Morgunblaðið - 16.07.2006, Side 44

Morgunblaðið - 16.07.2006, Side 44
44 SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Komið er að kaflaskiptum í tilfinningalífi hrútsins. Getur verið að það hafi tekið hann allan þennan tíma að öðlast trú á sjálfan sig? Ef svo er, ríður nú meira á en nokkru sinni fyrr að nýta sér nýfengið sjálfstraust. Veröldin er ostran þín. Búðu til perlu. Naut (20. apríl - 20. maí)  Orka nautsins og einbeiting er mikil í augnablikinu, beindu henni í einn farveg. Ef þú staldrar við vandamálið missir þú sjónar á hinni augljósu lausn. Hafðu aug- un á vinningnum svo þú missir ekki af hon- um. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Mundu það sem þér var alltaf sagt, ef eitt- hvað er þess virði að framkvæma það á maður að vanda sig. Margt glepur hugann og freistandi að víkja sér undan. Haltu þínu striki. Þú átt eftir að gleðjast yfir því að hafa ekki valið auðveldustu leiðina. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Krabbinn gefur mikið og býst varla við nokkru í staðinn. Það er engu líkara en að hann sé að safna sér góðu karma á reikn- inginn. Einhvern tímann í framtíðinni verður þú baðaður með meiri gæsku en þú getur ímyndað þér. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Góðar fréttir: Eitt stærsta viðfangsefni þitt verður leyst á næstunni. Meiri góðar fréttir: Þú þarft ekki frægð, peninga eða aðdáun einhvers til þess að ráða fram úr því. Það eina sem þú þarft að gera er að skipta um skoðun. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Réttlætistilfinningu meyjunnar er stork- að. Ekki er allt jafnsanngjarnt. Reyndar ræður sanngirnin sjaldnast ríkjum. Lifðu samkvæmt eigin sannfæringu jafnvel þó að veröldin kæri sig kollótta, þú uppskerð ríkulega á endanum. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Fyrst líf manns víkkar út að því marki sem maður trúir að það geti gert, er þetta ekki verri tími en hver annar til þess að tileinka sér meiri trú á sjálfan sig. Kannski er það ekki of seint að verða eldflaugavís- indamaður, verðlaunaknapi eða ballerína. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Maður skyldi ætla að það væri auðveldara að fara í gegnum lífið án meiriháttar áskorana, en í þínum huga væri það til jafns við nokkurs konar pyntingar. Gættu þess að hafa fólk í kringum þig sem fyllir þig andagift, jafnvel þeim sem þú öfundar pínulítið. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Himintunglin styðja þig í þeirri viðleitni að setja mörk. Það getur lýst sér á ýmsa vegu, til dæmis með því að segja ákveðið „nei“ við tiltekinni beiðni, í staðinn fyrir „kannski seinna“. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Að vinna með fólki sem þú dáist að, jafn- gildir innspýtingu af krafti sem þú þarft á að halda til þess að ljúka því sem fyrir liggur. En hvað með verkefnið sem þú varst búin að lofa sjálfri þér? Settu sjálfa þig ofar á forgangslistann. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Skoðanaágreiningur kemur upp í vina- hópi. Vogaðu þér að vera hreinskilinn. Það bætir sambandið og ýtir ykkur í átt að hærri hæðum vitundar og afreka. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Fiskurinn er einstaklega ráðagóður. Leit- aðu að innblæstri innra með þér í stað þess að biðja um hjálp þegar þú þarft varla á henni að halda. Það mun bara hægja á þér. Stjörnuspá Holiday Mathis Tunglið hagar sér eins og hrútur þegar það er í hrútsmerkinu og tilfinn- ingarnar ryðjast áfram. Hlutirnir ganga yfirleitt upp, ekki síst vegna kraftsins sem fylgir hvatvísum gerðum okkar, en þó gæti brugðið til beggja vona. Þessu tíma- bili fylgir vissulega skap og hindranir á leiðinni gætu látið undan eða verið rutt úr vegi í skyndiárás. Árásargirni gæti getið af sér gagnárás. Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 sundla, 4 kinn- ungur, 7 dugnaðurinn, 8 tölum um, 9 tóm, 11 lítill lækur, 13 ellimóð, 14 snjóa, 15 sæti, 17 hvelft, 20 bókstafur, 22 graft- arnabbi, 23 laun, 24 kvenmannsnafn, 25 ask- ana. Lóðrétt | 1 áfall, 2 starf- ið, 3 korna, 4 fjöl, 5 vænn, 6 kvæðum, 10 elskuðum, 12 kraftur, 13 agnúi, 15 sól, 16 uppnámið, 18 óhreinka, 19 mál, 20 gufu, 21 túla. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 reimleiki, 8 fúsan, 9 lýtið, 10 nói, 11 skapi, 13 neiti, 15 stáls, 18 safna, 21 kyn, 22 fjara, 23 æfing, 24 falslausa. Lóðrétt: 2 enska, 3 munni, 4 ellin, 5 kætti, 6 ofns, 7 iðni, 12 pál, 14 efa, 15 sefa, 16 álaga, 17 skass, 18 snæða, 19 fliss, 20 angi.  Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Tónlist Akureyrarkirkja | Sumartónleikar kl. 17. Schola Cantorum Kammerkór Hallgríms- kirkju, Stjórnandi Hörður Áskelsson. Hallgrímskirkja | Ji-Youn Han, frá Suður- Kóreu leikur á kvöldtónleikum á vegum Al- þjóðlegs orgelsumars kl. 20. Á efnis- skránni eru verk eftir J.S. Bach, Mozart, Duruflé og Reubke. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Kl. 20.30: Kammerverk eftir tékkneska tón- skáldið Bohuslav Martinu. Flytjendur: Freyr Sigurjónsson (flauta), Iwona (víóla) og Jersy (selló) Andrzejczak, sem öll eru leiðarar síns hljóðfæris í Sinfón- íuhljómsveitinni í Bilbaó. Einnig Hlíf Sig- urjónsdóttir (fiðla) og Anna Áslaug Ragn- arsdóttir (píanó). Norræna húsið | Norski harmonikusnill- ingurinn Ottar Johansen heldur tónleika kl. 20. Aðgangseyrir 1.500 kr. Verð fyrir eldri borgara og öryrkja 1.000 kr. Myndlist 101 gallery | Steinunn Þórarinsdóttir sýnir til 22. júlí. Aurum | Helena Ragnarsdóttir sýnir ónefnt akrýlverk unnið á pappír. Opið mán.–föst. kl. 10–18 og laug. kl. 11–16. Til 21. júlí. Café Karólína | Sýningin „Hlynur sterkur Hlynur“ (portrett af Hlyni Hallssyni mynd- listarmanni) er þriðja sýningin í röðinni af stjörnumerkjaportrettum unnin sem inn- setning í rými. Til 4. ágúst. Café Mílanó | Reynir Þorgrímsson – Rey- nomatic myndir, nærmyndir af náttúrunni, einstakar ljósmyndir unnar á striga. Út júl- ímánuð. DaLí gallerí | Joris Rademaker sýnir rým- isverk til 26. ágúst eða fram yfir menning- arvöku. Opið virka daga og laug. kl. 14–18. Gallerí BOX | Þórarinn Blöndal, Finnur Arnar og Jón Garðar með sýninguna „Far- angur“. Á sýningunni getur að líta hug- leiðingar um drauma, galdra, harðvið- argólf, eldhúsgólf og ástarævintýri. Til 27. júlí. Gallerí Úlfur | Eiríkur Árni Sigtryggsson sýnir í júlí. Opið kl. 14–18 alla daga. Hafnarborg | Yfirskrift sýningarinnar „hin blíðu hraun“ er frá Jóhannesi Kjarval og með henni beinir Hafnarborg sjónum að hrauninu í Hafnarfirði. Listamennirnir tólf sem að sýningunni koma hafa allir sýnt víða og lagt drjúgan skerf til listalífsins undanfarin ár. Til 28. ágúst. Hallgrímskirkja | Sumarsýning Listvina- félags Hallgrímskirkju. Ásgerður Búadótt- ir sýnir í forkirkju. Til 26. ágúst. Handverk og hönnun | Á sumarsýningu er til sýnis bæði hefðbundinn íslenskur list- iðnaður og nútíma hönnun úr fjölbreyttu hráefni eftir 37 aðila. Á sýningunni eru hlutir úr leir, gleri, pappír, tré, roði, ull og silfri. Sýningin stendur til 27. ágúst. Að- gangur er ókeypis. Hrafnista Hafnarfirði | Ósk Guðmunds- dóttir sýnir handverk og málun í Menning- arsal til 15. ágúst. Húsið á Eyrarbakka | Sýningin Einfarar í borðstofu Hússins á Eyrarbakka. Á sýn- ingunni er einstakt úrval næfistaverka. Til 31. júlí. Jónas Viðar Gallerí | Snorri Ásmundsson sýnir til 30. júlí. Kaffi Kjós | Ólafur Jónsson, (iló) Berja- landi, Kjós með málverkasýningu. Opið í sumar, alla daga kl. 12–20. Karólína Restaurant | Joris Rademaker sýnir ný verk, Mjúkar línur/ Smooth lines. Til 6. okt. Kirkjuhvoll Akranesi | Listsýning á verk- um eftir 12 nýútskrifaða nema frá Listahá- skóla Íslands. Listasetrið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 15–18. Til 13. ágúst. Kling og Bang gallerí | Hinn heimsþekkti myndlistarhópur Gelitin frá Austurríki sýnir í Kling & Bang galleríi, en hópurinn hefur m.a. tekið þátt í Feneyjartvíær- ingnum og Gjörningatvíæringnum í New York. Sjá:http://this.is/klingogbang. Opið fim.–sun. kl. 14–18. Listasafn ASÍ | Daði Guðbjörnsson, Eirík- ur Smith, Hafstein Austmann og Kristín Þorkelsdóttir sýna nýjar vatnslitamyndir. Einnig eru sýndar vatnslitamyndir eftir Svavar Guðnason í eigu Listasafns ASÍ. Opið 13–17. Aðgangur ókeypis. Til 13. ágúst. Listasafn Einars Jónssonar | Opið dag- lega nema mánudaga kl. 14–17. Högg- myndagarðurinn við Freyjugötu er alltaf opinn. Listasafnið á Akureyri | Yfirlitssýning Lo- uisa Matthíasdóttir. Umfangsmesta sýn- ing sem haldin hefur verið á verkum Lo- uisu og rekur allan hennar listamannsferil í sex áratugi. Til 20. ágúst. Listasafn Íslands | Sýning á íslenskri landslagslist frá upphafi 20. aldar og túlk- un þjóðsagna. Verk úr safneign og Safni Ásgríms Jónssonar. Leiðsögn á ensku þriðjudaga og föstudaga kl. 12.10 í júlí. Kaffitár í kaffistofu. Ókeypis aðgangur. Opið daglega kl. 11–17, lokað mánudaga. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Yf- irlitssýning á verkum Guðmundar Ein- arssonar frá Miðdal. Í samvinnu við Nátt- úrufræðistofu Kópavogs. Til 30. júlí. Safnbúð og kaffistofa Kjarval – Kraftur heillar þjóðar. Verk í eigu Landsbanka Íslands. Í tilefni af 100 ára af- mæli bankans. Til 30. júlí. Listasafn Reykjanesbæjar | „Tíminn tvinnaður“. Alþjóðlegi listhópurinn Distill sýnir verk sem spannar sviðið frá tví- víðum hlutum í skúlptúra og innsetningar. Til 31. júlí. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn | Sýning á úrvali verka úr safneign Ásmund- arsafns, sem sýnir með hvaða hætti lista- maðurinn notaði mismunandi efni – tré, leir, gifs, stein, brons og aðra málma – og hvernig sömu viðfangsefni birtast í ólíkum efnum. Til 31. des. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Sýn- ing á listaverkum sem voru valin vegna út- hlutunar listaverka- verðlaunanna Carne- gie Art Award árið 2006. Til 20. ágúst. Erro – Grafík. Myndirnar eru frá ýmsum tímabilum í list Errós þær nýjustu frá síð- astliðnu ári. Við vinnslu málverka sinna gerir Erró samklipp, þar sem hann klippir og límir saman myndir sem hann hefur sankað að sér úr prentmiðlum samtímans. Til 31. des. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Sýning á verkum úr eigu safnsins. Margir af helstu málurum þjóðarinar eiga verk á sýningunni sem spannar tímabilið frá aldamótunum 1900 til upphafs 21. ald- arinnar. Til 17. sept. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sýning á völdum skúlptúrum og portettum Sig- urjóns Ólafssonar. Opið daglega nema mánudaga kl. 14–17. Kaffistofan er opin á sama tíma. Tónleikar á þriðjudags- kvöldum. Sjá nánar á www.lso.is Norræna húsið | Sumarsýning í anddyri til 27. ágúst. Ljósmyndir frá Austur- Grænlandi eftir danska ljósmyndarann Ole G. Jensen. Opið virka daga kl. 9–17. Laug. og sun. kl. 12–17. Nýlistasafnið | Björk Guðnadóttir, Daníel Magnússon og Hildur Bjarnadóttir eru meðal áhugaverðustu listamönnum sinnar kynslóðar. Tilvist mannsins er drifkraft- urinn að list Bjarkar. Daníel veltir fyrir sér sambandi texta og ímyndunar og Hildur vinnur á nýjan hátt úr textíl og ögrar hefð- bundinni nálgun conseptlistar. Óðinshús | Dagrún Matthíasdóttir og Guð- rún Vaka í Óðinshúsi á Eyrarbakka til 30. júlí. Pakkhúsið í Ólafsvík | Hugrenningar – Málverkasýning Sesselju Tómasdóttur myndlistarmanns til 17. júlí. Reykjavík- urborg | Stella Sigurgeirsdóttir sýnir skilti á 20 stöðum víða um borgina til 28. ágúst. Safn | Tvær af fremstu myndlistarkonum í Evrópu; Karin Sander & Ceal Floyer, sýna nýleg verk sín í bland við eldri, sem eru í Skráning viðburðar í Staður og stund er á heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos Skráning viðburða

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.