Morgunblaðið - 16.07.2006, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2006 41
MINNINGAR
Nissan Sunny 1600 SR '94 ek.
108 þús. Til sölu Nissan Sunny
árg. '94, sjálfskiptur, rafdr. rúður,
hiti í sætum, reyklaus, skoðaður
'07, ek. aðeins 108 þús. km. Verð
200.000. Uppl. í síma 840-1741
Nissan Almera árg. '99, bensín,
ek. 124 þús. Beinsk. Vetrardekk
á felgum, CD, fjarstýrð samlæs-
ing. Verð 420 þús. Tilboð óskast.
Upplýsingar í síma 892 7828.
Lincoln Mark LT árg. 2006
Sjálfskiptur, bensín, leður, topp-
lúga, lok á palli o.fl. NÝR BÍLL.
V: 4.890 þ. Uppl. í s: 562 1717 og
898 1742. Sjá fleiri myndir á
www.bilalif.is.
LAND ROVER DEFENDER
110 TDS, 9 manna, árg. 1998, ek.
144 þ. km. Verð 1.450 þús. Gott
útlit og ástand. '07 skoðun. Sjáðu
hann á www.heimsbilar.is.
Heimsbílar S: 567 4000.
Toyota Tacoma Off Road TRD
Árg. 2006, sjálfskiptur, bensín, lok
á palli o.fl. NÝR BÍLL. V: 3.690 þ.
Uppl. í s: 562 1717 og 898 1742.
Fleiri myndir á www.bilalif.is.
Triumph Tiger 955cc
árg. 2006, ek. 1000 km. Aukahlutir:
gelsæti, hituð handföng, miðju-
standari. Nýtt hjól. Upplýsingar
í síma 892 8380 og 552 3555.
TOY. LANDCR. 90 33" ÁRG. 1999
SJÁLFSKIPT. Einn eigandi, góð
33" dekk, skipt um tímareim í 97
þ. km. Gott lakk, Heill og góður
bíll. Uppl. í s. 896 0315.
Til sölu Suzuki Vitara árgerð
1999. 5 dyra, ekinn 90 þúsund km.
Ný tímareim og ný kúpling. Góður
bíll. Verð 590.000 kr.
Upplýsingar í símum 487 8688 og
893 8877.
Subaru árg. '04 ek. 37 þús. km
Til sölu Forester XT turbo (177
hö). Leður, lúga, cruise o.fl. Alltaf
þjónustaður! Skemmtilegasti
smájeppinn í sínum flokki. Upp-
lýsingar í síma 862 8892.
Splunkunýr frá kr. 4.199.000!
Eigum nokkra splunkunýja 2006
bíla nær 30% undir listaverði.
Honda Pilot er nýr lúxusjeppi sem
hefur rakað inn verðlaunum fyrir
sparneytni og búnað og sem gef-
ur Landcruiser VX diesel harða
samkeppni. Láttu okkur leiðbeina
þér með bestu bílakaupin. Frábær
tilboð í gangi. Útvegum nýja og
nýlega bíla frá öllum helstu fram-
leiðendum. Íslensk ábyrgð fylgir.
Bílalán. Sími þjónustuvers 552
2000 og netspjall við sölumenn
á www.islandus.com
Þjónustuauglýsingar 5691100
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Bílar
Toyota RAV4 4WD 2004 Ek. 26
þ. km VVT-I, 2.0 L, 5 dyra, sjálfsk.,
A/C krókur, geislasp., topplúga,
sílsarör, spoiler, 17" álfelgur,
ABS, hiti í sætum, filmur. Lán.
Gott verð á góðum bíl sem er
hlaðinn aukahlutum. V. 2.590 þ.
Albert s. 821 0626.
Honda VFR 800 ABS
árg. 2006, ek. 1000 km. Kemur
nýtt úr umboðinu, aðeins mánað-
ar gamalt. Toppeintak. Upplýsing-
ar í síma 892 8380 og 552 3555.
Smáauglýsingar
sími 569 1100
Hann afi minn var,
svo óskaplega góður, svo blíður.
Stundum þver og stífur.
Hann var fallegur og svo bjartur.
Gamall og lúinn.
Sáttur, mildur, friðsæll og svo tilbúinn.
Þú breiðir arma bjarta
og barnið faðmar þitt,
ég finn þitt heita hjarta,
og hjartað fagnar mitt.
Ég vil ei við þig skilja,
ég vel þitt náðar-skjól;
mitt veika líf er lilja,
þín líkn er hennar sól.
(M. Joch.)
Elsku amma mín, megi góður
guð og fallegar minningar um afa
veita þér styrk á þessum erfiðu
tímum.
Sara Stefánsdóttir.
BALDUR
ÞOR-
STEINS-
SON
✝ Baldur Þorsteinsson fæddistá Akureyri 2. september
1922. Hann lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri 16.
júní síðastliðinn og var útför
hans gerð frá Akureyrarkirkju 3.
júlí.
EKKI var allskostar rétt sem fram
kom í frétt blaðsins í gær um ráðn-
ingu Steinunnar Stefánsdóttur í
starf aðstoðarritstjóra Fréttablaðs-
ins að hún væri fyrst kvenna til að
gegna svo veigamiklu starfi á ís-
lensku dagblaði. Bent hefur verið á
að Silja Aðalsteinsdóttir var um tíma
ritstjóri Þjóðviljans.
LEIÐRÉTT
Silja ritstjóri
FRÉTTIR
✝ Diane JeanSmith fæddist í
Jersey City í New
Jersey í Bandaríkj-
unum 17. ágúst
1955. Hún varð
bráðkvödd í Las Ve-
gas í Nevada 14.
júní síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Ásdís Hafliða-
dóttir Smith og Do-
nald Smith, þau eru
látin. Systkini Diane
eru Donna, Susan,
Debbie, Kenneth,
Cindy, Paul, Doug og Joseph sem
nú búa öll í Bandaríkjunum og
Victor sem er látinn. Díana ólst
upp á Íslandi en flutti til Alaska
tvítug.
Diane giftist Sig-
urði Haukssyni 19.
apríl 1973 og eign-
uðust þau dæturnar
Lindu Dröfn, f. 11.
nóvember 1971, og
Ásdísi Hólmfríði, f.
5. júní 1973, þau
Sigurður slitu sam-
vistum. Börn Lindu
eru Miranda, My-
riah og Kira. Börn
Ásdísar eru Hayden
og Haley.
Vinur og sam-
býlismaður Diönu
er Joe Blea.
Díana lærði hárgreiðslu í
Bandaríkjunum og vann við hár-
greiðslu ásamt öðrum störfum.
Útför Díönu var gerð ytra.
Fallega brosið þitt og dillandi
hláturinn þinn var svo smitandi og
greip alla með sér. Þú varst ein-
stök móðir, yndisleg og umhyggju-
söm, besti vinur okkar. Þú naust
þess að hafa fólk í kring um þig og
hafðir fjölskylduna alltaf í fyrir-
rúmi.
Þú elskaðir listir og handavinnu,
Betty Boop, tónlist og hundinn
þinn Lightning.
Við söknum þín svo sárt. Þú
verður ávallt í hjörtum okkar, all-
ar góðu minningarnar og öll sú
umhyggja og ást sem þú gafst
okkur.
Lagið þitt „How do I live witho-
ut you?“ eftir LeAnn Rimes er nú
lagið okkar.
Hvíldu í friði, fallega mamman
okkar.
Linda og Ásdís.
Við þökkum samfylgd á lífsins leið
þar lýsandi stjörnur skína
og birtan himneska björt og heið
hún boðar náðina sína
en Alfaðir blessar hvert ævinnar skeið
og að eilífu minningu þína.
(Vigdís Einarsdóttir.)
Hvíl í friði
Sigurður.
DIANE JEAN
SMITH
Elsku Konni frændi!
Nú ertu farinn frá
okkur og kominn á
betri stað. Minning þín
mun ávallt lifa með
mér. Ég mun aldrei gleyma þeim tíma
sem við eyddum saman hjá ömmu –
alltaf fannst mér jafngaman þegar þú
varst þar. Ég var alltaf eitthvað að
KONRÁÐ
GUÐMUNDSSON
✝ Konráð Guð-mundsson fædd-
ist 28. nóvember
1975 á Akureyri.
Hann lést á heimili
sínu 22. júní síðast-
liðinn og var útför
hans gerð frá Ólafs-
fjarðarkirkju 30.
júní.
dunda mér við að setja
þig í allar slæðurnar
hennar ömmu. Leika
mér að gera þig að
gamalli konu og aldrei
sagðir þú nei við mig,
sama hvað ég gerði. Ég
man eftir því að einu
sinni gekk ég of langt
og reyndi að fá þig til
að fara í pils, þá sagð-
irðu reyndar nei en ég
svo sem skil það alveg.
Ég man eftir því þegar
að þú varst fótbrotinn
heima hjá ömmu og
afa, einhver vinur þinn hafði lánað þér
fullt af tölvuleikjum sem þú gætir
hangið í en nei, litla frænka mætti á
svæðið og heimtaði að við færum í ein-
hvern leik sem mér fannst svo
skemmtilegur og auðvitað var það lát-
ið eftir mér. Ég komst alltaf upp með
allt hjá þér. Þú passaðir líka vel upp á
mig þegar við hittumst á Akureyri.
Ég mun ávallt muna eftir þessu
öllu, elsku frændi minn.
Nú ertu dáinn
Sorglegt það þykir mér
Fallegustu blómin gef ég þér.
Vonandi líður þér vel uppi á himn-
inum.
Ég sakna þín svo mikið
Ég sakna þín svo sárt
Að ég vil hafa þig hér
Ég vil hafa þig daglega hjá mér
Þó ég hafi ekki heimsótt þig lengi
Elska ég þig samt af öllu hjarta
Ég veit að þú ert hjá mér í hjarta mínu.
( Áslaug Eva Antonsdóttir.)
Hvíldu í friði, elsku frændi minn,
við sjáumst svo hinum megin. Getum
farið í slæðuleik.
Kveðja,
Katrín Sif.
FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, sendi síðastliðinn föstudag
A.P.J. Abdul Kalam, forseta Ind-
lands, einlægar samúðarkveðjur sín-
ar og íslensku þjóðarinnar vegna
hryðjuverkanna í Mumbai hinn 11.
júlí síðastliðinn og þeirra hörmunga
sem hafa leitt yfir þúsundir Indverja.
Í samúðarkveðjunum áréttar for-
seti Íslands að Indland hafi verið
mikilvægt tákn þess hvernig lýðræð-
isleg stjórnskipan eigi að veita öllum
trúarhópum jafnan rétt. Brýnt sé að
hryðjuverkaöflum takist ekki að
spilla þessar stefnu sem Indland hafi
frá lýðveldisstofnun, stefnu sem hafi
verið öðrum þjóðum fordæmi.
Yfir 200 manns látnir
Leiðtogar heim hafa fordæmt
hryðjuverkin og sagði Tony Blair,
forsætisráðherra Bretlands, að árás-
irnar væru grimmilegar. Í yfirlýs-
ingu frá pakistanska utanríkisráðu-
neytinu segir að árásirnar væru
fyrirlitlegt hryðjuverk.
Yfir 200 manns hafa látist og 700
manns eru særðir eftir tilræðið sem
framið var á sjö stöðum í borginni.
Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á til-
ræðunum en yfirvöld á Indlandi leita
nú þriggja manna sem grunaðir eru
um aðild. Um 400 manns hafa nú ver-
ið yfirheyrðir í umfangsmikilli rann-
sókn á málinu en enginn hefur verið
ákærður enn sem komið er.
Forseti Íslands
sendir forseta
Indlands
samúðarkveðjur
♦♦♦