Morgunblaðið - 16.07.2006, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2006 39
MINNINGAR
Báðar vorum við
undirritaðar fjarver-
andi þegar útför heið-
urskonunnar Önnu
Þórarinsdóttur yfir-
sjúkraþjálfara fór fram og áttum því
ekki möguleika á að kveðja hana
hinstu kveðju sem verið hefði okkur
báðum kært. Með þessum fátæklegu
orðum langar okkur til að þakka
henni einstaklega ljúft samstarf og
ómetanlegt framlag áratugum sam-
an í þágu barna sem áttu við fatlanir
að stríða. Athugunar- og greining-
ardeildin í Kjarvalshúsi, sem var fyr-
irrennari Greiningar- og ráðgjafar-
stöðvar ríkisins, tók til starfa haustið
1975 og starfaði til 1986. Þjónustan,
sem þessi stofnun veitti, varð til fyrir
ANNA
ÞÓRARINSDÓTTIR
✝ Anna Þórarins-dóttir fæddist í
Reykjavík 23. júlí
1918. Hún lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 24. júní
síðastliðinn og var
útför hennar gerð
frá Hafnarfjarðar-
kirkju 3. júlí.
óeigingjarnt braut-
ryðjendastarf nokk-
urra eldhuga í hópi
foreldra og fagmanna.
Áhersla var lögð á
uppeldis- og kennslu-
fræðilega ráðgjöf í
kjölfar fjölsérfræði-
legrar greiningar og
heyrði starfsemin á
þessum árum undir
menntamálaráðuneyt-
ið. Það var mikill akk-
ur fyrir starfsemi í
frummótun, eins og þá
sem fram fór í Kjar-
valshúsi, að njóta frá upphafi sér-
fræðilegrar þekkingar úrvals fag-
manna á ýmsum sviðum. Anna
Þórarinsdóttir, sem ung hafði numið
sjúkraþjálfun í Danmörku, var í
þessum hópi og segja má að með
starfi sínu í Kjarvalshúsi hafi hún
þróað nýjan vettvang, sjúkraþjálfun
barna, og gerst á því sviði einn fyrsti
og um leið fremsti sérfræðingur
landsins. Greiningarstarfið vann
Anna af nákvæmni og lét ekki hjá
líða að kynna sér nýjungar á fræða-
sviði sínu. Hún varð þannig hin góða,
fordómalausa fyrirmynd þeirra sem
við hlið hennar námu. Þeir skynjuðu
að nauðsynlegt væri að líta á hvert
barn sem einstakt og aðstæður þess
sem einstakar og því þyrfti að huga
vel að öllum þáttum og samspili
þeirra. Með rósemi samfara festu
tókst henni jafnan í ráðgjafarstarf-
inu að leiðbeina foreldrum, kennur-
um og starfsmönnum, miðla þeim af
reynslu sinni og þekkingu til þess að
tryggja þann árangur sem hún sá
mögulegan. Aldrei bar skugga á
samstarfið milli hennar og foreldra
sem oft áttu þó um sárt að binda.
Við eigum óendanlega margar og
ljúfar minningar frá starfi okkar
með Önnu bæði frá Kjarvalshúsi og
Öskjuhlíðarskóla. Nærvera hennar,
jafnan hlý og gefandi, óþrjótandi
starfsgleðin og áhuginn á þekkingu,
velferð og framförum varð til þess að
álits hennar var gjarnan leitað og
hennar verður lengi minnst með
virðingu og söknuði. Við lítum á það
sem forréttindi að hafa fengið að
vinna með hinum metnaðarfulla fag-
manni Önnu Þórarinsdóttur og að
kynnast mannkostum hennar öðr-
um.
Fjölskyldunni hennar stóru vott-
um við innilega samúð.
Anna Hermannsdóttir,
fv. deildarstjóri.
Jóhanna G. Kristjánsdóttir,
fv. skólastjóri.
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför elskulegs bróður
okkar og mágs,
ÓSKARS SIGURÐAR VILHJÁLMSSONAR,
Víðimýri 10,
Sauðárkróki.
Ingimar Vilhjálmsson, Guðrún Kristmundsdóttir,
Laufey Vilhjálmsdóttir, Árni P. Björgvinsson,
Sigurlína Vilhjálmsdóttir, Sveinn Árnason,
Elísabet B. Vilhjálmsdóttir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við fráfall ástkærrar eiginkonu minnar, dóttur,
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
ERNU SIGURBJARGAR RAGNARSDÓTTUR
hárgreiðslumeistara,
Löngufit 24,
210 Garðabæ.
Færum starfsfólki hjúkrunarheimilisins Holts-
búðar sérstakar þakkir.
Guð blessi ykkur öll.
Jón Boði Björnsson,
Jóhanna Eiríksdóttir,
Gréta Boða, Sveinn Gaukur Jónsson,
Guðbjörg Jónsdóttir, Þröstur Gestsson,
Hafdís Jónsdóttir, Björn Leifsson,
Jóhanna Jónsdóttir, Guðmundur Bergmann Jónsson
og barnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
MAGNÚSAR TRUMANS ANDRÉSSONAR,
Reynihvammi 29,
Kópavogi.
Jensína Þóra Guðmundsdóttir,
Katrín A. Magnúsdóttir, Jack D. Sublett,
Unnur Magnúsdóttir, Sævar Þ. Sigurgeirsson,
Þórhildur Magnúsdóttir, Einar Finnbogason,
Andrés Magnússon, Guðrún Brynjólfsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum hlýhug og vináttu við andlát
JENNÝJAR ÞÓRKÖTLU MAGNÚSDÓTTUR
ljósmóður,
Ytri-Njarðvík.
Sólveig Daníelsdóttir, Guðmundur Gestsson,
Sveinborg Daníelsdóttir, Guðjón Helgason,
Gunnvör Daníelsdóttir,
Magnús Daníelsson, Eyrún Jónsdóttir,
Hulda Karen Daníelsdóttir, Guy Stewart,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum vinsemd, hlýhug og samúð við andlát og
útför
ÖNNU GUÐMUNDSDÓTTUR
fyrrum bókavarðar.
Guðmundur B. Guðmundsson, Sigríður Björg Jónsdóttir,
Ingunn Þóra Magnúsdóttir,
Anna Guðmundsdóttir, Þorbjörn Hlynur Árnason,
Guðrún Hulda Guðmundsdóttir, Ásgeir Sverrisson,
Þórvör Embla Guðmundsdóttir, Jón Pétursson,
Ragna Sólveig Guðmundsdóttir,
Snorri Guðmundsson,
Guðný Ása Guðmundsdóttir, Már Valþórsson,
Berglind Anna Sigurðardóttir, Svavar Hilmarsson,
Magnús Sveinn Sigurðsson, Borghildur Ágústsdóttir,
Sölvi Björn Sigurðsson, Helga Soffía Einarsdóttir,
Árni Páll Þorbjörnsson,
Guðmundur Björn Þorbjörnsson,
Halldór Ásgeirsson,
Pétur Jónsson,
Sigríður Hrefna Jónsdóttir,
Guðmundur Friðrik Jónsson,
Sigurður Þráinn Unnarsson, Hrefna Sif Gísladóttir,
Ingunn Anna Svavarsdóttir,
Eyþór Már Magnússon,
Egill Magnússon.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og
útfarar ástkærs föður, tengdaföður, afa og langafa,
HARALDAR JÓNSSONAR,
Árskógum 8,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir fá Páll Möller læknir og hjúkru-
narfólk á 12G á Landspítala við Hringbraut fyrir
einstaka umhyggju og hlýju.
Guð blessi ykkur öll.
Jón Haraldsson, Þóra Björgvinsdóttir,
Gunnar Haraldsson, Stella Benediktsdóttir,
Stefán Haraldsson, Fanney Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum hlýhug og vináttu við andlát og útför
SIGURÐAR KRISTJÁNS
KRISTBJÖRNSSONAR,
Hofsvallagötu 16,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki á deild
11B og 11E Landspítalanum Hringbraut og Karit-
as heimahjúkrunarþjónustu.
Aðstandendur.
Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát
og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
KONRÁÐS RAGNARS SVEINSSONAR,
Háagerði.
Guðbjörg Jóna Jónsdóttir,
Anna B. Bragadóttir, Guðjón I. Jónsson,
Kristín Konráðsdóttir, Kristján Ó. Kristjánsson,
Svanhvít Konráðsdóttir, Ingvar G. Ingvarsson,
Konráð R. Konráðsson, Sigríður Guðbrandsdóttir,
Arnar Konráðsson, Axel Hall,
barnabörn og barnabarnabörn.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is – smella á reitinn Senda
efni til Morgunblaðsins – þá birtist
valkosturinn Minningargreinar
ásamt frekari upplýsingum.
Skilafrestur Ef birta á minningar-
grein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virk-
um dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðjudegi).
Ef útför hefur farið fram eða grein
berst ekki innan hins tiltekna
skilafrests er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingardegi. Þar sem
pláss er takmarkað getur birting
dregist, enda þótt grein berist áð-
ur en skilafrestur rennur út.
Formáli Minningargreinum fylgir
formáli, sem nánustu aðstand-
endur senda inn. Þar koma fram
upplýsingar um hvar og hvenær
sá, sem fjallað er um, fæddist,
hvar og hvenær hann lést, um for-
eldra hans, systkini, maka og börn
og loks hvaðan útförin fer fram og
klukkan hvað athöfnin hefst. Ætl-
ast er til að þetta komi aðeins
fram í formálanum, sem er feit-
letraður, en ekki í minningargrein-
unum.
Minningar-
greinar