af stærri rannsókn á
kjarna viðskiptabankastarfsemi. Í
öðru lagi, eins og framkvæmda-
stjórnin bendir á, munu niðurstöður
rannsóknar á viðskiptabanka-
starfsemi og þá sérstaklega
greiðslukortaviðskiptum veita þýð-
ingarmikla þekkingu til að skapa
framtíð og þróun „Single Euro Pay-
ment Area“ (SEPA). Bæði verk-
efnin munu verða framlag í „Til-
skipun um greiðsluþjónustu á innri
markaði ESB“ (e. Directive on Pay-
ments Services in the Internal Mar-
ket).
Síðasttöldu tilskipuninni er ætlað
að skapa einsleitt greiðslusvæði
(SEPA) og ná yfir allt ESB-svæðið –
ekki aðeins evrusvæðið, og taka til
allra greiðsluforma – ekki aðeins
greiðslukorta, en einnig fjármagns-
flutninga og beinna skuldfærslna (e.
direct debit) og með því að fjarlægja
alla truflandi skatta á fyrirtæki og
neytendur. Sá kostnaður nemur skv.
framkvæmdastjórninni öðrum 50–
100 milljörðum árlega.
Samtök verslunar og þjónustufyr-
irtækja vona að grunnreglurnar um
gegnsæi og raunverulega sam-
keppni, sem skýrsla framkvæmda-
stjórnarinnar styður sterklega,
muni einnig gilda þegar kemur að
umræðum um einsleitt greiðslu-
svæði, SEPA, og feli í sér að útvíkka
tilskipunina til að ná yfir millibanka-
greiðslur en opni jafnframt kortaút-
gáfu og færslusöfnun fyrir öðrum en
bankastofnunum. Að öðrum kosti
næst ekki að jafna aðstöðu aðila á
greiðslukortamarkaði.
Fulltrúar kortafyrirtækja og fjár-
málastofnana hér á landi halda því
stundum fram í umræðum um
greiðslukortamál, að á Íslandi sé allt
í besta lagi og ýmislegt sem tíðkist í
hinum stóra heimi sé ekki til hér.
Fátt styður þessa fullyrðingu og
þvert á móti má benda á að korta-
kerfin hér á landi eru hluti af hinum
alþjóðlegu fjármálakeðjum, Mast-
erCard og Visa og lúta við alla fram-
kvæmd reglum þeirra og gjalda-
kerfa. ESB-skýrslan benti á að
mismunur á þóknunum á milli landa
gæti verið allt að 500–600 faldur, en
hátt hlutfall millibankagjaldsins,
ógegnsæið og skortur á samkeppni
gildi á öllu svæðinu. Samkeppniseft-
irlit ýmissa landa hafa skerpt eftirlit
með starfsemi kortafyrirtækja og þá
einkum færsluhirða eftir útkomu
ESB-skýrslunnar og ekki er ástæða
til annars en að Samkeppniseftirlitið
fylgist glöggt með þessu hér á landi
einnig.
Úrskurður ESB um kortavið-
skipti sigur fyrir verslunina
Sigurður Jónsson fjallar um
úrskurð ESB um kortaviðskipti ’Samkeppniseftirlit ým-issa landa hafa skerpt
eftirlit með starfsemi
kortafyrirtækja og þá
einkum færsluhirða eftir
útkomu ESB-skýrsl-
unnar og ekki er ástæða
til annars en að Sam-
keppniseftirlitið fylgist
glöggt með þessu hér á
landi einnig.‘
Sigurður
Jónsson
Höfundur er framkvæmdastjóri SVÞ
– Samtaka verslunar og þjónustu og
stjórnarmaður í EuroCommerce.
Fréttir á SMS
Fréttir í tölvupósti